Ljósmæðrablaðið

Årgang

Ljósmæðrablaðið - 01.01.1944, Side 6

Ljósmæðrablaðið - 01.01.1944, Side 6
4 LJÓSMÆÐRABLAÐIÐ meðul í mat, og þá sérstaklega ekki í mjólk, þar sem það getur annars orðið til þess, að barnið fái andúð á matnum eða mjólkinni og fáist ekki til þess að borða hann í langan tíma á eftir. Laxerolíu má gefa á margan hátt. T. d. er gott að hella dálitlu af sterkum ávaxtasafa (appelsínusafa) í glas, síðan laxerolíuskammtinum og svo aftur ávaxtasafa. Einnig er gott að taka laxerolíuna inn snarpheita. Aftur á móti er tilgangslaust að taka laxerolíu inn í vatni, þar sem hún samlagast því ekki. Aðeins mjög fá meðul er nauðsynlegt að hafa að stað- aldri í lyfjasafni heimilisins. Allmargir eru farnir að nota óþarflega mikið kvalastillandi meðul og svefnmeðul. Á undanförnum árum hafa læknar orðið nokkuð varir við slæmar afleiðingar af notkun þessara lyf ja, og þá sérstak- lega af svefnmeðulunum. Enginn ætti að taka slík meðul reglulega, nema að læknisráði. Hvaða lyf er þá ráðlegt að hafa til á heimilinu? Flestum f jölskyldum er nauðsynlegt að eiga eitthvert hægðameðal,' sem hægt er að grípa til, þegar þörf krefur. Ekki er þó vert að nota hægðameðal að staðaldri við lang- varandi harðlífi, án þess að leita fyrst læknisráða. Oft getur staðið svo á, að stórhættulegt er að taka inn hægða- meðul. Einkum er það svo, þegar um botnlangabólgu er að ræða. 1 byrjun er botnlangabólgan oft meinlaus og stað- bundin við sjálfan botnlangann, sem er mjög lítið líffæri, er ekki virðist hafa neina verulega þýðingu fyrir líkamann. Bólgan í botnlanganum getur aftur á móti aukizt mjög fljótt, svo að ígerð myndast, og þá er alltaf hætt við, að botnlanginn springi. Springi botnlanginn, fara gröftur og óhreinindi út í holið á milli garnanna og valda þar líf- himnubólgu. Við inntöku hægðameðala kemst mjög mikil hreyfing á garnirnar, og þar af leiðir aukin hætta á því, að botnlanginn springi, ef um bólgu er að ræða. Þess vegna á aldrei að taka hægðameðal við miklum verkjum eða sár-

x

Ljósmæðrablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ljósmæðrablaðið
https://timarit.is/publication/862

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.