Freyr

Árgangur

Freyr - 01.06.1907, Síða 1

Freyr - 01.06.1907, Síða 1
íslenzkir hestar á dönskum markaöi. Um tíu ára bil hefí eg hatt talsverð af- skifti af islenzkum hestum og notkun þeirra i Danmörku. Eg hefi nú selt hér um 2000 hesta og lengið við það ýmis konar reynslu, er eg álít rétt að skýra íslendingum frá, til sameig- inlegs gagns báðum löndunum. Ástæðurnar til þess að vér höfum lagt kapp á vinna að því, að islenzkir hestar yrðu notaðir hér eru þessar: Yér flytjum árlega inn frá Rússlandi mörg þúsund litla hesta og ætluðum þvi, að hægt væri að miuka þann inníiutning að nokkru og taka í staðinn islenzka hesta og á þann hátt mynda hér markað fyrir þá. Yið það fengju þá íslendingar nokkuð af þeim pen- ingum, sem annars ganga héðan til Rússlands, og um leið mundum vér hér í Danmörku spara té með því að nota ísl. hestana, því að þá er ódýrara að halda en nokkra aðra hesta sökum þess, hve fóðurléttir þeir eru. Loks hefir það komið í Ijós, að með rússneskum hestum hefir fluzt hingað hvað eftir annað „Snive“, en sá sjúkdómur er ekki til á Islandi. Dað hefir verið mörgum og miklum erfið- leikum bundið að koma f'ólki hér í skiining um það, að þessir litlu, óálitlegu, ísl.hestár gætu í raun og veru unnið svo verk sitt hér, að að fullum notum þyki koma. Það hepnaðist tiltölulegu fljótt að koma mönnum upp á að nota hestana liér í Kaupmannahöfn meira en áður hafði tiðkast, og svo að nokkru leyti í öðrum bæjum, einkum við léttan akstur. Til sveit- anna voru isl.hestar áður fyr álitnir nokkurs- konar leikfang, aðeins til reiðar banda börnum o. þ. 1. En aftur á móti hefir það gengið mjög stirt að fá smá-bændur (,,Husmændene“) til þess að nota þessa hesta, þar sem þeir hafa verið hræddir um að jarðyrkjuverkfærin væru þeim of þung; og þó er það einmitt hjá slíkum mönnum, að ísl.hestarnir geta komið að mjög arðvænlegum notum. 1 Danmörku eru um 150,000 smábændur og liggur það i augum uppi, að það eru engar smáræðis upphæðir, sem sparast við að halda ódýra dráttarhesta og fóðurlétta, eins og ísl. hestarnir eru. Það er einkum í nokkruin héruðum á Jótiandi, að farið er að nota ísh hesta, og það einkum á seinni árum, hjá sinábændunum, og súreynsla, sem þar hefir fengist, er fremur hvetjandi en letjandi. Til þess að styðja að notkun ísl; hesta á búum smábændarma hefir myndast hér félag á þessu ári, og nýt eg þess heiðurs að vera formaður félagsins. Tilgangur félagsins er, að útvega góða, stóra og sterka hesta, er einkum henta smábændum, að taka á móti pöntunum frá smábændum og afhenda hina pöntuðu hesta í sumar. Bændurnir borga hestana við mót- töku, en komi það í ljós á fyrstu 9 mánuðunum, að hestarnir dugi ekki til þeirrar vinnu, er þeim var ætluð, má skila þeim aftur til félags- ins, er borgar þá aftur út kaupverðið að fullu. Boð þessi, sem margir smábændur hafa þegið með gleði, sýna Ijóst, að hér er ekki eingöngu um verzlun að ræða, heldur alvarlega tilraun til að ná takmarkinu: ísl. hestar hjá dönskum smábændum. Til þess nú ennfremur að efla hug smá- bændanna á þessu máli, hefir félagið síðan i haust látið gjöra tilraunir á smábændaskólan- um í Kærehave nálægt Ringsted og hafa til- raunir þessar hingað til haft sérlega góðan á- rangur. Ennfremur er mér heimilt að segja frá því, að „Atlantshafseyjafélagið“ er að vinna að þvi, að fá ísl. hesta tekna á danskar gripa-

x

Freyr

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.