Freyr

Árgangur

Freyr - 01.01.1915, Blaðsíða 11

Freyr - 01.01.1915, Blaðsíða 11
FRElíR. 5 í byrjun vega sinna báru menn alt 4 bakinu. Svo var farið að nota hestinn til áburðar. Nú er mest ekið á vögnum, sem hestum er beitt fyrir. Eða þá að notaðir eru til flutning- anna vagnar á járnbrautum, sem reknir eru með gufuafli eða rafmagni. Aukin notkun verkfæra og vinnuvéla, ásamt bættum samgöngutækjum heflr þannig, ef svo mætti að orði kveða, umskapað heiminn á síð- ustu mannsöldrunum. Og þetta hefir leitt af sér, að miklu meira er framleitt nú en áður var. í>ar sem allskonar jarðrækt og notkun vinnuvéla er lengst á veg komin, þurfa menn miklu skemri tíma en áður til að fullnægja daglegum þörfum sín og sinna. Miðað við yrktan og góðan jarðveg telst svo til (P. Kra- potJciri), að maðurinn þurfi að vinna árlega sem nemur: Til að afla fæðis . . . 300 st. = 30 daga. — — — klæða . . . 250 - = 25 — — — — húsaskjóls. . 200 - = 20 — Samtals 750 - = 75 daga. Ef ástæðurnar eru nú að einhverju leyti lakari en hér er gert ráð fyrir, þá þarf tiltölu- lega lengri tíma ár hvert til þess að geta full- nægt daglegu þörfunum. Mun þá ekki veita af 100—150 vinnudögum eða jafnvel lengri tíma. En annars fer það eftir legu landsins, landskostum, verklegri menning og öðrum á- stæðum, hve langan tlma af árinu þarf til þess í hverju landi að afla daglegs brauðs. VII. Mörgum þykir vinnan vera þungbær, og vinnutíminn langur. — Það er nú svo hvert mál, sem það er virt. — Hér á landi er ekki meiri vinnuharka en víða gerist annarsstaðar, nema síður sé. í nálægum löndum vinna menn viða til sveita, frá því kl. 5—6 á morgnana og til kl. 7—8 að kveldinu. Vinnutíminn, að frá dregnum matmálsstundum, er þá 10—12 stundir á dag. Og ekki er vinnuharkan minni í Ameriku að sögn og sannindum, og munu fleslir fá að kenna á því, er þangað flytja. Það er satt, að áður fyrr var unnið hér lengur en góðu hófi gegndi. En nú er orðin breyting á því. Vinnutíminn á landi, bæði við sjó og til sveita, er nú jafnaðarlega 10—12 stundir á dag. — Þegar nú þess er gætt, hvað sumarið er hér stutt —- þetta 4—5 mánuðir i mesta lagi—og útivinna við heyskap og jarð- yrkju þar af leiðandi takmörkuð, þá nær það ekki neinni átt, að stytta vinnutímann meira en orðið er. iPað væri meira að segja barnaskap- ur að gera það, með þeim viunutækjum, sem menn eiga hér við að búa, og því verklagi, er alment á sér stað. Hitt er annað mál, að menn fari nú fyrir alvöru að útvega sér og nota þau nýtízkuverk- færi og verkvélar, er eiga hér við og gera bæði að létta vinnuna og flýta henni. I>á þurfa menn einnig að læra að hagnýta sér vatnsaflið til verkasparnaðar, ljóss og hita. Þetta alt er þeim mun nauðsynlegra og sjálf- sagðra, sem öll vinna er orðin dýr, og erfitt að ná í menn til að vinna, með köflum. VIII. £>að var vikið að því hér að framan, að margir hefðu ríka tilhneigingu til þess að leita sér þeirrar atvinnu, sem ekki hefði í för með sér líkamlegt erfiði. Einkum er það yngri kynslóðin, sem virðist vera með þessu marki brend. Hvað veldur því? Sumir kenna þetta stefnuleysi fólksins og alvöruleysi þess. Aðrir segja, að leti og ó- menska sé að fara hér í vöxt. En hvort sem þessu er nú um að kenna eða ekki — en á það skal enginn dómur lagður hér — og hver svo sem ástæðan er að öðru leyti, þá er það þjóðfélaginu mlður holt, ef atvinnuvegir lands-

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.