Okkar á milli - 01.11.1988, Síða 9
- 0
Mikilvægasta skeið mannsins
Barnið okkar- fyrstu sex árin er
víðtækasta og fróðlegasta bók
sem samin hefur verið í seinni
tíð um uppeldi ungra barna. í
henni er fjallað um fyrstu sex
árin, sem eru viðkvæmasta og
mikilvægasta skeið manneskj-
unnar. Þetta er bókin sem for-
eldra hefur lengi vantað.
Handbók
Aftast er uppflettikafli sem auð-
veldar mjög öll not bókarinnar.
Þar er að finna góðar ábending-
ar varðandi skyndihjálp, barna-
sjúkdóma, mataræði og fleira
og einnig leiðbeiningar um
hvert á að snúa sér ef barnið á
við einhvers konar vandamál
að stríða. - Þessi bók er náma
af fróðleik um ábyrgðarmesta
og gjöfulasta skyldustarf sem
lífið hefur upp á að bjóða: að
hjálpa lítilli mannveru fyrstu
sporin.
Vöxtur og þroski
Bókin skiptist í sex aðalkafla
sem fylgja barninu eftir frá fæð-
ingu og fram á forskólaaldur. (
hverjum kafla er fjallað ítarlega
um vöxt og þroska. Hér getum
við lesið um næringu, svefn og
grát; fræðst um hvernig best er
að leysa ýmis hversdagsleg
vandamál eins og að klæða
barnið úr og í, mata það, baða
og svo framvegis.
penelope
Nr.: 2281
Fullt verð: 2.480 kr.
Okkarverð: 2.100 kr.
1
1 J
■
OKKAR Á MILLI
9