Siglfirðingur - 24.01.1958, Blaðsíða 1
Miðvikudaginn 22. jan. 1958.
O q ■ i
D-listinn
er listi Sjálfstœðismanna
Niöursuðuverksmiðja í Rvík eða á Siglufirði ?
Tillögur Vigfúsar Friðjónssonar og Egils Stefáns-
sonar í því máli.
Á þinginu 1954—’55 var að tilhlutan f járveitingarnefndar Alþingis
kosin nefnd sérfróðra manna, sem gera skyldi fræðilega rannsókn
varðandi hugsanlega möguleika á starfsemi stórrar niðursuðu- og
niðurlagningarverksmiðju sjávarafurða til útflutnings. — Formaður
þeirrar nefndar var dr. Jakob Sigurðsson, sem um margra ára skeið
hefur unnið að markaðsöflun á erlendum vettvangi fyrir íslenzkar
niðursuðuvörur.
• Leitað álits Siglfirð-
inga.
Nefnd þessi sendi út fyrir-
spurnanbréf til allra þeirra, sem
fengizt höfðu við starfsemi á
þessu sviði, m.a. til þeirra Vig-
fúsar Friðjónssonar og Egils
Stefánssonar. Eru svör þeirra til
dr. Jakobs birt í nefndaráliti því,
sem nefnd þessi skilaði Alþingi
að lokinni rannsókn sinni.
• Tillaga Vigfúsar:
smiðja yrði reist í Reykjavík eða
næsta nágrenni hennar.
Orðrétt segir Vigfús í bréfinu:
„Þá erum vér þess mjög fýs-
andi, að athugaðir verði
möguleikar fyrir því, hvort
ekki væri hægt að stofnsetja
eins stóra niðursuðu- og
niðurlagningarverksmiðju, og
I>A HELZT í REYKJAVÍK
eða í grennd við hana —“
Þannig ætlaði liinn orðprúði
G-lista frambjóðandi að leysa at-
vinnuvandamál Siglfirðinga!
framleiðsla færi fram hér í Siglu-
firði og segir m.a. svo í bréfi
hans.
„Ég hefi ætíð álitið, að hér á
Siglufirði ætti að viima á
ýmsan hátt úr kryddsíldiimi,
sem lögð er hér niður í tunn-
ur á sumrin, svo sem gaffal-
bita í dósir o.fl. — Við að
vinna síldina hér á þann liátt,
og selja hana úr landi, þá
reiknast mér til, að gjald-
eyrisverðmæti hennar að
minnsta kosti þrefaldaðist,
samanborið við að flytja hana
út í heiltunnum-------“
Þannig var afstaða þessara
tveggja manna til þessa hags-
munamáls Siglufjarðar 1 bréfum,
sem leggjast áttu fyrir Alþingi,
sem kemur til með að ráða stað-
setningu slíks fyrirtækis. Er rétt
að muna þessar afstöður þeirra
beggja við kjörborðið á sunnu-
daginn.
Reykjavík.
Efsti maður G-listans, Vigfús
Friðjónsson, lagði til að slík verk-
Athugasemd
Vegna ummæla hr. Vigfúsar
Friðjónssonar í bæjarmálaumræð-
um 23. þ.m., tel ég ástæðu til að
taka fram eftirfarandi:
Það er reginfirra hjá Vigfúsi,
sem eigi má láta ómótmælt, að
starfsmönnum opinberra stofnana
eigi ekki að vera jafnfrjálst og
hverjum öðrum að láta í ljós skoð-
anir sínar, hverjar sem þær eru
og um hvern sem er.
Ég geri ráð fyrir, að samherja
hans, Ármanni Jakobssyni, þættu
það harðir kostir, ef ætlast væri
til, að hann þegði um skoðanir
sínar á stofnunum og mönnum,
sem viðskipti eiga við IJtvegs-
bankann, vegna þess að þeir skapa
þær tekjur, sem laun hans eru
greidd af.
Hitt skiptir í þessu sambandi
minna máh, að ég hef enga grein
skrifað í „Siglfirðing“ um alllang-
an tíma og engan þátt átt í skrif-
um blaðsins undanfarið, hvorki
grein þeirri, sem fór svo óþyrmi-
lega í taugar Vigfúsar, né öðrum.
Væri betur, að aðrar fullyrð-
ingar Vigfúsar um þessar mundir
reyndust byggðar á traustari
heimildum.
Siglufirði, 24. jan. 1958.
Jón Stefánsson
• Tillaga Effils: Sifflu-
fjörður.
Egill Stefánsson svaraði þessu
bréfi dr. Jakobs á allt aðra leið
og þarfari hagsmunum Siglfirð-
inga. Rökstuddi Egill það að slík
EINAR I N OI M U N DIA R 8 O N :
Þad er kosið um tvennt
Bæjarstjórnarkosningarnar, er
fram eiga að fara á sunnudaginn
kemur, verða að því leyti sér-
stæðar, að auk þess að kjósend-
ur segja til um það með atkvæð-
um sínum, hverjum iþeir treysta
helzt til að stjórna málefnum
byggðarlags síns, votta þeir
einnig núverandi ríkisstjórn
traust eða lýsa á hana vantrausti.
Hjá þessu getur ekki farið, eins
og allt var í pottinn búið við
síðustu Alþingiskosningar og
valdatöku hinnar svonefndu
„vinstri stjórnar“ að þeim lokn-
um. í kosningabaráttunni vorið
1956, gerðu áróðursmenn núver-
andi stjómarflokka, Alþýðu-
flokksins, Framsóknarflokksins og
hins svonefnda Alþýðubandalags
það að aðalatriði, að Sjálfstæðis-
flokkurinn yrði útilokaður frá öll-
um áhrifum um stjórn landsins.
Ef það tækist myndi allur að-
steðjandi vandi verða tiltölulega
auðleystur, varnarliðið skyldi
tafarlaust rekið úr landi, hvað
sem hver segði,efnahangsvanda-
málin skyldu leyst 1 snatri, alls-
herjar uppbygging skyldi hafin
þegar í stað o.s.frv. o.s.frv.
Mér er nær að haWa, að allir
— hver og einn einasti — þeirra
manna, sem skipa efstu sæti A,
B og G listanna við þessar bæjar-
stjórnarkosningar hafi gert sitt
til að telja siglfirzkum ikjósendum
trú um það fyrir síðustu Alþingis-
kosningar, að blómaskeið myndi
upp renna fyrir Siglufjörð og
landsbyggðina alla, ef það tækist
að koma Sjálfstæðisflokknum frá
völdum. Ekkert skal ég um það
segja, hvort þessir menn hafi
sjálfir trúað á þennan áróður
sinn. Hitt er öllum landslýð kunn-
ugt, að hafi þjóðarskútunni
nokkru sinni verið siglt í strand,
þá hefir hin svonefnda „vinstri
stjóm“ gert það. Fátt eitt af því,
sem horfir til réttrar áttar hefir
undir hennar stjórn þokazt fram
Hótanir Ármanns
Á árinu 1957 hefur alls verið
innheimt í útsvörum og fast-
eignagjöldum kr. 4.545.046,00. —
Með tilliti til þess, að útsvarsskrá
kom ekki fram fyrr en í ágúst,
verður að teljast, að hér sé um
allsæmilega innheimtu að ræða,
með hliðsjón af atvinnuástand-
inu í bænum og greiðslugetu
bæjarbúa almennt.
En Ármanni finnst ekki nógu
hart gengið að bæjarbúum, þeir
séu ekki plokkaðir nóg í atvinnu-
leysinu, hann skyldi sko ganga
harðar að þeim, þegar hann sett-
ist í sæti Jóns Kjartanssonar,
kippa innheimtunni í lag. Slíkar
voru hótanir lögfræðingsins í
garð þeirra efnalitlu, þeirra, sem
ekki hafa getað staðið í skilum
sökum atvinnuleysis, sem ríkis-
stjórnin hafði að vísu lofað að
bæta úr! Minnir þetta á kommún-
istalögfræðinginn í Rvík, sem bar
út ekkjuna, sem frægt er orðið.
Þessum dónalegu hótunum
bankamannsins í garð sigl-
firzkra gjaldenda, sem flestir
eru skilamenn góðir, og gera
það ekki að gamni sínu að
skulda opinber gjöld, og ekki
bera sök á svikum ríkis-
stjórnariimar í atvinnumál-
um, verður svarað á viðeig-
andi hátt á sunnudaginn
kemur.
á við, heldur flest aitur á bak,
og nú eftir að „vinstri stjómin“
hefir setið að völdum í 1 ýó er
hún óg stjórnarflokkarnir allir
orðnir berir af þeim feriegustu
svikum á kosningaloforðum, sem
sennilega getur um í íslenzkri
stjórnmálasögu. Á valdatímaJbili
þessarar ríkisstjórnar hefir hlut-
ur Siglufjarðar verið sérstaklega
fyrir borð borinn og sanngjörn-
um fyrirgreiðslubeiðnum forráða-
manna bæjarfélagsins verið mætt
af engum skilningi af hálfu vald-
hafanna. Það eru sízt meðmæh
með mönnum þeim, sem standa að
listum stjómarflokkanna við þess-
ar bæjarstjórnarkosningar, — að
mörgum iþessara manna, — þó
ólöstuðum — að hafa látið hafa
sig til iþess fyrir síðustu Al-
þingiskosningar að taka þátt í
þeim berserksgangi með fagur-
gala og loforðaglamri, sem þá var
háður og alþjóð sér nú hvers-
konar skollaleikur var.
Öll sætin á lista Sjálfstæðis-
floktsins við bæjarstjórnarkosn-
Framhald á 2. síðu