Freyr

Árgangur

Freyr - 01.01.1915, Blaðsíða 17

Freyr - 01.01.1915, Blaðsíða 17
FREYR. 11 Árið 1914, í>að mun óhætt mega gera ráð fyrir því, að flestum komi saman um, að árið sem leið hafi verið erfitt, og víða um land jafnvel eitt með þeim lakari, þegar öllu er á botninn hvolft. Um veturinn er það að segja, að upp úr nýárinu gerði hláku og leysti þá allan snjó af láglendi. Hélzt þýða og snjóleysi rúman hálf- an mánuð, og var þá öllum útifénaði beitt. Víða var klaki farinn svo úr jörðu, að vinna mátti að jarðabótum, og gerðu það sumir. — Með miðjum vetri versnaði tíðarfarið. Kyngdi þá niður snjó og gerði jarðbönn. Voru norðan hríðir eða byljir með köflum, en þó sjaldnast frost til muna. Hélzt þetta svo fram um páska og enda lengur. Gfengu hey mjög til þurður í mörgurn sveitum og var útlitið mjög ískyggi- legt. En þó klappaði betur steininn siðar. Eftir sumarmálin, þegar allir væntu þess, að nú færi að batna, versnaði tíðarfarið um allan helming. Kom þá hvert áhlaupið á fæt- ur öðru fyrstu sumarvikurnar. í>ó tók upp- stigníngardagskastið, mánuð af sumri, eða um 20. maí, út yfir alt. Gerði þá stórhríð um mestan hluta lands, og hörku gadd. Varð frostið |8—12° C. Fór þetta hret afar illa með allan fénað, sem við var að búast, því að þá voru hey manna mjög gengin til þurðar. Gjafatíminn varð óvenjulega langur. Auk þess reyndust heyin víða, einkum um suður- land, létt, áburðarfrek og óholl. Narðanlands og austan var fé gefið inni 22 —24 vikur, og sumstaðar lengur. Um Suðurland var innistaða fyrir fé í 26—28 vikur, og sumir gáfu jafnvel í 30 vikur. — Af þessum langa gjafatíma og léttum heyjum leiddi alment heyleysi um mest- an hluta Suðurlands og Vesturlands. Norðan- lands og austan stóðu menn sig allvel með hey, enda voru þeír ólíku betur undir veturinn bún- nir en hinir. En af heyskortinum og því, hvað heyin voru óholl, leiddi svo allskonar óáran í fé. Eénaðarhöld urðu því með langversta móti, og fellir nokkur. Unglambadauði mikill, svo að segja um alt land. Mistu margir */4 lamba sinna, og sumir meira, jafnvel helming og alt að 3/s hlutum þeirra, Einna lakast mun ástand- ið hafa verið á Snæfellsnesi, í Borgarfjarðar- héraðinu, og í Arnes- og Rangárvallasýslum. Skaftfellingar sluppu betur. Austan Mýrdals- sands urðu engin vandræði, svo teljandi væri. Komust þar flestir af með hey. Þó mun lamba- dauði hafa orðið þar nokkur eins og annars- staðar. — I Rangárvallasýslu og Arnessýslu urðu einstaka sveitir allvel úti, eftir þvi sem áhorfðist, og mistu ekki mikið af fénaði. Eins og þegar er getið, gáfust hey mjög upp hjá öllum þorra manna víða um land, og í sumum héruðum landsins varð alment hey- leysi. En bót í máli var það, að í þessum sveitum voru þó til einstaka menn, er stóðu uppi „sem klettur úr hafinu“, og gátu hjálpað öðrum um hey. Kom það sér vel, og reyndust sumir þeirra sannir bjargvættir. Yæri ekki ófróðlegt að vita deili á þeim mönuum, og ætti sagan að geyma nöfn þeirra. Um hvítasunnu, eða mánaðarmótin maí og júni brá heldur til hins betra. Eór veðuráttan upp frá því að batna og jörðin að gróa. En einlægt var þó hálfkalt í veðri, og spratt seint. Sláttur byrjaði viku til hálfum mánuði seinna en vant er að vera. Tóku menn ekki til að slá fýr en eftir 20. júlí, eða um 13 vik- ur af sumri, og sumir enn seinna. Gerði þá góða tíð hér sunnanlands rúman mánaðartíma, eða fram að 20. ágúst. En þá brá til óþurka um mikinn hluta lands. Höfðu margir þá náð inn töðum sínum, og sumir einnig nokkru ut- antúns. En svo voru aðrir, bæði í Gullbringus., Snæfellsnesi og víðar um Vesturland, er áttu

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.