Ljósmæðrablaðið - 01.09.1938, Qupperneq 4
50
LJObMÆ-ÐRABLAÐIÐ
þá einkum, að laun ljósmæðra hækkuðu, og hefir senni-
lega sumum dottið í liug, að sanngjarnt væri að láta fé-
lagið njóta þess þannig, að borga þó þetta litla árstillag
skilvíslega.
Bráðlega var námstimi ljósmæðra lengdur úr 6 upp í
9 mánuði og siðast upp í árlangt nám. Og fl. o. fl. mætti
telja til umbóta.
Ljósmæðrum landsins varð ljósl, að þetla var félags-
skapnum að þakka. En þær sáu einnig að þetta fékst fyrir
aðgerðir félagsins án þess að ljósmæður almennt gerðu
nokkurn hlut nema að horga árstillög sin, þær sem það
gerðu. Og fengu þær meðal annars Ljósmæðrablaðið i
aðra liönd fyrir það.
Það liefir verið vaninn, að fela stjórninni allar fram-
kvæmdir á störfum félagsins, og er það eðlilegt þar sem
i hana þurfti að skipa ljósmæður úr Reykjavik, þvi aðrar
gálu ekki náð svo oft sem þurfti hvor til annarar, og auk
þess var það sem gera þurfti, þannig vaxið mál, að oftast
varð að ná til Alþingis með það, og ýta þar á eftir fram-
kvæmdunum. Að sjálfsögðu var það formaður félagsins
sem har allan liita og þunga dagsins í þessum málum og
barðist fyrir þeim. Þetta hefir orðið að vana, að ljósmæð-
ur þurfa ekkert um þetta að liugsa. Stjórnin framkvæmdi
all — umbætur fengust án þess fleiri þyrftu þar nokkuð
að gera. Þetta virtist alt fara vel. — Og alt starf var ein-
göngu miðað við velferð og framgangsheill ljósmæðra-
stéttarinnar.
Ljósmæður yfirleitt, hæði innan félags og utan, viður-
kenna muninn sem á er orðinn um kjör þeirra. Og nú
niundi engin þeirra vilja missa Ljósmæðrafélagið. Eða
vildi nokkur ljósmóðir vinna starf silt fyrir sömu laun
og áður voru: Kr. 70—75 um árið, kr. 3.00 fyrir l'æðingar-
hjálp og kr. 1.00 á dag meðan verið er hjá konunni. —
Sennilega liefði nú samt þar við setið, hefði ekkert ljós-
mæðrafélag verið hér til.