Ljósmæðrablaðið

Árgangur

Ljósmæðrablaðið - 01.09.1958, Blaðsíða 4

Ljósmæðrablaðið - 01.09.1958, Blaðsíða 4
50 LJÓSMÆÐRABLAÐIÐ mjög hægt. Dánartala bama eftir fyrstu viku eða mánuð hefur aftur á móti lækkað örar en menn gerðu sér vonir um. Ljósmæður verða að horfast í augu við þá staðreynd, að jafnvel á Vesturlöndum lýkur einni þungun af hverjum 30—40 eðhlegum með dauða bamsins. 1 Hollandi nemur dánartala bama í sambandi við fæð- ingu ekki fullum 10% af heildardánartölu landsmanna. Tala andvanafæddra er næstum eins há og dánartala af völdum slysa í öllum aldursflokkum. Eins og kunnugt er, er það skyldustarf ljósmóðurinnar að sinna móður og barni í 8—10 daga að aflokinni fæðingu. Stendur hún þar sem kvenmaður betur að vígi en læknamir, sem i sumum löndum annast að mestu störf ljósmæðra, en láta þar numið staðar, er læknisstörfunum sleppir. Ljósmóðirin sinnir sem sé um sængurkonurnar. Ætt- ingjar og grannkonur hjálpa oft til við heimilisstörfin, en ekki er það þó nærri alltaf, og væri því nauðsynlegt, að konurnar gætu átt aðgang að heimilishjálp, á meðan þær liggja á sæng. 1 Hollandi er skipulögð svonefnd mæðra- hjálp, þ. e. a. s. aðstoð vel kunnandi kvenna á heimilum sængurkvenna. Árangur þessa fyrirkomulags er sá, að dánartala bama í sambandi við fæðingu hefur færzt nið- ur í 15%0, sem er ein hin lægsta nú á tímum. Nauðsyn ber til að auka og bæta gæzlu sængurkvenna í heimahúsum, ekki sízt vegna þess að komið hefur í ljós, að fyrirtímaburðir, sem vega 1800 g við fæðingu, geta engu síður dafnað í heimahúsum en á sjúkrahúsum. En þar eð fæðing fyrir tíma er ein aðaldánarorsök þessara barna — þyngd þeirra við fæðingu er 1800—2500 g — er meðferð þeirra eitt vandamesta hlutverk ljósmæðranna. En jafnvel þegar ekkert sérstakt er að, er sameinað Ijós- mæðrastarf og mæðrahjálp bezta lausnin, þegar um fæð- ingu í heimahúsum er að ræða. Á sjúkrahúsum og fæðingarheimilum vinna Ijósmæður oTtast undir eftirliti lækna. Þær eru þar meðlimir hjúkr- unarliðsins, en hjúkrunarkonur sinna þar að jafnaði bami

x

Ljósmæðrablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ljósmæðrablaðið
https://timarit.is/publication/862

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.