Eining - 01.01.1964, Qupperneq 6

Eining - 01.01.1964, Qupperneq 6
6 EINING fer lítið fyrir framlagi hins opinbera — allt of lítið. Tímarnir eru breyttir frá því, sem áður var. Nú kostar allt peninga — miklar fjárfúlgur. Og starf bindindishreyfingarinnar getur ekki borið nema takmarkaðan árangur, nema hún hafi yfir nægilegu fé að ráða til þess að hafa í þjónustu sinni hæfilega marga fastráðna menn. Ekki skortir verkefnin. Alls staðar er verk að vinna“. Hér lýkur að mestu máli þeirra þriggja manna, sem fyrstir komu fram í hinni samfeldu dagskrá útvarpsins. Milli hins mælta máls var einsöngur, kórsöngur og söngur bama. Hér með er svo ekki öll saga, en þetta er þegar orðið langt mál og verður því að bíða næsta blaðs, sem ótalið er, bæði varð- andi æskulýðsstarfsemina og þátturinn frá Akureyri, sem sízt má verða út- undan, því að þar stóð vagga reglunnar. Saga reglunnar hefur oft verið rakin hér í blaðinu og frá starfi hennar sagt bæði fyrr og síðar, verður það því ekki rakið hér nánar að þessu sinni. Von- andi á þáttur hennar í menningarlífi þjóðarinnar eftir að verða framvegis eins og áður mikill og blessunarríkur. Til þess biður blaðið henni blessunar drottins og velvildar allra góðra manna. -K >f -X Myndirnar á opnunni hér að framan eru til að minna á, í sambandi við þetta merkisafmæli reglunnar, að einn veigamikill þáttur í starf- semi hennar hefur jafnan verið æskulýðsstarf- semin. Frá Tómstundaheimili ungtemplara í Reykjavlk. Góðtemplarareglan Hvað er reglan? — Það fólk, sem ekki gat illu vanizt, en eymdin til hjarta gekk, og hét að berjast gegn bölvun hennar og brjóta hvern þrældómshlekk, að afhjúpa guðlaust athæfi þeirra, sem afla sér fjár á þá leið, að byrla mönnum þær banvænu veigar, sem búa þeim kvöl og neyð. Hvað er reglan? — Uppreisn gegn vondum og óhollum siðum og öllu, sem spillir þjóð, en af því er skæðast til eyðingar flestu það eiturdrykkjanna flóð, sem flæðir um löndin og fellir og brýtur jafnt frumkvist sem efldasta hlyn og varpar heimilishamingju manna í hræsvelgsins opna gin. Hvað er Reglan? — Samtök manna, sem meinin sáu og manninn, er særður lá og rúinn við veginn, þar ræningjar höfðu ráðist hann saklausan á. — Þeir Samverjans fagra góðverk gerðu og græddu hans djúpu sár. Og það hefur verið þeirra iðja að þerra hin beisku tár. Hvað er Reglan? — Vígðar og þjálfaðar siðbótasveitir með sannleikans bjarta hjör og alvæpni guðs, til að eiga sér vísa óslitna sigurför, sú liðsveit, sem einatt ámæli hlýtur frá unnendum nautna og prjáls, en mótspyrnu alla á bak aftur brýtur, er blessuð af guði og frjáls. Hvað er Reglan? — Samtök manna, sem hugsjón hæstri helguðu sérhvern dag, og iðju þeirri að efla á jörðu allsherjar bræðralag, að uppræta meinið meinanna versta, þá mannkyns háðung og kvöl, sem manndómi eyðir, myrðir og spillir, og margfaldar kynslóða böl. Hvað er Reglan? — Alþjóðasamtök, sem að því stefna, að algáð verði hver þjóð og hervélar brotnar, svo hætti að streyma í heiminum saklaust blóð. En brennd öll „harkmikil hermannastígvél", og hergögnum breytt í plóg, svo enginn búi við örbirgð né þrælkun, en aflað, svo hver hafi nóg. Hvað er Reglan? — Alþýða manna af öllum stéttum, sem ala í brjósti þá von, að guð muni heiminum gefa þær mæður, sem geti svo fóstrað hvern son, að hér verði betri og batnandi heimur, og bróðernið fái völd, svo upp renni sannleikans sæluríki með sigursins veglegu gjöld. Á Islandi hefur hún áttatíu ár staðið helgan vörð um helgidóm þann, sem öll blessun á byggist og beztur er hér á jörð: Um vöggu barnsins og heimilishelgi, og hamingju náungans, um frelsi þjóðar og framtíð hennar, og framtíð hins unga manns. Pétur Sigurðsson.

x

Eining

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eining
https://timarit.is/publication/833

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.