Eining - 01.01.1964, Síða 9

Eining - 01.01.1964, Síða 9
EINING 9 o>oooooooooooooooooooooooooooo<xxx> I Wtt keitaya yléí I X Kenn mér, drottinn, vegu laga þinna, X Iv að eg megi halda þau allt til enda. V Veit mér skyn, að eg megi halda lögmál þitt X og varðveita það af öllu hjarta. Y Leið mig götu boða þinna, X því að af henni hef eg yndi. X Beyg hjarta mitt að reglum þínum, X en eigi ranglátum ávinningi. 0 Snú augum mínum frá því að horfa á hégóma. X — Sálm. 119,33-87. 0 Væri ekki hyggilegt að ganga inn í hið nýja ár X með þessa bæn sálmaskáldsins hebreska í huga og X hjarta: Bæn um vísdóm til að ástunda réttlæti, fyrir- X líta „ranglátan ávinning“ og snúa augum sínum „frá X því að horfa á hégóma?“ 0 Um áramótin 1940, styrjaldarárin, flutti konung- X ur Englands ræðu og fór þá með nokkrar setningar v eftir óþekktan höfund. Orð þessi vöktu athyggli X manna um allan heim, blöðin ræddu þau og klerkar Y notuðu þau í ræðum sínum. Orðin voru þessi: X „Ég sagði við manninn, sem stóð við inngang hins X nýja árs: Ljá mér ljós, að eg geti gengið öruggur X og óhultur inn í hið ókunna. Og hann svaraði: „Gakk X út í myrkrið og legg hönd þína í hendi guðs. Það X skal reynast þér betra en ljós og öruggara en vel X kunnur vegur“. Y c>ooooo<c>ooooooo<c>ooo<ooooooooooooooo Dr. Richard Beck: Vestan úr heimi heyröist skot, — þá hrökk þessi álfa við. þeim áhrifamiklu orðum (í þýðingu Einars Benedikts- sonar) hefst stórbrotið kvæði Henriks Ibsens „Víg Lincolns". Þessar ljóðlínur hafa dunið mér í eyrum, eins og dimmróma klukknahljómur, síðan harmafregnin mikla um víg Johns F. Kennedy, forseta Bandaríkjanna, skall eins og reiðarslag úr heiðskíru lofti yfir amerísku þjóðina, og barst að kalla samstundis um gjörvallan heiminn. Þess vegna er það ekki ofmælt, að skotið hatramlega, sem lagði Kennedy forseta að velli í blóma aldurs og mitt í mik- ilvægu starfi hans í þágu frelsis og friðar í heiminum, hafi eigi aðeins haft þau áhrif, að Norðurálfan hrökk við, heldur hafi hið sama mátt segja um aðrar álfur heims, þegar það skotið heyrðist „vestan úr heimi“ (svo að haldið sé orðalagi Ibsens), er varð hinum unga, glæsilega og fjölhæfa forseta Bandaríkjanna að fjörtjóni langt um aldur fram. Hvarvetna fylltust hugir manna djúpri sorg og saknaðarkennd. Menn og konur víðsvegar um heiminn, í milljóna tali, fundu til þess, að heilhuga, djarfyrtur og áhrifaríkur mannvinur, friðarvinur og frelsis, væri hniginn til moldar. ÞAKKARÁVARP Nú þegar ég er flutt frá Islandi til búsetu á ný í föður- landi mínu Danmörku, vil ég þakka vinum, samstarfsmönn- um og venzlafólki viðkynningu á liðnum árum. Á árunum 1950 til 1954 er ég stundaði kennslu á íslandi, eignaðist ég marga vini meðal kennara og nemenda víðs vegar á Islandi. Síðar er ég stofnaði heimili í Reykjavík með manni mínum Benedikt S. Bjarklind stórtemplar, eign- aðist ég marga vini sem mér er ljúft að minnast. Við fráfall hans 6. september síðastliðinn fann ég gleggst styrkleika þeirrar vináttu, í þeirri margvíslegu samúð er mér var sýnd í sambandi við útför hans og minningarathöfn. Úr fjarlægð sendi ég öllum vinum okkar mína hjartanleg- ustu kveðju og þakkaróskir. Sérstaka alúðarþökk sendi ég Stórstúku íslands og reglusystkinum okkar, fjölskyldu hans og vinum f jær og nær. Megi hugsjón bindindis og bræðralags eflast og blessun Guðs vaka yfir þeim störfum. Gleðilegt nýtt ár, lifið heil. Elsa Bjarklind öster Sögade 32, Köbenhavn K. -X I Bandaríkjunum sjálfum hefir því vafalaust almennt verið þannig farið, að samhliða þjóðarsorginni yfir vígi for- setans hafi hugir manna fyllst biturri gremju og blygðun- artilfinningu, að ekki sé sagt, heilagri reiði, yfir því, að slíkt níðingsverk skyldi unnið vera í landi þeirra, og sagan endur- taka sig á hinn ömurlegasta og átakanlegasta hátt. Sjálf- sagt hafa sambærileg örlög Abrahams Lincoln orðið þús- undum rík í huga, eigi síður en þeim, er ritar þessi fátæk- legu minningarorð um Kennedy forseta. Hörmuleg fréttin um víg hans snerti sérstaklega næma strengi í hugum okkar kennara og stúdenta á Ríkisháskól- anum í Norður-Dakota, því að einungis tveir mánuðir eru liðnir síðan Kennedy forseti flutti ræðu fyrir miklu fjöl- menni í háskólanum. Mun sú ræða okkur öllum minnisstæð, er á hann hlýddu og þá eigi síður forsetinn sjálfur.

x

Eining

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eining
https://timarit.is/publication/833

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.