Ljósmæðrablaðið

Ukioqatigiit

Ljósmæðrablaðið - 01.09.1938, Qupperneq 10

Ljósmæðrablaðið - 01.09.1938, Qupperneq 10
56 LJÓSMÆÐRABLAÐIÐ verið haldið fram. í aðalatriðum má segja, að þessi lög hafi nokkra þýðingu, að þvi leyti, að koma i veg fyrir úthreiðslu sjúkdóma, en til þess verður að rann- saka hvert einstakt tilfelli út af fyrir sig, og ekki má gera sér of háar vonir um að takast megi að útrýma sjúkdómum á þennan hátt. Það er fróðlegt að athuga, hvað reynslan liefir kent mönnum i öðrum löndum um gagnsemi þessara laga og iiver áhrif þau liafa Jiaft á endurbætur kynstofns- ins. Á 2. alþjóðaþingi fyrir sálarrækt (mentalhygiene) í París sumarið 1937, skýrði dr. Howard C. Taylor frá Bandarikjunum frá fróðlegum athugunum um þessi mál, sem hér skal birtur úrdráttur úr. Löggjöf Bandaríkjanna á þessu sviði er mjög ólík i hinum ýmsu ríkjum, þar sem löggjafarvald hinná ein- stöku ríkja, en ekki sambandsþingið i Washington, á- kveður iivort sett skuli lög um þessi efni eða ekki. í Bandaríkjunum er því engin sameiginleg löggjöf til í þessum efnum, en eins og dr. Taylor sagði, fara 48 ó- líkar þjóðfélagstilraunir fram innan Bandaríkjanna. Yegna hinna ólíku kynflokka, hinna ýmsu trúar- hragða og ólíka menningarástaiids ríkjanna er löggjöf- in harla misjöfn á þessu sviði. 30 ríki af 48 hafa nú samþykt lög um vananir, en hin 18 hafa ennþá engin lög um þetta. í þessum 30 ríkjum hefir lögunum verið heitt mjög misjafnt, sum- staðar hafa aðeins verið gerðar örfáar aðgerðir, en ann- arsstaðar, t. d. í Kaliforníu, liafa þær verið gerðar i þúsundatali. I þeim ríkjum, þar sem meiri hluti íhú- anna er kaþólskur, hafa lögin ekki verið framkvæmd, þó að þau hafi verið i gildi. Lög um þessi efni eru nú yfir 40 ára gömul í Bandaríkjunum, þar sem fyrsta lagafrumvarpið — sem að vísu var ekki samþykt —* kom fram í ríkinu Michigan 1897. Samt sem áður voru

x

Ljósmæðrablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ljósmæðrablaðið
https://timarit.is/publication/862

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.