Ljósmæðrablaðið - 01.01.1944, Side 8
6
LJÓSMÆÐRABLAÐIÐ
eftir lyfseðli. Það er óhætt að fullyrða, að viturlegast er
að láta ekki neitt af þessum lyf jum vera í lyf jaskápnum,
og ætti aldrei að nota þau, nema að læknisráði.
Af kvalastillandi lyfjum er acetylsalicylsýran, sem
venjulega gengur undir nafninu aspirín það lyf, sem er
langmest notað. Að svo miklu leyti sem menn vita, er
aspirínið tiltölulega skaðlaust. Til er þó, að einstaka mað-
ur hafi ofnæmi gagnvart aspiríni og þoli jafnvel ekki að
taka það í mjög smáum skömmtum.
Flest þeirra meðala, sem notuð eru til svæfinga og deyf-
inga, þar á meðal morfín og ópíum, eru mjög sterk, og
ætti því enginn að nota slík meðul nema að læknisráði,
og yfirleitt má segja, að þau lyf, sem gefin eru þannig,
að þeim er dælt inn í holdið, eigi ekki að finnast í lyfja-
skápnum. Það kemur fyrir, að sjúklingum, sem ganga
með langvarandi sjúkdóm, og þá sérstaklega sykursýki-
sjúklingum, er kennt að dæla lyfjum inn sjálfir. Þessir
sjúklingar ættu þó að geyma meðalið og sprautuna á sér-
stökum stað, en ekki í lyfjaskápnum, sem allt heimilis-
fólkið hefur aðgang að.
Margs konar sótthreinsandi meðul eru notuð útvortis,
og þá frekast til þess að sótthreinsa húðina í kringum
sár og til þess að skola með háls og munn. Þau meðul
sem mest eru notuð hér á landi til þess að sótthreinsa
húðina, eru joðupplausn, spritt, lysól og sublimatupp-
lausn. Bórsýruupplausn er nokkuð sótthreinsandi og er
ágæt til notkunar fyrir almenning til þess að þvo óhrein-
indi úr sárum og því um líkt.
Bezt er að geyma bórsýruna óuppleysta í skömmtum,
mátulega stórum (20 g.) til þess að leysa upp í hálfum
lítir af vatni, og búa til nýja upplausn í hvert skipti, sem
á þarf að halda.
1 lyfjasafninu má ennfremur gjarnan vera til natríum-
bicarbonat, svokallað natron eða sódaduft, sem oft kemur