Ljósmæðrablaðið

Árgangur

Ljósmæðrablaðið - 01.09.1938, Blaðsíða 13

Ljósmæðrablaðið - 01.09.1938, Blaðsíða 13
LJOSMÆÐRABLAÐIÐ 59 dóminn arfgengan eða hættn á því, og þá verður að berjst á móti honum án þess að taka tillit til annars og ekki láta vankunnáttu, úrræðaleysi, kjarkleysi, ó- sjálfstæði og ótta eða hleypidóma stjórn- og trúmála, vantandi skilning eða illan vilja og vorkunnlátssemi hafa álirif á sig. Það er þessi lögboðna vönun, sem einkennir þýsku lögin, og sem margir telja óliæfa, eftir þeirri takmörk- uðu þekkingu, sem enn er fengin á arfgengi mannlegra eiginleika. Ein afleiðing slikra laga, sem fyrirskipar læknum að segja til sjúklinga, sem þeir telja að kunni að ganga með arfgenga geðsjúkdóma, lilýtur að vera sú, að sjúk- lingur forðast að leita til læknis af ótta við að verða gerður ófrjór, og sjúkdómurinn, sem hægt væri að hæta, ef í tíma væri að gert, getur versnað svo, að ekki verði ráðin hót á ástandinu, þegar hann loks neyðist til að leita læknisins. Ef borin eru saman ummæli próf. Riidins frá þing- inu 1937 og unnnæli lians frá 1. alþjóðaþingi sálarrækt- armanna i Washington 1930, kemur í ljós, að hann hafði þá allt aðra skoðun á þessu máli, þar sem hann segir: Eg vil persónulega ekki fallast á nein þvingunarlög. Þvert á móti lít ég svo á, að hægt sé að koma nauð- synlegum endurbótum til leiðar með réttilegu upplýs- ingarstarfi og vingjarnlegri fræðslu í kynferðis- og hjú- skaparmálum, sem kynbóta- og sálsýkisfræðingum væri falið að annast. Ef þetta ekki djrgði, væri hugsanlegt, að fólkið tæki sjálft til sinna ráða og setti lög um þessi mál af frjálsum vilja. Reynslan í Ivaliforniu hefir þó kent mönnum, að aukin uppfræðsla og haganlegt fvr- irkomulag á þessum málum er spor í áttina til frek- ari endurbóta. Engar stórvægilegar uppgölvanir liafa á siðustu 7 ár- um verið gerðar með tilliti til erfða á geðsjúkdómum

x

Ljósmæðrablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ljósmæðrablaðið
https://timarit.is/publication/862

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.