Ljósmæðrablaðið

Árgangur

Ljósmæðrablaðið - 01.09.1938, Blaðsíða 5

Ljósmæðrablaðið - 01.09.1938, Blaðsíða 5
LJOSMÆÐRABLAÐIÐ 51 En ekkert er svo vel úr garði gert, livorki maður né málefni, að ekki þurfi það sinna muna með til lífsvið- halds. Það er viðurkent: að „maðurinn lifi ekki af einu saman brauði“. Og það verður að viðurkennast, að ekk- ert félag getur lifað af „einni saman stjórn“! Þar verða allir félagskraftar að leggja fram sinn lífsneistann liver. Þó margir séu litlir og lýsi skamt, þá eru þeir þó altaf lífsmerki þaðan sem þeir koma. Yið getum litast um innan Ljósmæðrafélagsins hvern- ig samtökin eru (þó eg viti að þau eru þar ekki mikið verri en sumstaðar gerist í félögum). Eg hefi minst á, að illa gengur eða liefir gengið með árslillög frá sumum ljós- mæðrum og mættu þær þó láta félagið njóta þess, að laun- in liafa hækkað fyrir aðgerðir þess. Þá er hlaðið. Mjög sjaldan fær það nokkurt orð eða efni frá ljósmæðrum yfirleitt. Gott ef það er lesið, og því er haldið til haga. Þá er sú sjálfsagða krafa, að koma iá aðalfund félagsins. Það er engin von að fjöldi Ijósmæðra mæti árlega í Reykjavík. En það veit eg og get fært rök fyrir, að mikið gæti það verið hetra en nú er. Margar ljósmæður koma árlega til Reykjavíkur, einkum á vorin, og eru jafnvel í bænum sjálfa fundardagana, án þess að líta þar inn. En láta annað, ljósmóðui'starfi óviðkomandi, sitja í fyrirrúmi. Það liefir verið gert mikið til þess að samræma sem best fundardaga aðalfundar við lieppilegar ferðir að og frá Reykjavik, og einnig hvenær hentugast mundi fyrir Ijósmæður, seixi hefðu fyrir sveitahúskap að sjá, að taka sig upp frá því. Fundardagar hafa verið látnir leika á timanum frá því uxxx miðjan júni til byrjun júlí, eftir óslc fjölda félags- kvenna, en það virðist alt koma í sanxa stað niður. Sú tilbreytni var gerð að gefa skemtiferð í saxxxbandi við fundinn. En fundarkonur töldu sig þá oft liafa öðru að sinna, t. d. kaffihoði hjá vinkonu o. þ. h. Ferðalög þessi

x

Ljósmæðrablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ljósmæðrablaðið
https://timarit.is/publication/862

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.