Ljósmæðrablaðið - 01.01.1935, Síða 10
8
LJ ObAl Æ.ÐRABLAÐIÐ
limir, það sern að l>er er höfuð, sem stendur fast i grind-
aropi. Uppi í legbojtfliii, bæði til hægri og vinstri, finnast
barðir, iireyfanlegir fósturlilutar. Við nánari atbuguu
virðist gela verið úm þríbura að ræða.
Þegar nú konan er komin í rúmið, fær hún hríða-
aukandi sprautu, og að bálftíma liðnum er komin góð
léttasótt. Kl. 11,15 fæðist lifandi drengur, 1700 gr.
Kl. 11,40 rennur legvatn i annað sinn, og er talsvert
mikið, 5 minútum síðar fæðist annar lifandi drengur í
sitjandastöðu, 1600 gr. á ])vngd. Finst nú greinilega að
þriðja barn er eftir, og kl. 12,05 springur þriðja fornistið
og koma þá sem næst 5 lílrar af legvatni. Kl. 12,15
í'æðist í fótstöðu þriðji drengurinn, 1000 gr. Börnin
fæddust öll án sérslakrar hjálpar, grétu strax sem þau
komu i heiminn, og blu vel út. Móðurinni fanst sér
mikið létta við hverja fæðingu og var bin glaðasta yfir
drengjunum sínum.
Hálftíma eftir fæðingu siðasta drengsins fæddist fylgj-
an sjálfkrafa og með heilum bclgjum. Legið dró sig vel
•saman. —■ Engin blóðlát.
Ljásmæðraskólinn.
Honum var sagt upp 30. sept. s. 1. Útskrifuðust þaðan
þessar Ijósmæður, og fara í umdæmi sem hér segir:
Aðalbeiður Halldórsdóttir, Hrunamannabrepp, Árncss.
Ástríður Sigurðardóttir, Lundareykjadalsbérað, Borgfj.
Guðbjörg Guðjónsdóttir, Arnarneslireppsumd., Eyjafjs.
Herdís Sigtryggsdóttir, Reykdælaumdæmi, S.-Þing.
Ingibjörg H. Guðmundsdóttir, Geirdalsumd., Barðastr.s.
Pólína Sveinsdóttir, Flatey, Breiðafirði.
Ragnbeiður Guðmundsdóltir, Patreksfjarðarumdæmi.
Að loknu prófi gengu þær allar i Ljósmæðrafél. Island.
Má vænta að þær verði góðar félagssystur og óskar blað-
ið þeim allra lieilla i framtíðinni fyrir land og þjóð.
J