Okkar á milli - 01.10.1988, Síða 7
Sjö fallegar málverkabækur
frá Time-Life-útgáfunni
Meistarar
myndlistarinnar
Fjölvi hefur gefið út flokk mál-
verkabóka um meistara mynd-
listarsögunnar; forkunnar fagr-
ar bækur, sem unun er að eiga
og skoða og lesa aftur og aftur.
Time-Life-bókaútgáfan fræga
gefur bækurnar út, en Þor-
steinn Thorarensen hefur þýtt
þær. Alls eru komnar út sjö
bækur í þessum flokki, og Ver-
öld hefur boðið þær að undan-
förnu eina í senn. f maí-blaðinu
buðum við bókina Líf og list
Matisses, og í ágúst-blaðinu
buðum við Leonardó - en báð-
ar þessar bækur eru enn fáan-
legar. Nú bjóðum við svo bók-
ina um Goya, spænska snill-
inginn. Fyrir nokkru var sýnd í
Ríkissjónvarpinu vönduð og
áhrifarík framhaldsmynd um
ævi Goya, sem margir muna ef-
laust eftir. Síðar verða fjórar
bækur til viðbótar boðnar:
Rembrandt, Manet, Van Gogh
og Duchamp. Hér er kjörið
tækifæri til að safna hinum stór-
glæsilegu málverkabókum
Fjölva.
1
i
Fullt verð pr. stk.: 1.480 kr.
Okkarverð pr. stk.: 1.185 kr.
Nr.
Goya 2265
Leonardo 2245
Matisse 2213
OKKAR Á MILLI
7