Eining - 01.01.1964, Page 10

Eining - 01.01.1964, Page 10
10 EINING SKÓLAMÚT í SINDRABÆ Hinn 8. des. síðastliðinn var haldið skólamót á Höfn í Hornafirði í hinu nýja og glæsilega samkomuhúsi þar, Sindrabæ. Til mótsins komu svo að segja öll börn á skólaskyldualdri í sýsl- unni utan börnin úr öræfum, en það- an er löng og oft torsótt leið yfir úfin vötn og ægisanda. — Auk þess bauð félag Áfengisvarnanefnda sýslunnar, sem fyrir mótinu stóð, stjórnum kven- félaga, kennurum, formönnum ung- mennafélaga, skólanefndarmönnum og að sjálfsögðu áfengisvarnanefndar- mönnum til mótsins. Mótið var sett klukkan 2 eftir há- degi. Fallegur, stór hópur prúðbúinna barna fyllti stóra salinn í húsinu, ásamt hinum fullorðnu gestum, sem voru fáir í samanburði við börnin. Munu þátt- takendur hafa verið hátt á þriðja hundrað talsins í allt. „Góðan vin að garði bar“, þar sem var Pétur Björnsson erindreki, en hann kom til okkar með erindi og kvikmyndir, og var sérstök ánægja og uppörfun að komu hans. Mótið hófst á ávarpi formanns Fé- lags áfengisvarnanefnda. Síðan komu barnahóparnir úr hinum ýmsu skóla- hverfum, hver með sín skemmtiatriði. Þau sýndu leikfimi, lásu upp ljóð og sögur sögðu fram kvæði, sýndu leik- þætti, höfðu spurningaþætti, barnakór söng á leiksviðinu o. s. frv. Á milli þátta var almennur söngur. Ræður fluttu prófasturinn, séra Skarphéðinn Pétursson í Bjamanesi og Pétur Bjöms- son erindreki. Sá síðamefndi bauð börn- unum að veita þeim verðlaun, fyrir beztu ritgerð um það, sem fram fór á mótinu. Kaffihlé var gefið um fjögur leytið og bauð fél. áfengisv.nefnda öll- um viðstöddum kaffi. Var tvískipt í kaffistofuna og börnunum sem biðu sýnd stutt kvikmynd meðan drukkið var. Gunnar Snjólfsson, hreppsstjóri í Höfn sleit mótinu með stuttri en snjallri ræðu. Allt fór mótið vel fram. Börnin voru ánægð, glöð og prúð og dagurinn allur hinn ánægjulegasti. Um kvöldið sýndi leikfélagið á Höfn leikinn „Klerkar í klípu“ með barna- sýningarverði, svo aðkomubörnin gætu fengið tækifæri til að sjá leikinn í leið- inni. Á meðan sátu áfengisvarnanefnd- armenn á aðalfundi Fél. áfengisvarna- nefnda, og nýttist þannig dagurinn hið bezta, og ég vona að hann hafi orðið öllum sem þar voru staddir til upp- lyftingar og ánægju. S. Árnadóttir.. Konan, sem sendir þessar góðu frétt- ur, frú Sigurlaug Árnadóttir, er for- maður Félags áfengisvarnanefnda í A.-Skaftafellssýslu. Á því er enginn vafi, að þessi skólamót eru prýðilegir mannfundir. I höndum áhugasamra, ágætra og vakandi manna verða þau bæði skemmtileg og hin gagnlegustu. Þótt oftast sé fremur hljótt um þau í fréttum, eru þau sannarlega ekki síð- ur frásöguverð en margt annað. P. S. BLESSIJÐ JOLIM Þetta eru algeng orð hér á landi, álíka og „blessuð sólin“. Áreiðanlega hafa margir átt indæl og blessunarrík jól, og erum við þakklát, sem þeirra gæða nutum. Vissulega var það sönn hátíð að vera í hinum notalegu og Ijósum- skreyttu húsakynnum á jólanóttina og hlusta á kvöldskrá ríkisútvarpsins. Hún var öll ágæt: Blessaðir hugþekku jóla- sálmamir, ræður prestanna og biskups, hljómlistin og einsöngvararnir. Allt kærkomið og gott. Hér mætti svo minn-r ast á fleira, alla hátíðar-„stemmning- una“ og þau gæði, sem jólunum fylgja. Því miður er jólahald þjóðanna ekki skuggalaust. Að þessu sinni voru mörg- hundruð manns í jólaskemmtiför á miklu hafskipi. Skipið brennur og á annað hundrað manns ferst, en alls voru á gríska skipinu Laconia um þús- und manns. I járnbrautarslysi farast 40 í Austur-Evrópu, menn drepa hver annan á Kýpur og útvarpið flytur þá frétt, að 94 hafi farizt um jólin í um- ferðarslysum í Bretlandi. Glannalegum akstri kennt um aðallega. Raunalegt að menn skuli ekki geta notið hins góða, án þess að spilla því fyrir sjálfum sér og öðrum. — Víðar var auðvitað að verki allt annað en hinn góði andi jól- anna, en áreiðanlega eyddu þau víða dapurleik og glöddu hjörtu milljónanna. Og boðskapinn um endanlegt bjargráð guðs mannkyni til handa flytja þau ætíð og mun hann halda áfram að þoka heim- inum nær þráðu og settu marki. Ógleymanlegur verður hann mér í ræðustólnum: — Svip- hreinn og djarfmannlegur glæsileikinn persónugerður; lífs- þrótturinn geislaði af honum, einurðin og einlægnin s v i p - m e r k t u málaflutning hans. Auðséð og auðfundið var, að þar fór leiðtogi, sem gæddur var óvenjulegum forystu- hæfileikum, og brann í brjósti heitur eldur mannástar og göfugra hugsjóna. Slíkum mönnum er rétt lýst og vel í eftirfarandi erindum úr fögru kvæði Einars P. Jónssonar „Þjónn ljóssins“: Hamrarnir skelfa ’ekki hug þess manns, er, helgaður þjónustu sannleikans, leitar til ljóssins hæða að lind hinna dýpstu fræða. Útverðir dagroðans eggja hann, þann andlega brattsækna konung-mann, að klífa upp björgin bláu og af brúninni skyggnazt háu. Um aldirnar stendur þar óðal hans, þess einbeitta talsmanns sannleikans — í álfunni óðs og hljóma, við eilífan dýrðarljóma. Vafalaust erum við samtímamenn Kennedys forseta of nærri atburðunum, til þess að meta til fullnustu forystu hans og mikilvæga starfsemi í innanlandsmálum þjóðar sinn- ar og á alþjóðavettvangi. Það bíður sögunnar að sannmeta forsetastarf hans í réttu ljósi og skipa honum í þann sess, er honum ber að verðugu. Hitt er þegar óhætt að full- yrða, að hann var verðugur arftaki þeirra fyrirennara sinna í forsetaembættinu, sem helgað hafa hæfileika sína og starf sitt hinum göfugustu hugsjónum, þjóð sinni, og um leið öðrum þjóðum heims, beint og óbeint, til heilla og blessunar. Og þegar slíkir foringjar sem hann falla að velli, er holt að minnast spaklegra orða norska skáldsins Pers Sivle (í þýðingu síra Matthíasar Jochumsonar): Ef bila hendur, er bættur galli: Ef merkið stendur, þótt maðurinn falli. Merki hins mikilhæfa og ástsæla forseta Bandaríkjanna stendur óhaggað í höndum fjölmargra, er af heilum huga fylgja honum í spor. Miklar hugsjónir deyja aldrei. Þær skína bjartar eins og staðfastar stjörnur himinsins, hefja hugi manna til hærri sjónar, og eignast alltaf sína einlægu unnendur og ótrauða merkisbera.

x

Eining

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eining
https://timarit.is/publication/833

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.