Neisti


Neisti - 23.12.1959, Qupperneq 10

Neisti - 23.12.1959, Qupperneq 10
N E I S T I Vilja menn eða ekki ? í útvarpsumræðunum í þessum mán- uði gerði Gylfi Þ. Gíslason, mennta- málaráðherra m.a. að umræðuefni ástæðu þess, að Alþýðuflokkurinn og Sjálfstæðisflokkurinn mynduðu ríkisstjórn saman að þessu sinni. Gylfi 1». Gíslason Gylfi benti á, að þessir tveir flokkar hefðu ekki myndað stjóm saman einir áður. Hins vegar hefðu Sjálfstæðisfiokkurinn og Framsóknarflokkurinn farið með stjómartaumana 1950—1956, en það samstanf hefði elcki gefið það góða raun, að áhugi hefði verið á að endurtaka það nú. Ekki hefði heldur verið áhugi á að endur- reisa vinstri stjórn. Sú stjórn hefði verið hugsuð sem einlæg og alvarleg tilraun til þess að koma á traustu samstarfi milli ríkis- valdsins og stéttasamtakanna í því skyni að koma efnahagsmál- um þjóðarinnar á heilbrigðan gmndvöll. Við vonuðum, sagði Gylfi, að með því að sýna stéttar- samtökunum fyllsta trúnað gæti tekizt að afla stuðnings þeirra við það, sem gera þurfti og tryggja vinnufrið í landinu. Þessar vonir bmgðust því miður. Innan Al- þýðubandalagsins reyndust þau öfl ná yfirhöndinni, sem ekki vildu sjálf takast á við erfiðleik- ana, heldur láta aðra gera það, og geta deilt á og gagnrýnt í voniim fylgisaukningu. Gylfi sagði, að vegna framkomu kommúnista í efnahagsmálunum i vinstri stjórninni hefði ekki verið unnt að mynda stjórn Alþýðu- flokks, Aiþýðubandalags og Sjálf- stæðisflokks og af ýmsum ástæð- um hefði myndun stjómar Sjálf- stæðisflokks, Framsóknarfiokks og Alþýðuflokks ekki verið hugs- anleg. Eini raunhæfi möguleikinn, sem hefði verið eftir, hefði því verið samviima AJlþýðuflokksins og Sjálfstæðisflokksms. Var sú samvinna ekki óeðlileg eins og á stóð. Sjálfstæðisflokkurinn hafði stutt minnihlutastjórn Alþýðu- flokksins og í kosningunum s.l. sumar og í haust reyndist Sjálf- stæðisflokkurinn hafa svipaða skoðun á lausn ýmissa mikilvægra viðfangsefna dagsins og Alþýðu- flokkurinn hafði, sagði Gylfi. 1 rauninni var það skylda þesáara flokka að mynda stjórn. Það var skylda þeirra við þjóðina að ganga til samstarfs og gera tilraun til þess að leysa þann vanda, sem steðjað hefir að þjóðinni aMt síð- an 1 stríðslok og engri flokka- samsteypu hefir enn tekizt að leysa. Samvinna þessara tveggja flokka, Alþýðuflokks og Sjáif- stæðisflokks, var eini raunhæfi möguleikinn, sem hafði ekki enn verið reyndur. Þess vegna var það ekki aðeins eðhlegt, heldur beinlínis skylt að reyna hann. ÓLÍK GRUNDVALLAR- SJÓNARMIÐ Það væri þó skortur á hrein- skilni og raunsæi að reyna vegna þessarar stjórnarsamvinnu að draga f jöður yfir það, að Alþýðu- flokkurinn og Sjálfstæðisflokkur- inn eru ólíkir flokkar, aðhyllast ólík sjónarmið varðandi ýmis grundvallaratriði þjóðmála. Það, sem skilur Alþýðuflokkinn og Sjálfstæðisflokkinn er hið sama og 'hvarvetna í hinum frjálsa heimi skilur lýðræðissinnaða vinstri menn og lýðræðissinnaða hægri menn. En það er afar áríð- andi að þjóðin geri sér ljóst, að meginvandamálið, sem nú er við að etja í íslenzkum þjóðmálum, er allt annars eðlis en þau viðfangs- efni, sem hafa skipt mönnum og skipta mönnum í hægri og vinstri menn. Þjóðin er nú á vegi stödd eins og maður, sem um langt skeið hefir lifað um efni fram og þess vegna safnað skuldum. Ef hann er ekki kærulaus og sinnu- lítill um hag sinn, heldur gæddur ábyrgðartilfinningu og fyrir- hyggju, þá heldur hann þessu ekki áfram, þangað til lánstrausti hans er lokið og hann verður neyddur til þess að ibreyta til. Hann dreg- ur úr eyðslu sinni eins og með þarf til þess að hann eyði ekki meiru en hann aflar eða að minnsta kosti safni ekki meiri skuldum en hann getur staðið undir með eðhlegum hætti af tekjum sínum. Þetta verður hann að gera, hvort sem hann er vinstri sinnaður eða hægri sinnaður, og alveg hið sama á nú við um ís- lenzku þjóðina. Hún hefir lifað um efni fram, og það hefir leitt til þess, að hún hefir safnað er- lendis svo miklum skulaum til stutts tíma, að hún þarf á næst- unni að nota um einn tíunda hluta allra gjaldeyristekna sinna til þess að standa undir þessum skuldum. Þetta verður að hætta. Um það þarf vinstri og hægri menn ekki að greina á. 1 afstöð- unni til þessa máls er spurningin ekki um það, hvort menn aðhyh- ast vinstri sinnuð eða hæðri sinn- uð sjónarmið í þjóðfélagsmálum, helaur hitt hvort menn hafa næg- an skilning á vandamálinu og nægan kjark til þess að ráðast gegn þvi. Spumingin er um það, hvort menn vilja lát reka á reið- anum eða kunna fótum sínum forráð, hvort menn vilja vera ráð- deildarmenn eða óráðsíumenn, sagði Gylfi Þ. Gíslason. Á vfð og dreif Vr Daglegir fundir Ríkisstjórnin heldur um þessar mundir langa fundi á hverjum degi, og eru ýmsir sérfræðingar í efnahags- og atvinnumálum tíðir gestir á þessum fundum. — Neisti hefur fregnað, að stjórnin sé á fundmn þessum að ræða hina ýmsu þætti þeirra tillagna um nýtt efnahagskerfi, sem hún hyggst leggja fyrir alþingi. Enda þótt hljótt sé á yfirborð- inu í stjórnmálaheiminum, er þannig mikið unnið að undirbún- ingi þeirra höfuðmála, sem Al- þingi væntanlega fær til meðferð- ar, er það kemur saman um eða eftir miðjan janúarmánuð. Bendir því al-lt til, að það verði viðburða- ríkt þing, sem haldið verður d janúar, febrúar og marz næsta ár. — Nú þegar hafa 7—8 sér- fræðingar, hagfræðingar og sér- fróðir menn um atvinnugreinar þjóðarinnar, tekið þátt í undir- búningsstarfi stjórnarinnar. — Má búast við, að margir fleiri verði kallaðir til ráða og starfa, áður en verkinu lýkur og tillögur stjóm arinnar verða fullbúnar. ★ Alræðisvald fram- leiðsluráðs afnumið Það veit enginn enn, hvað verð- ur um verðlag landbúnaðarafurða, sagði Sæmundur Ólafsson í fróð- legu framsöguerndi á fundi í Al- þýðuflokksfélagi Reykjavíkur fyrir nokkru. Hann skýrði þar frá þeim viðræðum, sem leiddu til endurreisnar sex-mannanefndar- innar og þeirra ibreytinga, sem gerðar voru á skipan þeirra mála. Lagði hann sérstaka áherzlu á, að alræðisvald framleiðsluráðs landbúnaðarins til að ákveða dreif ingarkostnað búvöru, og staðfest var af hæstarétti, ihafi verið af- numið. Nú hafi fulltrúar neyt- enda ítök um ákvörðun milliliða- kostnaðarins. — Þá taldi hann mikilsvert, að framvegis em því takmörk sett, hve mikinn hluta útflutnings landbúnaðarafurða megi verðtryggja, þótt þau mörk séu rúm. Sæmundur sagði, að stjómar- andstaða Framsóknarflokksins hefði í þessu máli farið eins bless unarlega út um þúfur og unnt er. Hann kvað fulltrúa neytenda alls ekki vera í baráttu við bænd- ur landsins, heldur milhliðina og burgeisana í bændastétt. Kaup- Gosdrykklr til jilanna APPELSlNDRYKKUR 24/2 flöskur, innihald kr. 70. ★ SÓDAVATN 24/2 flöskur, inniiiald kr. 60,00 Umbúðir lánaðar Efnagerð Siglufjarðar h.f. Sími 128 — Siglufirði staðafólkið væri af bændum kom- ið og hefði mikla samúð með lífi og lífsbaráttu bændastéttarinnar. * Málbófið stóð í 50 klukkustundir Framsóknarmenn og kommún- istar héldu uppi málþófi í rúm- lega 50 klukkustundir á tveggja vikna tíma, sem alþingi sat, áður en það samþykkti að fresta störf- um sínum. Allan þennan tíma töl- uðu stjórnarandstæðingar um sama málið: þingfrestun, störf og stefnu ríkisstjórnarinnar. Málþófið gekk svo langt, að sómamaður eins og Páll Þor- steinsson gat ckki varizt því að skella upp úr og hlæja að mála- lengingum sjálfs sín í efri deild. Þá hló öll deildin með. Og í neðri deild rakti Skúli Guðmundsson ættir ráðherranna aftur í aldir og fór með fornsögur til að eyða tím- anum. Þingfundir stóðu samtals ná- lega 64 klukkustundir. Af þeim tíma töluðu fylgismenn ríkisstjóm arinnar rúmlega átta stundir, og áætla má, að atkvæðagreiðslur og önnur formsatriði hafi tekið um sex stundir. Þá er eftir ræðu- tími stjómarandstöðunnar: 50 st. Sennilegt er, að Einar Olgeirs- son ihafi einn talað samtals lengri tíma en allir 33 þingmenn stjóm- arfiokkanna. — Eysteinn Jónsson hefur vafalaust talað í 5—6 stund ir samtals. Það teljast mikil þingstörf að halda fundi í 64 stundir á tveim vikum. Til samanburðar má geta þess, að í fyrrahaust stóðu allir fundir alþingis frá 10. október itil 30. desember aðeins 45 stundir og 16 mínútur. Mestallan þann tíma sat þingið aðgerðalítið, meðan Her mann Jónasson þáv. forsætisráð- herra, var að semja við verkalýðs samtökin og ýmsa aðra aðila en þingið um lausn brýnustu vanda- mála þjóðarinnar. Framsóknar- menn og kommúnistar kölluðu það ekki að vanvirða alþingi og sáu þá enga hættu fyrir þingræð- ið. Þeir töluðu þá ekki um valda- töku Hitlers. Það er ekki sama, hver á heldur.

x

Neisti

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Neisti
https://timarit.is/publication/848

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.