Freyr

Árgangur

Freyr - 01.01.1904, Blaðsíða 9

Freyr - 01.01.1904, Blaðsíða 9
FRE YE. 5 þyrfti við —, ættu þeir þá að geta fengið frá Búnaðarfélagi íslands eða úr landssjóði, en binda skyldi styrkveitinguna þó því skilyrði, að eigendur eða umráðamenn livers stóðhests taki aðeins til göngu með honum hæfilega margar hryssur af sama kyni og stóðhesturinu er, og ekki yngri hryssur en 4 ára eða eldri en 15. í Noregi hefur það reynst nauðsynlegt, að láta allar hryssurnar í einu að vorinu til stóð- hestanna, því að þeir eru svo vondir við þær, sem síðar koma, að þeim er ekki vært. Af því að okkar hestar eru svo geðgóðir, er þó líklegt að skifta mætti um hryssur, og þyrfti þá ekki að hafa nema að- eins fáar hryssur hjá hverjum stóðhesti í senn, og skift-a svo um með 9 daga millibili — en hryss urn ar eru álægj a einu sinni áhverjum 9dög- um. Mættu stóðhestagirðingarnar þá vera miklu minni en ella og væri þá bezt að hafa þær skamt frá bæjum. Tilraun í þessa átt verður gerð næsta sumar í Arnessýslu; keypti ég í sumar fallegan graðhest af reiðhestakyni, 5 vetra gamlan, er ég seldi síðar tveim bændum í Arnessýslu; ætla þeir að hafa hann næsta sumar í girð- ingu heima við með 3—4 hryssum í senn, og skifta svo um með 9 daga millibili, eftir því sem þörf gjörist. Er vonandi, að fleiri reyni slíkt hið sama, enda mun nú kom inn tími til að gjört sé eitthvað sérlegt til þess að kynbóta- reglugj örðir þ ær,sem samdar eru og sam- þyktar fyrir hverja sýslu landsíns, verði eitthvað annað en dauður bókstafur; það er lítil bót í því að til séu lög og reglur, ef ekkert er nm það hirt, að far- ið sé eftir þeim, enda mun og aðal- árangur slíkra ráð- stafana sá, að ala upp hjá almenn- ingi lítilsvirðingu á lögum og reglum yfirleitt. Guðjón Guðmundsson. Góðir gripir. 39. númeri „ísafoldar11 fyrra ár er stuttlega skýrt frá sýningum þeim, sem haldnar voru siðastliðið sumar í Deildartungu í Borgar- firði og að Sólheimum í Hreppum. Þar er meðal annars getið um að óðalsbóndi Agúst Helgason í Birtingaholti hafi hlotið fyrstu verð- laun fyrir rautt naut 11/2 árs, og Sveinn bóndi Einarsson í Syðralangholti fyrir rauða kú, 9 vetra. Myndir af gripum þessum birtast nú hér til fróð- leiks og skemtunar lesendum „Ereys“. Nautið, sera myndin er af, er nú eign „Naut- griparæktunarfélags Hreppamanna11, sem stofn- að var i haust. Það er í meðalagi stórt og samsvarar sér vel. Eins og myndin sýnir er það kollótt, hauslítið, með beinum löngum hrygg, lágfætt og með mjúkri og lausri húð

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.