Neisti - 09.06.1936, Page 3
‘ KKISTI
5
Fegrun
Siglufjarðar.
Eftir Halldór Kristinsson,
héraðslæknir.
Framh.
Frá fegurðar og heilbrigðissjónar-
miði er fleira athugavert á eyrinni,
en slörkin og forin á götunum.
Pað má benda á mykjuhauga, spýtna-
hrúgur, gjarðajárn, vélahluta, boxa-
rusl o. fl.
Pað kann að vera, að vel barinn
mykjuhaugur gleðji augu búmanna
og jafnvel nef þeirra líka, en kaup-
staðarbúar og ferðalangar kunna
hvorki að meta þá fegurð né angan
við fjölfarnar götur. Einhverjum
kann að finnast það meinsemi, að
sjá þá eigi í friði með mykjuhauga
þeirra, kýr og kindur, en kaup-
staðabúar eru yfirleitt svo hlálega
gjörðir, að þeir kjósa heldur bif-
reiðar og minnisvarða á götum
og gatnamótum — og sannleikurinn
er sá. að það er bara óviðfeldið að
sjá kýr og kindur flækjast innan
um menn eða bifreiðar á fjölförn-
um göium. Skepnur þessar kunna
engar umferðareglur og verða því
oft fyrir árekstrum og meiðslum,
einkum kýrnar, sem eru stirðar og
þunglamalegar í hreyfingum.
Mér er sagt, að skipulagsnefndin
hafi gjört ráð fyrir, að skepnuhöld
og peningshús yrðu aðeins áeinum
stað, framar og ofarlega í bænum,
og að því hlýtur að reka með tím*
anum. en hér teldi eg að fara
mætti milliveg og leyfa, fyrst um
sinn, að hafa peningshús ofan Tún-
götu, — og þó því aðeins að þeim
fylgdu lagarheld haughús, svo
mykjan renni eigi inn á götur og
lóðir annara manna.
Petta var nú um mykjuna og
skepnuhöidin, en um spýtnaruslið
og allt hitt skranið, er það segja,
að sennilega kostaði það hvern lóð-
areigenda 1—2 dagsverk að ræsta
slíkt af lóðum þeirra — og yrði
það þó misjafnt, þyí sumar Jóðir
eru prýðilega hirtar. Pó tímarnir
sép erfiðir, getur þetta síðasttalda
eigi ;yerið ofætlun, eo hinu gæti eg
trúað, að sumir væru orðnir, svo
vanir að sjá þetta rusl fyrir augun-
um, að þeir væru hættir að taka
eftir því og hugsuðu auk þess sem
svo, að fáeinir borðaraftar, tunnu-
gjarðir og mjólkurbox gætu varla
valdið mikilli óhollustu, en ivo er
það nú samt og gæli eg fært þeim
sömu heim sanninn um þetta, efeg
hirti um að skrifa svo langt mál,
en þess gjörist varla þörf, því að
eg býst við að menn trúi þessu og
enginn taki að sér að verja ósóm-
ann — og jafnvel þó sleppt væri
alveg óhollustunni, þá særir þetta
skran svo mikið fegurðartiifinning
manna, að það á engan rétt á því,
að vera í friði. Til þess að sann-
færa menn og sýna þeim hvernig
menningarþjóðir líta á þessa hluti,
skal eg benda á, að fyrir ca. 30
árum var stofnað félag í Kaup-
mannahöfn, sem heitir „Foreningen
tii Hovedstadens Forskonnelse"
(fegrunarfélag höfuðborgarinnar). —
Félag þetta kom á svokallaðri fegr-
unarviku einu sinni á ári og þá viku
vann hver einasti Kaupmannahafn-
arbúi, sem vettlingi gat valdið, eitt-
hvað höfuðstaðnum til snyrtingar, ef
ekki var stærra verkefni fyrir hendi,
þá týndu menn bréfsnuddur af
götunni. Árangurinn af þessari starf-
semi hefir oiðið sá, að Kaupmanna-
höfn er talin ein snyrtilegasta borg
heimsins. Máltækið segir, að marg-
ar hendur vinni létt verk og sést
það ljóslega á þessu dæmi.
Framh.
Ávextir socialismans.
Framh. af 2. síðu.
ríkisstjórn. Hitt er annað mál, að
honum hefir sjálfsagt fundist það
handhægast að ljúga fyrst upp röng-
um forsendum og ræða síðan málið
út frá þeim. Fá reynir þessi maður,
í trausti þess að verkafólkið muni
frekar trúa honum en Siglfirðing,
vegna þess að hann telur sig þess
talsmann, að læða því inn hjá les-
endum, að atvinnuleysið og við-
skiftakreppan sé núverandi ríkis-
stjórn og þá sérstaklega Alþýðu-
flokknum *ð kenna, alveg sama
lygin og Siglfirðingur var með. —
Pessum staðleysum hefir áður ver-
ið fullkomlega hnekkt hér að fram-
an og sýnt fram á það, að núver-
andi; ríkisstjórn hefir reynt að
minnka. atvinnuleysið með stóraukn-
um framlögum til atvinnubóta, með
framlögum, sem íhaldið hefir viljað
fella niður og sfem það fellir niður
éf það fær aðstöðu til þess. Er hart
til þess að vita, að á sama tíma
sem kommúnistar hér á Siglufirði
bjóða Alþýðuflokksmönnum sam-
fylkingu, láta þeir einn af undir-
legátum sínum svívirða forystumenn
Alþýðuflokksins með lygum og
blekkipgum, upptuggnum og jórtr-
uðum úr málgagni íhaldsflokksins
hér á Slglufirði. Skyldi greinarhöf.
telja að afkoma hins vinnandi fólks
hefði verið betri ef íhaldsstjórn hefði
farið með völdin seinustu erfiðu
árin? Eftir grein hans má fyllilega
búast við því.
Greinarhöf, vitnar í ávarp sein-
asta Alþýðusambandsþings, þarsem
tekin er til meðferðar orsök út-
breiðslu hinna fasistisku afla í Ev-
rópu. En af hverju heldur hann
ekki áfram ? Pað er vegna þess, að
þar er réttilega bent á að klofnings-
starfsemi kommúnista veikti svo
aðstöðu alþýðunnar, að hún varð
að lúta í lægra haldi, „án þess að
bjóða upp á nokkra stefnu, er úr
vandanum gæti leyst" . . . „Einka-
hlutverk kommúnistanna er allstað-
ar það, að kalla yfir verkalýðinn
nazismann og hermdarverk hans,
með því að gefa auðvaldinu for-
dæmi um uppivöðslu og ofbeldis-
verk“.
Nokkrir menn hafa fundið mjög
vel til þess, hve klofningur verka-
lýðsins er hættulegur fyrir verka-
lýðinn og Prándur i Götu fyrir
hagsmunabaráttu hins vinnandi fólks.
Peir hafa einnig komið auga á það,
að þessi klofningur verkamanna er
eitt af því sem andstöðufiokkarnir,
íhaldið, treystir mest á. íhaldið vill
hafa verkalýðinn skiftan. klofinn,
ósamtaka. íhaldið veit það, að þess
eina von um að sigra, er ef klofn-
ingur ríkir meðal alþýðunnar. Pess
vegna gerir það allt sem það getur
til þess að viðhalda þessum klofn-
ingi. Foringjar kommúnista hér á
Siglufirði hafa þótzt vera meðsam-
einingu verkalýðsins og vilja sam-
eina verkalýðinn í baráttunni fyrir
bættum lífsskilyrðum. En þeir ættu
að athuga það, að á meðan þeir
láta málgagn sitt og skósveina sína
birta lygar og blekkingará Álþýðu-
flokkinn og forystumenn hans, íhald-
inP tfl hjálpar, geta þeir ekki vænst
þess að alþýðan trúi því, að um
einlaegan samfylkingarhug sé að
ræða.
Socialisti.