Okkar á milli - 01.02.1988, Síða 8
Hver mun svíkja í Sinkiang?
Svik í Sinkiang er mögnuö saga um njósnir
og gagnnjósnir. Atburðarásin er hröö og
æsandi frá upphafi til enda. Höfundurinn er
Adam Hall, en hann er í flokki meö Alistair
MacLean, Hammond Innes og David Morr-
ell, en löunn gefur út bækur þeirra allra.
Hættuleg sendiför
Aöalpersónan er njósnarinn 0uillers, og
þegar sagan hefst hefur hann verið sendir í
nýja og hættulega sendiför. En hver er
raunverulegur tilgangur fararinnar sem yfir-
menn hans hafa sent hann í? Mun hann
komast lifandi á leiðarenda, og ef honum
tekst þaö, hvaö tekur þá viö? 0uillers hefur
aldrei glímt við jafn hættulega andstæð-
inga, og hann kemst fljótt aö raun um, aö
ekki sé alltmeð felldu.
Örlagaspurningin er: Hver mun svíkja í
Sinkiang - og svarið viö henni fæst aðeins
meö því aö lesa þessa spennandi sögu.
Nr.: 1684
Fullt verö: 1.288 kr.
Okkar verö: 1.095 kr.
Bókin um íþróttamann ársins
Arnór Guöjohnsen var kjörinn íþróttamaður
ársins 1987 hér á landi, eins og kunnugt er
af fréttum. Hann flaug hingaö til lands í
einkaþotu ásamt konu sinni, stansaði aö-
eins fáeina klukkutíma til aö taka viö hinum
eftirsótta bikar - og flaug síðan aftur til
Belgíu. Fyrir síðustu jól gaf Skjaldborg út
bókina Arnór bestur í Belgíu - og Veröld
hefur aö sjálfsögöu valið hana sem aukatil-
boö handa félagsmönnum sínum.
Stærsta stundin
„Þetta er stærsta stundin á ferli mínum og
skemmtileg viöbót viö velgengnina síöasta
vor,“ sagöi Arnór viö blaðamenn, þegar
hann hafði hlotið sæmdarheitiö íþrótta-
maður ársins. Hann veröskuldaöi sannar-
lega þennan titil, því aö á árinu 1987 vann
hann það afrek aö veröa belgískur meistari,
markakóngur þarlendu fyrstu deildarinnar
og var auk þess kjörinn besti leikmaður
hennar. Þetta er einstakt í íslenskri íþrótta-
sögu.
Atvinnumaður í tíu ár
Bókina um Arnór er skrifuð af Víöi Sigurðs-
syni fréttamanni. í henni er saga Arnórs
sögö, allt frá frumbernsku á Húsavík til
þeirrar stundar síöastliöiö vor, þegar hann
hampaði æöstu vegsemdum belgísku
knattspyrnunnar. Einnig er sagt frá lækn-
ingu ,,að handan“ og ýmsum fleiri atvikum,
sem ekki hafa komið fram áður. Á tíu ára
ferli sínum hefur Arnór mátt þola mikiö mót-
læti, en jafnan sigrast á erfiðleikunum.
Þetta er saga um dreng, sem átti sér háleit-
an draum og haföi hæfileika og viljastyrktil
aö láta hann rætast.
Nr.: 1685
Fullt verö: 1.994 kr.
Okkar verö: 1.694 kr.
8