Eining - 01.01.1964, Side 8

Eining - 01.01.1964, Side 8
8 EINING /------------------------------------------------------------------■'l TiTATTJSJC^ Mánaðarblað um áfengismál, bindindi og önnur VJ-L V vJ menningarmál. Ritstjóri og ábyrgðamaður: Pétur Sigurðsson. Blaðið er gefið út með nokkrum fjárhagsstyrkfrá ríkinu og Stórstúku íslands, kostar 100 kr. árg., 10 kr. hvert eintak. Utanáskrift til blaðsins og ritstjórans er: Pósthólf 982. Reykjavík. Sími: 41956 k..________________________________________________________________J Nokkur orð til kaupenda blaðsins Um leið og ritstjóri blaðsins óskar ykkur öllum, kaupendum og lesendum þess, allra heilla á nýja árinu og blessunar drottins, og þakkar góð við- skipti liðinna ára, verð eg að ræða við ykkur nýtt vandamál. I þjóðfélagi, þar sem erfitt er að komast áfram með ýms störf vegna verkfalla og sífeldra frídaga og tylli- daga, og verðlag stendur aldrei í stað, væri sjálfsagt réttast að láta ógert allt, sem unnt er. Þessi rúm 20 ár, sem eg hef séð um blaðið, hef eg aldrei staðið jafnhik- andi og nú við nein áramót. Sú spurn- ing hefur sótt á mig, væri ekki réttast að leggja blaðið niður? Myndi nokkur syrgja? Og myndi ekki öllu jafnborgið eftir sem áður? Sjálfur gæti eg senni- lega sætt mig við þetta, en beztu sam- Framhald af 7. bls. taka fjörkipp. í þeim tilgangi hefði stjóm þess lagt fram hér á ráðstefn- unni tillögur um framtíðarverkefni þess. Formaður sagði, að æskulýðurinn í Reykjavík yrði oft fyrir hörðum áfell- isdómi, þótt mestur hluti hans væri glæsilegt og gáfað fólk, og verðskuld- aði ekki slíka dóma yfirleitt. Þessu áliti gæti unga fólkið breytt með samstöðu sinni um að útiloka ósómann og skipa sér heiðurssess. Það þyrfti að skipa sér í félögin og gera bandalagið að þeim aðila, sem kæmi fram fyrir hönd ung- menna með óskir þeirra og framkvæmdi þeirra áhugamál. Þá myndi æskulýður Reykjavíkur eiga gott mannorð hjá borgarbúum og allri þjóðinni. Að loknum framsöguerindum urðu fjörugar umræður. Kom þar í ljós mik- ill áhugi á því, að markvisst yrði unn- ið að þeim málefnum, sem stjórn banda- lagsins hefði lagt fyrir ráðstefnuna. Ársþing bandalagsins verður haldið í febrúar n. k. og verður þá tekin ákvörð- un um framtíð þess. herjar mínir taka ekki undir við mig um þessa lausn málsins, en við stönd- um andspænis nýjum vanda, sem verð- ur að leysa á einhvern hátt. Þjóðarbúskapurinn er slíkur, að ekk- ert lát verður á kaupskrúfunni og verð- hækkun á flestu eða öllu. Sumir fá miklar launahækkanir og fjöldi manna virðist hafa góð auraráð, en þeir munu þó allmargir, sem búa við fremur þröng- an kost. Mörg undanfarin ár hefur Isafoldar- prentsmiðja verið svo gestrisin og góð- viljuð við blaðið, að prenta það langt- um ódýrara en verðlag gerir ráð fyrir, en ekkert fyrirtæki getur lifað á góð- semd. Nú er því svo komið, af ýmsum ástæðum, sem flestir munu skilja og óþarft er að nefna, að pappír og prent- kostnaður hækkar um helming, ef ekki meira, sama er orðið um póstgjald. Fyrir örfáum árum kostaði útsending blaðsins ekki nema 3—4 hundruð kr. en nú er það komið á 9. hundrað mánað- arlega, og þannig er þetta allt í sam- UT-félag í Garðinum I Garðinum eru um 30 félagar í hinni nýju ÍUT-deild. For maður er Ragn- heiður Hjálmarsdóttir, 15 ára. Við bjóöum báðar deildirnar velkomn- ar í hóp ÍUT-deildanna, sem eru orón- ar 9 talsins. * >f * Ungtemplarafélag í Sandgerði í haust voru stofnuð tvö ný ungtempl- arafélög hér Sunnanlands, annað í Sand- gerði en hitt í Garðinum. Bæði félögin starfa innan vébanda undirstúknanna á stöðunum. Á stofnfundinum í Sandgerði gerðust 23 ungmenni félagar. Formað- ur var kosinn Einar Sigurður Sveins- son, en hann er 15 ára gamall. * >f -K SBS stofnað í Englandi Hliðstæð samtök sambandi bindinis- félaga í skólum eru í undirbúningi í Englandi. Fyrir nokkru var stofnað bandi við blaðið. Hér er því aðeins um tvennt að ræða: leggja blaðið niður eða hækka árgjald þess um helming, úr 50 í 100 kr. Þetta vex auðvitað ekki þeim kaupendum í augum, sem um margra áraskeið hafa greitt 100 kr. fyrir árganginn, og einstöku miklu meira. En svo eru hinir mörgu, sem minni ráð hafa ? Líklega verðum við þó að gera til- raun með blaðið og sjá, hvernig þess- ari verðhækkun verður tekið, en þess vil eg biðja alla viðskiptamenn blaðs- ins, sem af þessum ástæðum kunna að vilja segja því upp, að láta mig vita það, sem allra fyrst, svo að við getum áttað okkur á hvar við stöndum með blaðið. Aldrei hefur dálítill hópur kaupenda sýnt blaðinu meiri velvild en sl. ár og flestir staðið vel í skilum, aðeins örfáir líklega gleymt að borga síðasta árgang. Mér er það ákaflega ógeðfelt, að þurfa í annað sinn að breyta verðlagi blaðs- ins, en meinþróun fjármála þjóðarinn- ar bitnar á flestum börnum hennar. Að svo mæltu endurtek eg hinar beztu heillaóskir mínar til ykkar allra, um blesunarríkt nýtt ár, og þakka öll góðu bréfin, góð kynni og viðskipti liðinna ára. Góðvild manna á ævinlega innileg- ustu þakkir skilið. Pétur Sigurðsson. fyrsta bindindisfélagið af þessu tagi þar í landi. Þetta skref var stigið fyrir til- stuðlan alþjóða hástúkunnar, en þeir, sem unnu að því að koma félaginu á stofn, voru formaður sambands bind- indisfélaga í skólum í Svíþjóð og rit- ari IOGT þar í landi. Stofnun nefndra samtaka í Englandi, er talið mjög mikilvægt með tilliti til þess að fjöldi nemenda frá Afríku og Asíu stundar skólanám í Englandi. Gefst þar með færi á að ná sambandi við námsmennina í því skyni að vinna þá til fylgis við bindindismálið, að þeir geti síðan starfað að slíkum málefn- um í heimalandinu, að námi loknu. -X >f * Vakin skal athygli lesenda blaðsins á því, að þetta tölublað gildir fyrir mánuð- ina janúar og febrúar, og: er 16 bls., sem annars hefði verið aðeins 12. I’etta er gert til þess að komast á rétta áætlun með blaðið, því að prentaraverkfallið raskaði henni svo mjög. Einnig er þetta gert af sparnaðarráðstöfun, því að, eins og greint er frá á öðrum stað í blaðinu, hækkar nú allur kostnaður við blaðið um meira en helming.

x

Eining

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eining
https://timarit.is/publication/833

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.