Freyr - 01.01.1904, Side 12
8
FREYR.
seinast í mánuðinum. Af gömlum runnum eru
elztu greinarnar skornar burtu, einkum þær
kræklóttu. Elestir rótarangar sem sprottið
kafa sumarið áður eru skornir burt, nokkrum
þeim kröftngustu er haldið eftir. Svo má einn-
ig skera nokkuð af endum ársgreinanna, þeim
lengstu. Um leið og ribsið er skorið, má taka
aí því gróðrarkvisti til gróðursetningar, þegar
jörð er orðin þýð. Til þess eru valdar eins
árs greinar og kvistirnir skornir 6—10 þuml.
langir; eru þeir svo bundnir í knippi og geymd-
ir í köldu húsi og byrgðir, svo loft leiki ekki um
þá, eða þeir eru huldir mold, þangi eða öðru rusli,
úti þar sem sól nær eigi að skína. I þessum
mánuði má sá gulrófnafræi úti, en til þess ættu
þá helzt að hafa verið undirbúin beð að haust-
inu. Helzt skyldi sætt lagi að sá, þegar þýð
moldarskán er ofan á klakanum. Nú má aftur
sá bjómkáli í kassa ; það sprettur seinna en
hitt, sem áður var sáð og heldur sér lengur
fram eftir haustinu. Sömuleiðis er nú sáð topp-
káli ogblöðrukáli og ýmsum eins árs blómplöntum,
sem eru fljótvaxnari en þær, sem áður eru nefnd-
ar, malope, godetia, phlox, valmue og tropaeol-
um og ýmsum stofuplöntum, oinerariu og pel-
argoníu, hafi þeim ekki áður verið sáð, enn
fremur acasíu og dracenu. — Nú eru farnir að
koma hlýir dagar og þarf þá að hafa gætur á,
að fræmæðnrnar spiri ekki um of.
Smælki,
Dýrgripir.
I sumar sem leið var 4 vetra graðfoli ensk-
ur seldur til Þýzkalands fyrir 382,000 kr. Var
hann seldur að afloknum veðhlaupum, þar sem
hann hafði unnið fyrstu verðlaun, 180,000 kr.
Rétt á eftir iðraðist seljandi og vildi gefa
182,000 til þess að kaupin gengju aftur, en
fékk ekki.
Dýrasti hestur, er vér minnumst að hafa
heyrt getið um, var enskur veðhlaupahestur,
sem seldur var fyrir nokkrum árum til Erakk-
lands fyrir 750,000 krónur.
Á Englandi var kynbótahrútur af Lincoln-
kyni nýlega seldur fyrir 3700 kr.
Tveir hrútar af sama kyni voru leigðir um
fengitímann fyrir 2520 kr. hvor um mánuðinn.
Englendingar kunna að meta gott kynferði.
Aldur dýra.
Nýlega hafa verið birtar á Þýzkalandi at-
huganir um aldur dýra. Samkvæmt þeim verða
hestar eg asnar sjaldan eldri en 35 ára; þó
vitum vér til þess, að hestur hefir orðið 44
ára. Nautgripir geta orðið 30 ára, en hundar
25 ára. Sauðfé, geitur, svín og kettir verða
sjaldan eldri en 15 ára. Cfæsir verða 30 ára,
en hænsni, endur og kalkúnar ekki nema 12
ára. Mjög gamlir verða fílar og páfagaukar;
þeir komast yfir tirætt.
Verzlunarfréttir,
I. Útlendar.
Kaupmannahafnar sölutorg 26/ii
Hveiti (ómalað)
Rúgur
Hafrar
Jarðepli
Skepnufóður.
Havnegade 19.
100 pd.
1903.
4,90—5,60 kr.
4,35—4,70 —
4,60—5,00 —
tunnan 3,50—3,75 —
Verð hjá Alfred Riis & Co.
Elutt kostnaðarlaust á skip.
udýrara ef mikið er tekið.
Bómullarfrækökur 100 pd. 6,40 kr.
Bómullarfræmjöl — 6,10 —
Rapskökur, beztu Kbh. — 5,30 —
— franskar — 4,50 —
II. Innlendar.
Beykjavík. Verðlag i deshr.JVerzl. Godthaab).
Rúgur 100 pd.
Rúgmjöl —
Hveiti (Elormjöl) —
Overhead mjöl
Baunir 1jí og kl.
Hrísgrjón 7, —
Bankabygg —
Kaffibaunir —
Kaffirót —
Kandíssykur —
Hvítasykur —
Verðið er miðað við sölu í sekkjum og köss-
um á móti peningum.
7,00 kr.
7,25 —
10,00 til 11,50 —
8,00 — 9,00 —
•11,50 —
11,00 —
9,50 —
43,00 — 45,00 —
38,00 —
23,00
22,00 —
)