Tímarit Verkfræðingafélags Íslands


Tímarit Verkfræðingafélags Íslands - 01.10.1932, Blaðsíða 6

Tímarit Verkfræðingafélags Íslands - 01.10.1932, Blaðsíða 6
52 TlMARIT V. F. I. 1932. hörðnunina, og missir við þetla nokkuð af bindi- krafti sínum. Ekki er mikil liætta á þessari skemmd, ' ef sementið er geymt í venjulegmn umbúðum, á þurum stað. Ef geyma þarf sement í pokum vetrar- langt, er réttara að endurstafla pokunum á svo sem tveggja mánaða fresti. Loks getur sement skemmst i notkuninni, ef bræran er látin verða of gömul, svo að storknun er byrjuð áður en steypan er komin i kvrrð á sín- um stað. Mcga aldrei líða meira en 2 klst. frá því að scment er bleytt i hræru, eða látið í liræru með deigum sandi og (il jiess að lokið er að ganga frá hrærunni í steypumótinu. 10. Vatnið. Næsl sementinu er vatnið þýðingarmesta steypu- efnið, þólt það sé ódýrast. Ætlunarvcrk vatnsins er tvenns konar, og bæði ætlunarverkin til samans ákvarða vatnsmagnið, ]). e. Iive mikið af vatni cr nauðsynlegt eða leyfilegt að nota í hræruna. Fyrra ætlunarverk sitt vinnur valnið í hrærunni, meðan á tilbúningi steypunnar stendur. Þar mvnd- ar vatnið ásamt sementinu eins konar liðkunarefni eða smurningarkvóðu fyrir steinefnin, sem gjörir Iiræruna meira eða minna mjúka og þjála í með- förum, efíir ])ví live mikið er af þessari kvoðu í hrærunni í hlutfalli við steinefnin. En kröfurnar um það, hversu þjál liræran skuli vera, fara eftir nótkun liennar, og þcssar kröfur ákvarða þá jafn- framt lágmark fvrir lirærukvoðunni og þar með fyrir vatnsmegninu í hrærunni. Annað ætlunarverk sitt vinnur vatnið við storkn- un og hörðnun steypunnar, mcð því að ganga í efna- samband við sementið og halda steypunni rakri eða blautri nægilega lengi, til þess að hörðnunin geti haft eðlilegan gang. Að eins nokkur hluti vatnsins verður þó að lokum eftir i steypunni í þessu skyni og nokkur hluti verður eftir sem raki i steypunni. Ilið harðnaða efni í steypunni, þ. e. sementið með vatni því, sem bundizt hefir, ásamt kolsýru þeirri, sem dregizt hcfir í samband við semenlið, með hol- rúmum, sem að nokkru eru fyllt rakavatni, en að öðru leyti fyllt lofti, nefnist einu nafni steypulímið. í hinni hörðnuðu steypu fyllir steypulímið öldung- is sama rúmmál og kvoðan í lirærunni fullsiginni, ef kvoðan hefir frá upphafi verið nægilega mikil (il að fylla öll bilin milli steinkornanna, þ. e. ekki vcr- ið loft i hrærunni. Allir steinmolar og sandkorn hafa sömu stærð og aðstöðu í liinni liörðnuðu steypu, eins og í hrærunni blautri en fullsiginni. Allar breytingarnar eru bundnar við hrærukvoðuna, scm við hörðnunina verður að steypulimi. Eftir bleytingarstiginu, þ. e. vatnsmegninu í brær- unni, getur nú ásigkomulag liennar verið afar mis- munandi, allt frá því að vcra svipuðust rökum og nálega samliengislausum sandi og til þess að vera eins og fljótandi smurningskvoða, sem ber uppi og flytur með sér sandkorn og steinmola, og svo allt þar i milli. Þó er venja, og virðist hentugt, að grcina öll bleytingarstigin í fjóra aðalfloklca, þannig: a. Rök hræra. Hún er ekki blautari en það, að taki maður hnefafylli sína úr hrærunni og kreisti saman, þá verður úr þvi samloðandi köggull, en engrar bleytu verður vart i lófanum, heldur sit- ur þar eftir örlitið af smáum sandkornum, ef svo ber undir. Slík hræra er aðallega notuð i verk- smiðjum, sem búa til steinsteypuvörur í járn- mótum. Þegar rök hræra er slegin rækilega saman i járnmóti, fær hún nægan styrkleik og samhengi til þess, að unnt er að losa mótið utan af henni þegar í stað og nota það að nýju. Ekki má vera svo mikið af hrærukvoðunni, að hún komi fram í yfirborð steypunnar við samslátt- inn, því að þá losar jámmótið sig ekki frá lirær- unni, og jafnvel þótt losunin takist, þá er hinum steypta hlut liætt við að aflagast undan þunga sinum, þegar hann missir stuðningsins af mót- inu. I erlendum ritum er þetta oft nefnt „þur“ hræra, en er ekki réttnefni, því að án vatns má liún ekki vera. b. Deig hræra. Það er einkcnni liennar, að þegar hún er slegin saman i móti, sem lætur ekki und- an, þá kemur að lokum fram deigla á yfirborð- inu, en hræran er samliengislaus og sýnir engan vott bleytu áður en byrjað er að slá hana saman. Þessi tegund liræru er á útlendum málum ofí nefnd „jarðrök“ (jordfugtig, erdfeucht). c. Mjúk hræra. Þessi tegund er olt nefnd „plastisk“ á erlendum málum. Það er höfuðeinkenni hennar, að öll liolrúm niilli sandkorna og steinmola eru full af hrærukvoðu, án þess að neinn samsláttur komi til, en þó er ekki svo mikið af hrærukvoð- unni, að hún renni sjálfkrafa frá steinefnunum. Sé hræran látin i mót, tekur hún ekki eiginleg- um samslætti, lieldur er hún eins og grautur, það er hægt að fá hana til að fylla alveg út í mót- ið með því að stinga skóflu eða járni niður í hana og skaka í henni. Hrærukvoðan er það mikil, að hún leilar út á ytra borðið þegar hrærunni þannig cr hnissað í mótin. Þegar hræran liggur i nokkuð flötum bing eða haug, og slcgið er far í binginn, á það að halda sér nokkuð, ]>. e. hræran á að vera nokkuð svo mótanleg. Mýktin getur þó verið talsverl mismunandi mikil, og eru mýktarstig- in mæld með sigmáli og hristifleka, sem siðar verður getið. d. Rennblaut hræra (rennuhræra). Þá cr svo mikið af hrærukvoðunni, að hræran verður líkust fljót- andi límefni með sandkornum og steinvölum í. Þessi hræra er mikið notuð nú á seinni árum við gerð mjög fyrirferðarmikilla mannvirkja úr steinsteypu. Er þá reist há stöng, eða lurn, og

x

Tímarit Verkfræðingafélags Íslands

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit Verkfræðingafélags Íslands
https://timarit.is/publication/860

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.