Rödd verkalýðsins - 01.06.1930, Síða 3
RÖDD VERKALÝÐSINS
Þúsund ára ánauð
Flokksbræöur þeirra i Noregi, Sví-
þjóö og Finnlandi studdu þetta af
öllum mætti. Fréttaritari blaSsins
„Deutsche Tageszeitung“ skrifar á
þessa leið: „ÞaS er staöreynd, aö
sósíaldemókratar á Noröurlöndum,
sérstaklega í Sví])jóö og Finnlandi,
vöruðu vi8 algerSri afvopnun."
Danski sósíaldemókrataflokkurinn
hefir ekki einungis svikiö kosninga-
loforö sín, heldur einnig barist fyrir
því í blööum sínurn, aö Danmörk
gengi í bandalagið gegn Rússlandi.
I „Socialdemokraten", aðalinál-
gagni dönsku sósíaldemókratanna,
skrifaöi nýlega Iiolger Nielsen, hers-
höföingi, sem er ráöunautur „verka-
mannastjórnarinnar“ í hernaöarmál-
um, grein, sem fletti töluvert ofan af
svikráðum flokksins. Iiann talar þar
ófeiminn um afstööu Danmerkur og
þátttöku í næsta stríöi viö Eystrasalt.
Kemst hann þar að þeirri niðurstöðu,
að ráðstjórnarlýðveldin séu eina stör-
veldið viö Eystrasalt, þó að þau hafi
ekki nema eina höfn og stutta strand-
lengju, og að Danmörk verði þess
vegna aö undirbúa sig á þeim grund-
velli, að næsta stríð verði á milli
auövaldsríkja Vestur-Evrópu og Ráö-
stjórnar-Rússlands. Hann segir m. a.:
,.í deilu milli stórvelda Vestur-
F.vrópu og Rússlands mun Englend-
ingum takast að flytja meiri hluta
fiota síns inn í Eystrasalt, áður en
Rússum tekst aö sigla sínum flota að
siglingaleiðinni við Kattegat, þá geta
Rússar x mesta lagi reynt að brjótast
með hluta af ílota sínum g.egn unx
sundin og þá mun okkur takast aö
reka þá á flótta, ef þeir reyna að
skeröa hlutleysi vort á nokkurn hátt.
Aftur á móti hafa Vesturríkin engan
hag af því að ráðast á okkur, ef viö
látum okkur nægja að gera skyldur
okkar sem verðir við sundin.“
Skýrari andstööu gegn verka-
mannalýöveldinu Rússlandi er ekki
hægt aö taka. Hlutleysi Danmerkur
í herferðinni gegn Rússlandi er þá
í því falið, að hleypa enskum og
frakkneskum flota inn í Eystrasalt
og aö verja sundin fyrir Vesturríkin
gegn Rússum. Að þessu yfirveguðu
verður skiljanlegt af hvaöa ástæöum
sósíáldemókratarnir dönsku leggja á
það áherslu að styrkja flotann og
strandvígin meir en landherinn.
Sósíaldemókratarnir dönsku eru að
þessu leyti ekkert frábrigði skoðana-
lu'æöra sinna í öðrum löndum. Mac-
Donald rekur dyggilega erindi yfir-
drotnunarstefnu auðvaldsins enska,
Paul Boncour hinn frakkneski berst
gegn afvopnunartillögunum rúss-
nesku, „jafnaðarmanna“-stjórnin síð-
asta í Þýskalandi sá um byggingu
bryndreka fyrir Þjóðabandalagið,
pólski sósíaldemókrataflokkurinn
greiðir atkvæði með fjárframlögum
til. styrjaldarundir'búnings Pilsudskis
gegn Rússum og nú bætast hinir
dönsku við í lestina. Þannig er þá 2.
alþjóðasamband jafnaðarmanna af-
hjúpað sem verkfæri í höndum auð-
valdsins.
Þjóðsöngnr Þýskalands.
Öður auðvaldsins.
Um ástandið í Þýskalandi skrifar
þýskur verkamaður í esperantista-
blaðiö „Sennaciulo":
,,Deutschland, Deutschland úber
alles!“ (Þýskaland, Þýskaland öllu
æðra“). Þetta er söngurinn, sem not-
aður var 1914, til þess að æsa með
þýska verkamenn, ]>egar á þvx þurfti
að halda að fá þá til þess að berjast
á móti „óvinunum". Eftir byltinguna
(i Þýskalandi) ákvað þáverandi ríkis-
forseti, Ebert, (sósíaldemókrat), að
hann skyldi framvegis vera þjóðsönt-
ur Þýskalands, en nú enx það aðallegá
fascistar og afturhaldsmenn, seixi
syngja hann, en svona hljóðar söng-
urinn:
í Þýskalandi eru h. u. b. 60 miljón-
ir íbúa, en þar af eru 400 þús. brjál-
nðir, 900 þús. meö alls konar krampa-
veiki (epileptikosi), 371 þús. farlama
menn, 35 þús. mál- og heyrnarlausir,
36 ])ús. blindir, 1 milj. berklaveikir,
300 þús. með víneitrun og 71 þúsund
Á íslandi er all á tjá og tundri.
Júnímánuður er upp runninn árið
1930. Hús eru þvegin, fáguð og
prýdd, uý hús bygð, nýir vegir
lagðir, gert við gamla, brýr bygð-
ar. A Þingvöllum, hinum forn-
fræga slað, eru menn önnum kafn-
ir og hafa verið um nokkurt skeið.
Hundruð tjaldbúða eru reist, svo
að þar er orðin stórborg á fám
döguni, er áður voru berir vellir.
Fjárhirslur rikisins, sem árlega
liafa verið fyllar úr vösum al-
þýðu eru nú í einu vetfangi þur.
ausnar. Er fénu varið til fram-
búðar hagsbóta þeirra, sem fyrir
þvi unnu? Er þvi varið til þess að
veita alþýðu þessa lands varanleg
framtíðarþægindi? Er því varið til
nauðsynlegra samgöngubóta, er
verði komandi kynslóðum að
ævarandi gagni? Er því varið til
þess að bæta lireysin, sem alþýða
þessa lands liefir orðið að búa í
sér og sinum til heilsuspillis, I
stuttu máli: er því varið til þess
að bæta lífskjör þess liluta þjóðar-
innar, sem um þúsund ár hefir
borið lxana uppi með vinnu sinni
en aldrei haft málungi matar hvað
þá önnur lífsþægindi? Nei. Síður
en svo.
Hátíðahöld fara í hönd, hin
mestu í sögu þessa lands. Borgara-
stéttin á óskabarn, sem nú er lOOO
ára. Afmæli þess skal nú haldið
hátíðlegt og ekkert til sparað.
Þetta óskabarn borgaranna er al-
þingi eða samkunda sú, er árlega
sker úr um það með hverjum
hætti alþýðan skuli þrautpínd þar
til stofnunin næst kemur saman.
í þúsund ár hefir alþingi haft
þetta lilutverk. I þúsund ár hefir
það int þetta ldutverk sitt sam-
viskusamlega af liendi.
I fyrstu liafði alþingi tvenns
konar starf með höndum,löggjaf-
arstarf og dómsstarf, og skiftist
samkvæmt því i lögréttu og dóma.
Lögréttan samþykti lög þau, er
gilda skyldu fyrir alla landsmenn.
Hún var þann veg skipuð, að al-’
þýða manna féklc þar engu ráðið,
en goðarnir, þ. e. auðugustu menn
landsins voru sjálfkjörnir, og
völdu með sér þá er þeim best
líkaði. Eftir að kristni komst á og
biskupastólar voru settir á stofn,
voru biskuparnir einnig sjálf-
kjörnir í lögréttuna. Rétt er að
skýra nokkru nánar afstöðu goð-
anna til alþýðu manna. Þeir voru
venjulega auðugustu menn sins
héraðs og höfðu mjög mikið vald
yfir þingmönnum sinum. Réttur
alþýðunnar var sá einn að hver
frjáls maður gat sjálfur valið,
hverjum goðanum liann vildi
fylgja, en skyldur lians við goðann
voru hinar sömu liver sem goðinn
var. Alþýðan hafði engan íhlutun-
arrétt um það, hverjir voru goðar,
því goðorðin gengu ýmist í erfðir
eða kaupum og sölum sem hver
önnur verslunarvara. Það er ofur
skiljanlegt, að auðugir menn vildu
kaupa goðorð, þar sem slík staða
færði þeim bæði völd og auð.
Þingmenn goðans voru skyldir að
fylgja honum að málum, skyldir
að ríða með honum til alþingis eða
unglingar á opinberum, betrunarheim-
ilum ; á síðastliðnu ári frömdu 12 þús.
sjálfsmorð, til þess aö losna við hið
þýska lúxuslíf. Lágt reiknað er að 5
miljónir rnanna séu húsnæðislausar,
9 miljónir eiga ekki rúm til að sofa
í. Það sofa oft 3 og jafnvel 5 i sama
rúmi. 1 miljón manna eru stöðugt at-
vinnulausir, en 2 miljónir hafa aldrei
fullan vinnudag, en þeir sem vinna,
verða að þræla i 10—13 stundir á
dag. Vissulega er ekki hægt aö
htxgsa sér aumara ástand. Fascistarn-
ir hrópa: Deutschland, Deutschland
txber alles! Við hrópurn: Verið við-
búnir þegar heimsbyltingin kemur!
=====
greiða ella þingfararkaup til uppi-
halds um þingtímann þeim, sem
fóru.
Það gefur að skilja að oft völd-
ust i stöður þessar hinir óhlut-
vöndustu ribbaldar, sem notuðu
þær óspart til þess að auðga sjálfa
sig á kostnað allra þeirra, er þeir
sáu sér fært að etja kappi við. Eu
sameiginlegt með þeim öllum var
að þeir sjálfir unnu ekkert og
lifðu af auði þeim er alþýðan fram-
leiddi með vinnu sinni.
Dómsstarfi alþingis réðu goð-
arnir engu siður en löggjafarstarf-
inu. Fyrst voru á alþingi fjórir
dómar, sinn fyrir hvern lands-
fjórðung og tilnefndu goðarnir úr
hverjum fjórðungi dómendur í
dóm síns fjórðungs. Siðar var
settur á stofn fimti dómurinn, er
var fyrir alt landið og noklcurs-
konar hæstiréttur fyrir þau mál,
er eigi varð lokið í fjórðungsdóm-
unum, en auk þeirra slcyldi sækja
i hann viss mál önnur, svo sem
mútur o. þ. li. Þetta ákvæði um
fimtardóminn sýnir ljóslega að
mútur liafa þá þegar gert allmik-
ið vart við sig enda var það svo að
liðsafli og auður réði úrslitum
mála í dómunum á alþingi hinu
forna. Þess var því varla að vænta
að fátæk alþýða ætli þangað mik-
ið erindi með mál sín, enda fara
litlar sögur af því. Sagnirnar um
starf alþingis til forna skýra því
nær eingöngu frá deilum liöfð-
ingjanna um það, hver þeirra
skyldi draga til sin auð þann, er
alþýðan daglega skapaði með
striti sínu.
Timarnir liðu. Kristin kirkja og
klerkavald hennar færðis i auk-
ana og tók smám saman að standa
uppi i liárinu á liinum veraldlegu
höfðingjum. En eigi tók þá betra
við fyrir alþýðunni, því óhætt er
að fullyrða að svo aumt sem
ástand hennar var áður kastaði
nú tólfunum fyrir alvöru. Á bisk-
upastólunum sátu ofl hinir arg-
vítugustu mannhundar, er notuðu
sér fáfræði manna og ístöðuleysi
á hinn óskammfeilnasta hátt og
með hótunum um helvítis kvalir
og jafnvel líkamlegum píningum
sölsuðu undir sig og kirkjuna
hvern þann pening, er menn gátu
við sig losað. Þegar svo ekki
var unt að flá meira i svipinn, var
tekið til þess að leggja á kvaðir er
menn skyldu inna af hendi á ó-
komnum árum til þess að kaupa á
sig frið.
Til þess í stuttu máli að lýsa
hörmungum alþýðu á 12. og 13.
öld vil eg leyfa mér að taka liér
upp kafla úr íslandssögu Jóns J.
Aðils og mun óliætt að fullyrða, að
þar er ekkert ofsagt.
„Flestir af stórhöfðingjum á
Sturlungaöldinni liktust miklu
meira grimmum víkingum og her-
konungum en friðsömum stjórn-
endum. Þeir áttu i sífeldum óeirð-
um, drotnuðu yfir sveitum sinum
með ströngu hervaldi og gengu á
undan öðrum í því að traðka lög-
um og rétti. Eins og geta má nærri,
voru kjör alþýðu ekki sem örugg-
ust, eða öfundsverðust undir
stjórn þessara stórbokka. Þeir
kvöddu bændur og búalið i ófrið
og leiðangur á öllum tímum árs,
sópuðu studum öllum vopnfærum
mönnum frá nauðsynjastörfum
umhábjargræðistimann og teymdu
þá með sér í aðra landsf jói'ðunga,
héldu þeim i langvinnum setum
fjarri heimilum sínum og þröngv-
uðu þeim til hestavarðarþjónustu
á lieiðum og öræfum, jafnvel um
hávetur. Þeir lögðu allskonar gjöld
og kvaðir á Iiéraðsbúa, og tóku af
þeim stórsektir, ef þeir gengu um
stundarsakir til lilýðni við aðra
liöfðingja, jafnvel þött þeir hefðu
gert það nauðugir og látið kúgast
til þess. Um öryggi eða löghclgi
manna á meðal var ekki lengur að
ræða i þessum gjöreyðinga ófriði.
Höfðingjarnir fóru eins og logi
yfir akur með óaldarfloklvum sín-
um og öfluðu með harðneskju,
það er að segja með ránum og
gripdeildum, vista og annara lífs-
nauðsynja, þegar all var upp etið
heima, og tóku þá af lifi, sem
dirfðust að verja fé sitt og reisa
rönd við þessum ófögnuði. En liitt
var þó lakast, að þessi ófriður
snerisl ekki um hag og heill al-
mennings eða landsins i heild
sinni, heldur aðeins um hagsmuni
og völd einstakra höfðingja.“
Slikir voru þeir mehn er réðu
störfum alþingis á þessum tíma og
má þá nærri geta hvílík stofnun
það var.
Með gamla sáttmála gekk ís-
land á hönd Noregskonungi árið
1262. Það var ekki alþýðan lield-
ur höfðingjarnir sem ákváðu það,
og mun óhætt að fullyrða, að hver
þeirra vænti sér styrks frá kon-
ungsvaldinu, ef það næði hér fót-
festu.
Eftir því sem konungsvaldinu
vex fiskur um hrygg, dvínar veg-
semd alþingis og má segja að eft-
ir miðja 16. ökl þorðu menn ekki
i móti að mæla þeim boðum sem
frá konungi komu. Þar með var
alþingi i rauninni ekki lengur
nein löggjafarsamkoma og í sjálfu
sér hégómi einn, þar til það að lok-
um var afnumið árið 1800.
Um miðja 18. öld fara hinir
fyrstu borgarar að skjóta upp
höfði hér á landi og er Skúli Magn-
ússon landfógeti brautryðjandi i
þeim efnum. Hann liafði mikinn
áhuga fyrir þvi að koma hér á fót
innlendum iðnaði og hugðist með
því að bjarga landsmönnuin frá
eymd þeirri, er þeir um langt skeið
liöfðu verið ofurseldir. Tilraunir
lians mishepnuðust, en hér sem
annarstaðar fór þó svo, að ekki
var unt að kæfa viðleitni borgara-
stéttarinnar til að komast til valda.
Ýmsir menn, sem stundað liöfðu
nám úti i löndum og kyntust við
það högum annara þjóða, drukku
i sig kenningar frönsku byltinga-
mannanna. Jafnframt opnuðust
augu þeirra smátt og smátt fyrir
þeim möguleikum, sem islensk
borgarastétt ætti i vændum og
reyndu eftir megni að vekja hana
lil meðvitundar um þá. Og á 19.
öld hefst valdabarátta borgara-
stéttarinnar fyrir alvöru og sem
endaði með því, að hún hrifsaði
völdin úr liöndum konungs.
Með valdtöku borgarastéttar-
innar á Islandi liefst þróun auð-
valdsins. Fyrirtækin voru í fyrstu
smá og dreifð, liöfðu litið fjár-
magn og áttu eins og sagt er erfitt
uppdráttar. Eitt af lífsskilyrðum
borgaranna var að fá komið á fót
banka, er lagt gæti fé til fyrirtækj-
anna, enda var Landsbankinn
slofnaður 1885, og íslandsbanki
1902. Með peningastofnunum þess-
um var lagður grundvöllur að
stórútgerð þeirri er siðan hefir
þróast og safnað miklum hluta
landsmanna í bæina, þar sem
þeim er nauðugur einn kostur að
selja eigendum framleiðslutækj-
anna vinnuafl sitt.
Starfi alþingis á hinum síðustu
tiinum þarf i sjálfu sér ekki að
lýsa; það hefir í stuttu máli gengið
út á það, að efla liag borgarastétt-
arinnar á allan hátt á kostnað al-
þýðu, sem enn sem fyr hefir feng-
ið það í sinn hlut að strita fyrir
alla landsmenn en þó mest fyrir
þá, sem alt eiga og öllu ráða. Sið-
an alþýðan féklc fulltrúa á alþingi
er hvorttveggja, að þeir hafa illa
rekið mál hennar og lítið orðið á-
gengt, enda er það víst, að réttar-
hætur sínar sækir alþýðan ekki 1
sali alþingis, heldur verður hún að
taka þær sjálf. Smátt og smátt
opnast augu hinnar vinnandi
stéttar fyrir þessum sannleika og
þegar lnin liefir skilið liann til
fulls fær engin borgarastétt rönd
við reist hinu æðandi stormflóði
byltingarinnar, sem nú nálgast
liröðum fetum.
Degi auðvaldsins i heiminum er
tekið að halla og einnig á íslandi
dregur að sólsetri þess. Áður langt
um líður hrynur lxið borgaraléga
þjóðsi "lag t S1 gruima fyrir á-
hlaupum ,: iia, hinnar
uppvaxaudi iar, sem auð-
valdið sjálft i; - pað.
Enn er íslensku rklýður ekki
til fulls vaknaður til mðovitundar
um köllun sína. Enn eru augu hans
blinduð, svo blinduð, að hann jafn-
vel væntir sér góðs af alþingi,
væntir þess að vinna fulltrúa borg-
aranna á sitt mál svo að þeir með
góðu veiti lionum réttarbætur þær,
er hann fer fram á. íslenskir
verkamenn! Látið ekki blekkja
ykkur lengur. Hátiðaliöld þau,
sem í hönd fara eru minningarhá-
tið borgaranna, sem nú hrósa
happi yfir þvi að hafa lialdið ykk-
ur i ánauð í þúsund ár. Þau eru
kinnhestur borgarastéttarinnar til
liins vinnandi lýðs í landinu. Mun-
ið henni kinnhestinn og látið hann
verða til þess að þið liefjist handa
gegn kúgurunum. Margfaldið bar-
áttuna, treystið samtök ykkar og
linnið ekki fyr en fullum sigri er
náð.
Niður með alþingishátíðina!
Niður með auðvaldsskipulagið
og rikisstofnanir þess!
Lifi samtök hins vinnandi lýðs!
Lifi stéttabaráttan!
Lifi heimsbyltingin!
Lifi ráðsstjórnarbandaríki allra
landa!
Til Islenskrar aljiýðu.
Bréf frá „Vinum Ráðstjórnarlýðveld-
anna“ í Bretlandi.
Kæru félagar!
26. júní veröur mikið um dýrðir
hjá borgarastétt þjóðar ykkar. Þá
heldur hún hátiðlegt þúsund ára af-
mæli Alþingis. Hartnær öllum rikis-
stjórnum heimsins er boðið að senda
fulltrúa á hátíðina. En ráðstjórn
verkamanna- og bændalýðveldisins er
ekki boöið.
Það er mjög eftirtektarvert fyrir
hinar vinnandi stéttir um heim allan,
að stjórn borgaranna á íslandi skuli
ekki bjóöa Ráðstjórnarlýðveldinu aö
taka þátt i Alþingishátiðinni. Það,
sem margt annað, sýnir greinilega,
hvernig stórveldastefnan reyiiir lað
einangra Ráöstjórnarlýðveldið, í þeim
tilgangi að undirbúa hernaðarárás á
hendur því. Það sýnir og, að skipa
á Islandi í fjandmannaflokk Ráö-
stjórnarlýðveldisins.
Þessi blábei-a ókurteisi gaghvart
Ráðstjórnarríkinu er nú í fullu sam-
ræmi við þá baráttu, er geisað hefir
í helstu stórveldunum gegn Ráð-
stjórnarlýðveldinu fimm undanfarna
mánuði.
Hún er sama eðlis og „baráttan
geg'n trúarbragðaofsóknunum“, er
hafin-var af páfanum og klerkastétt
allra trúarfnragðaflokka; sama eðlis
og ,,bankaseðlafölsunarsamsærið“;
sama eðlis og hin ægilega tilraun, er
gerð var nýlega til að myrða embætt-
ismenn Ráðstjórnarríkisins i Warsjá
og er að eins einn liður í heimsbar-
áttu boi-gai'aflokkanna gegn Ráð-
stjórnarríkinu, til að einangra Ráðstj.
eítir mætti og undirbúa herferð á
hendur Rússlandi.
Hin stórstíga þróun iðnaðar og vél-
nýtingar, árangur sjö-tíma vinnu-
dagsins, hin stöðuga framför í fram-
kvæmd jafnaðarstefnunnar, hinn öri
vöxtur salmyrkjulandbúnaðarins,
sem er nær því að útrýma stórbænd-
unum, kveikja vonir hjá verkalýð
allra landa. Þessum framförum er náð
á þeint tíma, þegar auðvaldið reynir
i ráðleysisfálmi að verjast hruni með
geisilegri vélaþi’óun á kostnað lifs-
kjara verkalýðsins, þegar ægileg
borgarastyrjöld geisar i Indlandi og
byltingaólgan eykst í nýlendum og
meðal undirokaðra þjóða og miljón-
ii* vinnandi lýðs standa í pólitískum
verkföllum. í stuttu máli, þegar auð-
valdsríkin eru rekin til aö undirbúa
stríð til að skifta að nýju heims-
markaðinum.
Einn sjötti hluti jarðar er vernd-
aður frá arðráni auðvaldsins. U. S.
S. R. (Ráðstjórnárlýðveldið) er vígi
hinnar komandi þjóðfélagsbyltingar.