Freyr

Ukioqatigiit

Freyr - 01.06.1907, Qupperneq 3

Freyr - 01.06.1907, Qupperneq 3
FREYR. 75- imi og þjóðinfii til frægðar og framfara. Eg hygg það skifta minnu, hvoft rnaður telur sig í Heima stjórnar- eða Framsókuarflokki, heldur en hverja stöðuna hann tekur i atvinnurekstrinum. Kaup- manna og embættismannaf'jöldinn er langt fram- yfir þarfir þjóðarinnar, en bændaflokkinn þarí að auka og efla. Verkefni hans er ótæmanlegt, og viðskiftin við náttúruna eru í alla staði virð- ingarverð og heiðarleg; styðja að þjóðþrifum, og geta verið arðvænleg, ef rétt er að farið; og í þeim viðskiftum er um að gera að fara svo langt sem unt er, í þvi, að fá sem mestar hreinar tekjur. Eg vil leitast við að lýsa einum þætti af viðskiftum mínum við náttúruna. Landslagi á jörð minni er háttað þannig að þar eru afarviðáttumiklar sléttar grundir, og liggja þær hálfa milu norður frá bænum. Þessar grundir eru aðalengið. I sumum árum spretta þærallvél, en brugðist getur að þarsó gott engi. l>að heiir því vakað fyrir mér að færa túnið út sém mest. Eg hefi reynt að bera á þéssar grundir húsdýraáburð, án þess að róta við jarðvegi, til þeks að koma þeim i rækt, en það hefir mér reynst bæði afar seinlegt og kostbært. Eg fór því til nú fyrir 3 árum og lét rista með spaða ofan af dálitlu beði á ó- ræktaðri sléttri grund, án þess að stinga upp flagið, en bár áburð undir og þakti svo strax. Beð þetta hefir sprottið vel siðan, og eg hygg, ekki lakara en þó flagið hefði verið stungið upp. Þó þetta væri nú allfljótunnin ræktun- araðferð, miðað við að stinga upp flagið, þá þótti mér. hún samt seinleg, fór eg því vorið eftir og lét rista olan af með algengum plóg, og lét streugina liggja kyrra í flaginu, bar svo áburð yfir strengina, og lagði þá svo niður aftur, lenti áburðurinn þá undir. Við þakning- una gengur úr af strengjum eftir því sem menn vilja þekja gisið. Tvö siðastliðin vor hefi eg látið rista ofan af einni dagsláttu hvort vorið. Það sem eg tók fyrir fyrra vorið (1901) spratt svo vel, að eg gat látið tvislá það bezta af þvi á fyrsta sumri, og uú í sumar spratt það mikið vel. Af þeirri reynslu, sem eg er búinn að fá af þessari ræktunaraðferð, er ekki að ræða um neina óvissu, ef vandvirkni er við höfð og næg- ur. og .góður, áburður borinn nudir, sera er aðal- atriðið. . Ifjög er og nauðsynlegt að þekja sem allra fy.rst, eftir að rist er olán af, einkum ef þurkatið er, svo þökurnar skræluj ekki. Það hefir gengið fremur illa að fá strengina jafnþunna og ekki of þykka, því við þakning- una geta kornið fram ósléttur, ef strengir eru látnir: ganga úr, séu þeir. misþykkir. Það er þvi nauðsynlegt að útbúa eitrhvað það á. plóg skaftið, sem gæti afskamtað þyktina á strengn- ttm. I vetur sá eg í Frey mynd og lýsingu af þannig löguðum plóg, sem væri mjög hentugur til þessa starfs. Ef alt er í góðulagi, er hægt að rista ofan af einni vallardagsláttu á dag með einum plóg og 2 hestum, en hve lengi er verið að þekja, veit eg ekki fyrir víst, en mikið mun það fljótlegra eu þekja með þökuin, sem bornar eru úr flagi; jatnvel helmingi fljót- legra. Það er alment viðurkent að túnaslétta með handverkfærum borgi sig mjög vel, og þá kostar að slétta dagsláttuna með þeirri aðferð hátt á annað hundrað krónur. Hvað vel tnun þá borga sig að ,iækta tún með áður uefndri aðferð, sem. mundi kosta að líkindum 3/4 pört- um minna? Það sem hindrar að hægt sé að reka þessa ræktun í stórum stíl, er skortur á áburði, og er það svo þýðiugarmildð atriði iandbúnaðarins, sem nauðsyulega þarf að ráða bót á. Skíturinn er nú orðinn hyrningarsteinninn undir landbún- aðinutn, þýðingarmestu atvinnugrein Islendinga. Einn vegur hefir opnast viðvíkjandi áburð- arskortinum nú í seinni tíð ; það er hinn útlendi áburður, sem hefir að vísu lítið verið notaður hér álandi nema til tilrauna, og er enn að miklu leyti ósvarað, að hve miklum notum hann geti orðið oss. En reyndist hann vel, svo hægt væri að brúka hann til viðhaldsræktunar á túnin okkar, þá gætum við brúkað húsdýra áburðinn til undirburðar. Því til þess mun útlendi áburðurinn ekki heppilegur. Annað atriði er það líka, sem hefði mikla þýðingu í sumum sveitum til að bæta úr á- burðarskortinum, það er: — ef alt það sauða- tað, sem brent er, væri brúkað til áburðar, með því mætti rækta margar dagsláttur. En til þess að það gæti orðið, þá útheimtist

x

Freyr

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.