Ljósmæðrablaðið

Årgang

Ljósmæðrablaðið - 01.01.1944, Side 9

Ljósmæðrablaðið - 01.01.1944, Side 9
LJÓSMÆÐRABLAÐIÐ 7 að notum við brjóstsviða og öðrum óþægindum, sem stafa af of miklum sýrum í maganum. Þau lyf, sem hér hefur verið minnzt á, þ. e. a. s. sótt- hreinsandi lyf, kvalastillandi lyf og hægðalyf, er raunveru- lega allt, sem nauðsynlegt er að hafa í lyfjaskápnum. Auk lyfjanna eiga auðvitað að vera til sáraumbúðir, svo að hægt sé að búa um sár til bráðabirgða. Sérstaklega á það við í sveitum, þar sem oft er langt til læknis. Með aukinni notkun véla og bifreiða og með auknum ýþróttum hafa slysfarir færzt í vöxt, og er því nauðsynlegt fyrir hvert heimili að hafa alltaf við höndina einfaldar sáraumbúðir. Það sem fyrst og fremst þarf til þess að geta búið um sár til bráðabirgða, eru sótthreinsuð bómull, heftiplástur og skæri, sem ber að geyma í lyf jaskápnum og ekki að nota til annara þarfa. Til þess að binda um rispur og smáskurði er gott að nota heftiplástursumbúðir (Hansaplast), sem fást tilbúnar í lyf jabúðum og eru þannig gerðar, að sótthreinsuð sáragrisja er fastlímd á ræmu af heftiplástri. Allir ættu að vita, að einfaldasta aðferðin til þess að stöðva blæðingu úr smásárum á hörundinu er einungis að þrýsta á sárið með sótthreinsaðri sáragrisju eða bómull. í kaflanum um „Hjálp í viðlögum“ er nánar lýst, hvernig stöðva á blóðrás og hvernig búa á um sár. Auk sáraumbúðanna er nauðsynlegt, að til sé á heimilinu hægðaskál, sem þægilegt er að nota handa sjúklingi, sem má ekki stíga í fæturna, stólpípa með tilheyrandi gúmmí- slöngu og könnu, hitamælir, hitapoki og meðalamæliglas. Þennan stutta kafla um lyf jasafn heimilisins er viðeig- andi að enda á eftirfarandi aðvörun: Geymið ekki neins konar eiturlyf í lyfjaskápnum, og þá sérstaklega salmíak, karbólsýru, sublimat, lýsól, strykninpillur eða kransaugna- dropa. Geymið aldrei ópíum eða morfín í lyf jaskápnum, þar sem allir geta náð í það. Geymið ekki gömul meðul, eftir að

x

Ljósmæðrablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ljósmæðrablaðið
https://timarit.is/publication/862

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.