Ljósmæðrablaðið

Årgang

Ljósmæðrablaðið - 01.01.1935, Side 6

Ljósmæðrablaðið - 01.01.1935, Side 6
4 LJOSMÆtíRABLAÐlÐ ?ð feld var niður 10. grein þess og tölusetning annarra greina nállúrlega breylt samkvæmt því. Var þessi breyt- ing li! stórra bóla, því að sú grein var með öllu ófær, eins og tekið var fram í umsögn stjórnar Ljómæðrafélagsins, sem getið var i síðasta blaði. Að öðru leyti var frv. samþykt í sinni upprunalegu mynd og þannig afgreitt sem lög frá Alþingi. Hvað snertir annars undirtektir þær, sem frumvar])ið hefir fengið utan þings, mætti meðal annars geta, að á aðalfundi Bandalags kvenna í Reykjavík, höldnum 5. og 6. nóv. s.l., voru gerðar samþyklir um frumvarpið og fóru þær mjög i sömu átt og tillögur Ljósmæðrafélagsins. Þar sem annars staðar hefir verið opinberlega um mál- ið rætt, hafa víðast komið i ljós sömu skoðanir, að mönn- um þykir mjög varhugaverð síðasta málsgrein !). gr. Það verður því eigi séð af þeim umræðum, sem orðið hafa um málið til þessa, að konur aðliyllist yfirleitt þá stefnu, að fóstureyðingar skuli vera lögleiddar eftir rúss- neskri fyrirmynd, meðfram eða mest fyrir það, að möð- urinni ekki þóknast að ganga með og fæða sitt barn. Er það vel farið, að sá hugsunarháttur virðist enn eiga formælendur fáa meðal íslenskra kvenna, enda teljum vér þjóð vorri sísl þörf á því, að menn leggi sig í líma til þess, að l’inna upp ráð, lil þess að hindra eðlilega fjölgun hennar. Ljósmæðurnar liafa flestum öðrum fremur ástæðu og tækifæri lil þess, að láta þessi mál að einhverju leyti til sín taka. Oft leila konurnar fyrst til ljósmæðranna eftir ráðum og baldkvæmum tillögum viðvíkjandi ýmsu, sem viðkemur kynferðismálum, ])æði þegar þær eru van- færar og þegar öðru vísi stendur á og einhvern vanda ber að höndum. Það cr þvi nauðsynlegt, að ljósmæður athugi vel öll þessi mál og cr þess miklu meiri þörf nú en nokkru sinni áður, þegar á oss skella slíkir brotsjóar sem fóstureyðingaralda sú er, sem nú flæðir yfir lönd-

x

Ljósmæðrablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ljósmæðrablaðið
https://timarit.is/publication/862

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.