Neisti - 23.03.1944, Blaðsíða 3
NEISTI
3
Vinnuhœli
bérklasjúkl-
inga.
—0O0—
Þann 11. þ. m. festi Samband
íslenzkra berklasjúklinga kaup á
talsvert stórri landspildu úr
Reykjalandi í Mosfellssveit, sem
sambandið, landlæknir og vinnu-
hælisnefnd töldu ákjósanlegan
stað fyrir væntanlegt vinnuhæli.
Sameinaði þessi staður svo vel, er
verða má, ágreining um það, hvort
hælið ætti að vera í sveit eða kaup-
stað, því hann er flestum öðrum
fremur „beggja blands“, með tilliti
til legu sinnar í nágrenni Reykja-
víkur. Þarna er bæði heitt og kalt
vatn, rafmagn og byggingarefni
við hendina, auk þess, sem staður-
inn er í vegasambandi.
Meiningin er, að haga bygginga-
f yrirkomulaginu þannig: Byggt
verður eitt aðalhús, þrjár hæðir.
Á fyrstu hæð verður eldhús, borð-
stofa, setustofa, geymslur o. fl. Á
annari hæð verður íbúð hjúkrunar-
konu og ráðskonu, vinnuherbergi
læknis og eitthvað af íbúðarher-
bergjum sjúklinga. Á þriðju hæð
verða eins og tveggja manna íbúð-
arherbergi sjúklinga. Ennfremur
verða byggð 10—20 íbúðarhús með
tveimur til þremur herbergjum og
eldhúsi og loks 4—6 vinnuskálar.
Með tilliti til þess, að byggingar-
kostnaður er nú mjög mikill, verð-
ur aðalbyggingin látin sitja á hak-
anum fyrst um sinn, en smáhýsin
tekin fyrir. Er það gert með gamla
málsháttinp í huga: „Hálfnað er
verk þá hafið er.“
Hér er um mjög mikið menn-
ingarmál að ræða fyrir Islendinga,
og ættu því allir góðir menn að
sameinast um framgang þess. Svo
sem vonlegt var, lét ríkisvaldið
ekki á sér standa um að viður-
kenna framtakssemi sambands
sjúklinganna, sem vitanlega finna
bezt allra, hvar skórinn kreppir að
í þessu efni. Lög um skattfrelsi
gjafa til vinnuhælis berklasjúkl-
inga voru samþykkt á alþingi, og
hefur síðan komið allmikill skriður
á fjárframlög til byggingarinnar.
Samtals mun nú vera búið að
safna nokkuð yfir hálfa milljón
króna til fyrirtækisins, en miklu
betur má, ef duga skal. Ættu all-
ir íslendingar, sem aflögufærir eru
fjárhagslega, að minnast þess, og
láta byggingarsjóð vinnuhælis
berklasjúklinga mörgu öðru frem-
ur sitja fyrir, þegar þeir „leggja
í guðskistuna.“
B. Þ. Kr.
Áki „margra manna
maki“ og „kjafta-
snakk“ Ásgríms.
Smágrein sem birtist nýlega í
þessu blaði hefur auðsjáanlega
farið mjög í taugarnar á ritstjóra
,,Mjölnis“. í þeirri grein. var vikið
að þeim taumlausa og um leið ó-
svífna áróðri Mjölnis að bera það á
borð fyrir lesendur sína að Áki
Jakobsson væri fyrsti fulltrúinn,
sem alþýða þessa lands hefði sent
á þing. Jafnframt var vikið að
ýmsum breytingum sem orðið hafa
á afstöðu kommúnista til „bitlinga*
og ýmis þess fleira sem til skamms
tíma hefur verið aðalsynd Alþýðu-
flokksins, en virðist nú eiga að
vera höfuðdjásn Kommúnista á-
samt hinni „borgaralegu virðingu“
sem þeir heimta að þeim sé sýnd.
Ritstjórinn temur sér svo sem ekki
neitt „kjaftasnakk" þegar hann
svarar þessari grein, nei ekki
aldeilis! Hann segir að vísu að al-
þýðan muni að einhverju leyti hafa
greitt þeim Finni, Haraldi og Emil
atkvæði. Þeir eru nú allir á þingi
enn. Allir íslendingar nema kanske
ritstjórinn veit að fylgi sitt hafa
þeir frá alþýðu þeirra bæja þar
sem þeir eru í kjöri' Það hryggir
sjálfsagt þenna ritstjóra að vera
með sjálfum sér að viðurkenna, að
ekkert bendir ennþá í þá átt að
það fylgi réni. Þá segist hann nú
vita ýmislegt um starfsemi þessara
manna en hann ætlar að ,,HLÍFA“
Alþýðuflokknum við að nefna það.
Hann er miskunsamur maður hann
Ásgrímur. Mikla umhyggju ber
hann nú fyrir kratabroddunum
„blessaður“. Það er nú líka tæp-
lega von að hann vilji vera að hrjá
þessa skipreka menn, sem hann
hefur í bálkum Mjölnis, „þurkað
út“ af „tilverusviðinu“, svona
tvisvar þrisvar á ári seinustu árin,
en sem eru svo furðu lífseigir að
þeir leifa sér ennþá að vera til að
angra Ásgrím og aðra sálufélaga
hans við og við.
Þá er nú að skýra frá fram-
kvæmdum Áka og því sem hann
hefur gert fyrir alþýðu þessa lands
og það er nú ekkert smáræði. Hann
Áki, hann hefur nú gert meira! en
Finnur, já miklu meira! fyrir al-
þýðu þessa lands. Hann hefur
meira að segja gert meira en Finn-
ur og allir hinir Alþýðuflokks þing
mennirnir til samans! Þegar
tekið er tillit til þess að Áki hefur
nú aðeins setið á þingi í tæp tvö ár,
en Alþýðuflokksþingmenn í tvo
tugi ára, þá hlýtur það ekki að
vera neitt smáræði, sem blessaður
maðurinn hefur rutt úr sér á þess-
um tíma. En hann Ásgrímur, hann
birtir nú samt ekki neitt af öllum
þessum miklu velgerningum Áka
í garð alþýðunnar. Kannski er
hann líka að „hlífa“ honum, eða
þá alþýðunni, að fá fulla vitneskju
um þessi ósköp, sem maðurinn hef-
ur gert henni til hagsbóta, bæði
í verkalýðsmálum, félagsmálum og
ekki sízt í stríðsgróðamálum. Vér
bíðum og sjáum hvað setur. Það
er þó alltaf munur fyrir hann Ás-
grím, að geta talið upp allar „fram
kvæmdirnar“ hans Áka, heldur en
að vera með þetta bölvað „kjafta-
snakk“, sem enginn tekur mark á.
x +y.
SKÍÐAMÖT
Um síðustu helgi hófst innan-
bæjarmót í skíðakeppni. Fór gang-
an fram á sunnudag og voru úrslit
í hinum ýmsu flokkum sem hér
segir:
20—32 ára fl.
1. Ásgrímur Stefánsson,
32 mín. 57 sek.
2. Jón Þorsteinsson,
33. mín. 47 sek.
3. Jónas Ásgeirsson,
34 mín. og 00 sek.
4. Ingimundur Sæmundsson,
34 mín. 14 sek.
5. Steinn Símonarson,
35 mín. 33 sek.
6. Sigurgeir Þórarinsson,
37 mín. 05 sek.
7. Einar Ólafsson,
37 mm. 28 sek.
8. Alfreð Jónsson,
41 mín. 36 sek.
Göngubraut var 12 km.
17, 18 og 19 ára fl.
1. Haraldur Pálsson,
30 mín. 32 sek.
2. Valtýr Jónasson,
35 mín. 28 sek.
Göngubraut var 12 km og sama
braut og hjá 20—32 ára fl.
13 og 14 ára fl.
1. Sverrir Pálsson,
16. mín. 50 sek.
2. Hafsteinn Sæmundsson,
18 mín. 31 sek.
3. Einar Þórarinsson,
19 mín. 06 sek.
4. Gísli þorsteinsson,
19 mz'n. 21 sek.
5. Skarphéðinn Guðmundsson,
19 mín. 48 sek.
6. Jón Sveinsson,
19 mín. 52 sek.
7. Ólafur Árnason,
20 mín. 15 sek.
8. Kristinn Jónsson,
20 mín. 42 sek.
Vegalengd göngunnar var
4 km.
11 og 12 ára flokki
1. Örn Norðdal,
7 mín. 38 sek.
2. Svavar Færsetli,
7 mz'n. 58 sek.
3. Sigfús A. Sveinsson,
9 mín. 20 sek.
4. Ari Rögnvaldsson,
9 mín. 30 sek.
5. Sveinn Jakobsson,
9 mín. 30 sek.
6. Hákon Hertervig,
9 mín. 30 sek.
7. Hafliði Sigurðsson,
9 mín. 58 sek.
8. Ólafur Sveinsson,
10 mín. 00 sek.
9. Birgir Schiöth,
10 mín. 07 sek.
Lengd göngubrautar var 2l/2
kílómeter.
Mótið fór fram við Skíðafell á
Saurbæjarási. Göngu var frestað
í 9—10 ára flokki og 15—16 ára
flokki. Frost var og skafrenning-
ur, svo fauk í slóð og torveldaði
mjög fyrir þeim, sem fremstir
gengu. Árangur verður þó.að telj-
ast mjög góður. Gangan í fyrsta
flokki er meðal annars einn liður-
inn af f jórum í keppninni um hinn
forkunnar fagra og eigulega grip,
bikarinn, sem Skíðaborg gaf til
handa þeim skíðamanni, sem
hæsta stigatölu hlýtur, samanlagt,
í göngu, stökki, svigi og bruni. —
Blaðinu er þó ekki kunnugt um
reglugerðina fyrir bikarnum.
Yfir 50 skíðamenn utan af landi
hafa þegar látið umrita sig í lands-
mót skíðámanna, sem fram fer á
Siglufirði núna um páskana, að
öllu forfallalausu.
—★—
MOLAR
Biskup Islands,
herra Sigurgeir Sigurðsson, hef-
ur undanfarið verið á ferðalagi um
byggðir Islendinga í Vesturheimi.
Fór hann héðan sem fulltrúi ís-
lenzku ríkisstjórnarinnar til þess
að sitja þing Þjóðræknisfélagsins
í boði þess, vegna aldarfjórðungs-
afmælis félagsins. Hefur heimsókn
biskups hvarvetna vakið gleði og
hrifningu og verður án efa til þess
að styrkja þau bönd, sem binda
saman Islendinga austan hafs og
vestan.
landflóttamenn í
Svíþjóð, er nú hafin hér á landi
fyrir forgöngu ýmissa mætra
manna, er hafa fyrir nokkru síðan
gefið út ávarp til Islendinga í til-
efni af þessu. Hvernig eða að hve
miklu leyti þessi fjársöfnun fer
fram út um land, er enn ekki vit-
að, en vonandi ber söfnunin sem
beztan árangur.
Umsóknir
um skip frá Svíþjóð hafa nú bor-
izt ríkisstjórninni hvaðanæva af
landinu, samtals um eða yfir 200.
Gert er ráð fyrir, að skipin verði
Fjársöfnun
fyrir dai