Jafnaðarmaðurinn - 10.03.1928, Blaðsíða 1
ARNAÐURINN
ÚTGEFANDI: VERKLÝÐSSAMBAND AUSTURLANDS
5. tölublað
Norðfirði, . lOmars 1928
3. árgangur
Togarinn „Jón forsetl" strandar.
10 menn bjargast en 15 drukkna.
Aðfaraoótt hins 26. febrúar, kl.
1 strandaði togarinn „Jón forseti"
frá Reykjavík. eign h.f. „Aliance“,
á Stafnnesrifi, Stormur, rigning
og svarta náttmyrkur var og
stórbrim. Sjórinn gekk yfir
skipið antiað veifið, svo menn-
irnir hjeldust ekki við á þiljum
en urðu að flýja upp í reiðann
og reyndu að haldast þar við.
Framan af gátu þeir haldist við
frammi í skipinu en urðujíka að
flýja þaðan að lokum.
Mörg skip — togarar og vjel-
bátar — komu til bjargar, en
fengu ekki komist nógu nærri,
olli því brimið og ill aðstaða á
strandstaðnum. Loks tókst, undir
kvöld þ. 27., að bjarga 10 mönn-
um til lands, þeim er eftir voru.
Hinir — 15 — Voru þá horfnir
úr hópnum. í Reykjavík blöktu
sorgarfánar og fundum þingsins
var frestað.
Ennþá ein harmeíregnin.
Enn eitt skarðið, sem Ægir
heggur í hina íslensku sjómanna-
stjett. Hvort mun það þing, er
nú situr, þurfa fleiri slíkra atburða
til þess að snúa sjer með rögg
að björgunarmálum þjóðarinnar?
Er ekki fyllilega kominn tími til
til þess að geta nokkuð að gjört; að þau sjeu athuguð?
Bæjarrjettindin.
Frumvarp til laga um bæjar-
stjórn á Norðfirði hefir nú ver-
ið.afgreitt frá Efrideild þingsins
til Neðrideildar. Allsherjarnefnd
Efrideildar klofnaði um málið.
Vildi meirihlutinn — þeir Jón
Baldvinsson og Ingvar Pálmason
flutningsm. frumv. — samþykkja
það með dálitlum breytingum
um greiðslu á launahluta ríkis-
sjóðs, en minnihlutinn — Jón
þ£>rláksson — vildi vísa írumv.
frá tneð rókstuddri dagskrá þess
efnis, að í trausti þess, að stjórn-
in láti fyrir næsta þing undirbúa
lög, sem veiti sveitarfjelögum
leyfi til þess að fela einum manni
íramkvæmd sveitamálefna og jafn-
framt hafi á hendi innheimtu
fyrir ríkissjóð og hreppstjórastörf,
taki nefndin fyrir næsta mál á
dagskrá.
Tilraun þessi til að drepafrum-
varpið mistókst algerlega. Þó
þetta hefði verið samþykt og
framkvæmt, hefði það ekki á
nokkurn hátt verið fullnægjandi
fyrir Norðfjörð.' Hann var jafn
löggætslu- og dómsvaldslaus fyrir
því. Var frumvarpið síðan af
greitt til Neðrideildar með 8 sam-
hljóða atkvæðum. íhaldsnienn
greiddu ekki atkvæði á móti.
Munu þeir hafa vitað sem er,
að allir íhaldsmenn hjeráNorð-
fírði fylgja málinu, nema einn eða
tveir andlega steindauðir menn,
sem telja skyldu sína að vera á
móti öllu hjá öllum — líka öðr-
um íhaldsmönnum.
Þegar er frumv. var flutt í Nd.
var því vísað til nefndar með 15
samhlj. atkv. Nefndin hefir nú
skilað áliti sínu. Víh meirihlutinn
— Hjeðinn Vald., Gunnar Sig
urðsson og Bernharð Stefánsson
— samþykkja frumv. óbreytt frá
Ed., en Magnús Guðm. og Hákon
í Haga — minriihlutinn — er á
móti, að þaö nái fram að ganga.
Álit meirihlutans er framkomið.
Telur hann sanngjarnt að þingið
verði við ítrekaðri ósk Norðfirð-
inga í þessu efni, þar sem sje
um jafn fjölmennan og jafn ört
vaxandi bæ að ræða og stjórnar-
fyrirkomulagið í málefnum bæj-
arins sje úrelt orðið. í sambandi
við mótbáruna um aukin útgjöld
ríkissjóðs megi benda á, að Norð-
fjörður eigi sanngirniskröfu á því,
að ríkið leggi fje til löggætslu
og innheimtu þar sem tekjur rík-
sjóðs af Norðfirði undanfarin ár
hafi numið 150—200 þúsund kr.
árlega. Telur meirihl. hag ríkis-
sjóðs betur borgið með breyt-
ingunni sem frumv. fer fram á.
Vonandi sigrar skoðun meiri-
hlutans, er málið kemur til úr-
slita í deildinni.
Tekjurnar af tóbakinu nema táep-
um 900 þús. krónum, eða um
200 þúsund krónum lægri en
tóbakstekjurnar voru síðasta
einkasölu árið.
Vafalaust hefðu tekjur einka-
sölunnar vaxið mikið frá því
sem þær voru orðnar, ef hún
hefði fengið að starfa áfram í
friði, svo sennilega er um mik-
ið meira tap að ræða fyrir rík-
issjóð en þessar 200 þús. kr.
Ekkert hefir unnist við breytingu
þessa annað en það, að hagn-
aðurinn, sem áður gekk til ríkis-
sjóðs, hefir nú horfið í vasa ein-
stakra manna. Tóbaksnautn hef-
ir sjálfsagt fremur aukist en mink-
að og verð á tóbaki er engu
ægra nú en áður var.
Er nú greinilega komið í Ijós,
að rök þeirra, sem mæltu móti
niðurlagningu einkasölunnar.voru
rjett. Ríkið hefir taþað á því 200
súsund krónum þegar á öðru
ári hinnar „frjálsu" tóbaksversl
unar.
þegar einkasalan var lögð nið-
ur, náði hlutafjelag eitt í Reykja-
vík — Tóbaksverslun fslands hf,
flestum þeim sambönduni, er
einkasalan hafði áður haft óg
hefir rekið heildverzlun með
tóbak síðan. Mun sú verzlun hafa
haft megnið af tóbakssölunni.
Hjedinn Valdimarsson alþm
hefir haft forstöðu þessa fyrir-
tækis, enda mun hann aðallega
liafa haft á hendi tóbaksverslun
ina meðan ríkið rak hana.
Nú hefir Hjeðinn Valdimarsson
flutt á Alþingi frumvarp um að
ríkið taki aftur að sjer einkasöl-
una, og er það vel farið. Frumv
nær vor-andi fram að ganga þeg
ar á þessu þingi, svo ríkissjóður
missi ekki þeirra tekna lengur
sem tóbaksverslunin getur veitt,
Tóbakseinkasalan.
Eitt af afreksverkum Ihaldsins;
meðan það sat við völd, var að
leggja niður tóbakseinkasölu rík
isins. Einkasölunni var upphaf-
lega kornið á til þess að afla
ríkissjóði tekna. Fyrstu árin,
sem einkasalan starfaði, voru
tekjurnar fremur litlar, vegna þess
hve birgðir kaupmanna voru
miklar fyrir og innflutningur
lítill meðan þær voru að seljast.
En svo tók einkasalan að gefa
ríilegar tekjur og síðasta árið,
sem hún starfaði, voru tekjur
ríkissjóðs af tóbaki 1 rniljón og
100 þúsund krónur.
íhaldið lagði niður einkasöl-
una og hækkaði tollinn á tóbak-
inu og ætlaði með því að sjá
ríkissjóði fyrir jafn miklum tekj-
um af tóbakinu. 1926 reyndist
munurinn lítill. þá óx innflutn
ingur á tóbaki mjög mikið, vegna
niðurlagningar einkasölunnar.
Nú hefir fjármálaráðherra birt
yfirlit yfir tekjur ríkissjóðs 1927
Hafnarfjörður sjerstakt kjördæmi
Alþingi hefir afgreitt lög um
skiftingu Gullbringu- og Kjósar
sýslu í tvö kjördæmi. Velur sýsl
an annan þingmanninn en Hafn
arfjarðarkaupstaður hinn. Frum
varp þetta hefir verið flutt á und
anförnum þingum, en hefir altaf
verið felt þar til nú. Jafnaðar
menn hafa allaf flutt frumvarpið
Aukin landhelgisgætsla.
Frumvarp utn aukna landhelg
isgætslu er afgreitt sem lög frá
Alþingi. Vonandi fá Austfirðing
ar þá betri gætslu á fiskimiðum
sínum en verið hefir undanfarin
ár, þar sem varla er hægt að
segja að varðskipin hafi sjest
hjer eystra.
Lánsfjelag.
Magnús Guðmundssvn og Ás
geir Ásgeirsson flytja frumv. um
stofnun lánsfjelags eftir erlendri
fyrirmynd. Lána slík fjelög út
fasteignir og njóta ýmsra hlunn
inda frá ríkinu. Eru hlunnindin
fram tekin i frumvarpinu og fjár-
málaráðherra falið að veita þau,
ef stjórnin samþykkir. Telja flutn-
ingsmenn að NordiSK Trust Co.
hafi veitt ádrátt um að kaupa
eða hjálpa til að afsetja allmikið
af verðbrjefum slíks fjelags, ef
3að yrði stofnað hjer.
járlögin.
Fyrri kafli fjárlaganna hefir
verið til umræðu í þinginu und-
anfarið. Voru tillögur fjárveit-
nganefndar samþyktar en allar
tillögur einstakra þingmanna feld
ar nema ein, um styrkhækkun til
hjúkrunarfjelagsins Líkn. Hefir
slíkt víst ekki komið fyrir fyr á
Alþingi, og er vonandi, að það
)oði batnandi tíma í afgreiðslu
fjárlaganna á þinginu.
Dýrtíðaruppbótin.
Frumvarp um framlengingu
dýrtíðaruppbótar starfsmanna rík-
isins er afgreitt sem lög frá Al-
)ingi. Helst því dýrtíðaruppbótin
til 1930, með þeim breytingum,
sem árlega verða á henni sam-
kvæmt vísitölu Hagstoíunnar.
Ný frumvörp.
Einar Árnason flytur frumvarp
um samstarf tryggingastofnana
ríkisins. Erlingur og Páll Herm.
um niðurlagningu þingvallapresta-
kalls. Ing. Bj. og Jörundur Br.
frumv. um fiskiræktarfjelag. Ben.
Sv. og Jör. Br. frumv. um bann
gegn dragnótarveiði í landhelgi.
Erlingur frumv. um útflutnings
gjald af síldarlýsi. Sigurjón Ólafs-
son frumv. um opinber reikn-
ingsskil hlutafjelaga. Hjeðinn frv.
um einkasölu á tóbaki. Jón Baldv.
frumv. um nýbýli. Erlingur og
Jón Baldv. frumv. um atvinnu
leysistryggingar. Nokkrir þing-
menn flytja frumv. um stofnun
fiskiveiðasjóðs. Erl. og lngvar
flytja frumv. um stofnun síldar
bræðslustöðvar á Norðurlandi (og
Austurlandi?). Jafnaðarmenn
Nd. frumv. um einkasölu á salt-
fiski. Margar þingsályktanir eru
fluttar og um ýms efni. þar á
meðal : J. Þorl. um hagskýrslur,
M. Guðm. um aukið lán tilfrysti
húsa og bygging nýs kæliskips.
Erlingur um að niðurfella útflt.-
gjald af síld seldri til Rússlands
1927. Haraldur Guðm. um rík-
iseinkasölu á steinolíu. Haraldur,
Gunnar Sig. og Ásg. Ásg. um
ríkisprentsmiðju.
íhaldsmenn
í Efrideild flytja frumvarp um
atvinnurekstrarlán handa bænd-
um til sjávar og sveita.
Slysfarir.
Fyrir skömmu fórust 2 karl-
menn og 2 konur í snjófióði ut
anvert í Óshlíð á leið til Bol
ungarvíkur. Einn maður bjarg-
aðist lítið skaddaður.
Á togaranum „Surprise“ varð
22 ára piltur fyrir því slysi, að
vír lenti á fætur honum um hnjein
og misti hann báða fæturna.
Drykkjuskapurinn minkar.
Á yfirliti fjármálaráðherra sjest
að tekjur af Áfengisverslun rík-
isins hafa ekki orðið nema 300
þúsund krónur árið 1927, en voru
áætlaðar 500 þúsund kr. Undan-
farin ár hefir hið gagnstæða átt
sjer stað. Sama er að segja um
áfengistollinn. Hann hefir einnig
orðið um 230 þúsund krónum
lægri en hann var áætlaður. Af
þessu er augljóst, að minna hef-
ir verið notað af áfengi Áfengis-
verslunarinnar en umliðin ár. Um
hitt eru engar skýrslur enn, hvort
smygl hafi aukist eða heima-
bruggun áfengis. Þó bendir a|t á
að hvorttveggja hafi fremur mink-
að en aukist. Veldur því ekki
hvað síst sú nauðsynlega ráð-
stöfun dómsmálaráðherra, að
setja tollþjóna víðsvegar um land-
ið til að gæta smygls, og er alt
útlit á, verði löggætsla hert til
muna og bindindisfjelagsskapur
efldur, að takast megi að ráða
að mestu niðurlögum drykkju-
skaparins, án þess að segja upp
Spánarsamningnum, og væri það
vel farið, ef það tækist.
Skilnaður rfkis og kirkju
í Danmörku.
Af dönskum blöðum sjest, að
fyrir þingi Dana liggur nú frum-
varp um skilnað ríkis og kirkju
þar í landi. Er allsterk alda risin
fyrir því máli og beita jafnaðar-
menn sjer einkum fyrir skilnað-
inum. Þó mun málið ekki vera
fullkomið flokksmál neins flokks-
ins. — Nefndin, sem haft hefir
málið til meðferðar, hefir klofn-
að. Leggur meirihluti hennar,
jafnaðarmenn og íhaldsmenn, til
að ríki og kirkja verði aðskilið,
en bændur og frjálslyndir —
minnihlutinn — er því andvígur
og vill halda í kirkjuna. Verði
frumv. samþ. er gert ráð fyrir
því, að þingnefnd verði falið að
koma fram með tillögur um fram-
tíðarskipun kirkjumála.
Björgunarafrek.
Bátur strandaði fyrir skömmu
í stormi og hríð á stórgrýtisurð
neðan við allhátt (30—40 faðma)
bratt hjarg við Vestmannaeyjar.
Báturinn brotnadi, en mennirnir
björguðust upp í urðina. Hugðu
þeir sjer þaðan varla lífs von.
Einn hásetinn á bátnum, Jón
Vigfússon, kleif þá hamarinn,
þrátt fyrir sjóhrakninginn, myrk-
ur og veðurvonsku. Tókst hon-
um að komast upp og ná í menn
til aö bjarga fjelögum sínum.
Er þetta hið mesta afrek, jafn ill
og öll aðstaða var.
Öndvegistíð
undanfarið og er enn um alt
Austurland. Snjólaust að kalla.