Freyr

Årgang

Freyr - 01.01.1915, Side 16

Freyr - 01.01.1915, Side 16
10 FRE YR. nautgripafélög og síðan kynbótabií. En flestir j’kkar eru tregir til að fara þá leið; ykkur þykir það óþarfa mas að vega rnjólk og fóður í hverri viku og halda skýrslur yfir það. Þið sjáið marga agnúa við það að nota sérstaka kynbótabola ti! betri kúnna, og alveg óþolandi að vera háðir lögum og skyldum í þessu efni. Áhugaleysi og ófélagslyndi sýkir írá sér, og hefir drepið marga góða hugmynd ognauðsyn- lega framkvæmd. Letin er mönnum svo eigin- leg. I?að kostar áreynzlu að breyta til, og áreynzlan verður því meiri sem meira þarf að breyta, og þess vegna er oft erfiðast að koma því i framkvæmd, sem nauðsynlegast er og lengst hefir dregist. Mér dettur í hug karl sem eg þekti. Hend- urnar á honum voru eins og mykjuskán. Þeg- ar hann hætti að pæla á kvöldin þótti honum ekki taka að þvo sér, af því hann ætlaði að fara að hátta, og þegar hann vaknaði var enn síður ástæða fyrir hann að fara að þvo sér, þar sem hann ætlaði beint í fjósið. Ef ykkur vaxa í augum erfiðleikarnir á að stofna nautgripafólög, þá ætti ykkur ekki siður að blæða í augum að fá ekki nema 2—3 aura fýrir töðupundið, og að kúakynið úrkynjist. Eg heyri bændur oft segja, að þessar kyn- bætur eigi svo langt í land, að þeir njóti þeirra ekki. En það er hreinasti misskilningur. Ekki þarí að eiga langt í land, hagnaðurinn af að verja kvígur slysafangi, og losna við allan þann óróa sem bolar gera kúm á sumrin, eða að leita fyrir sér til að fá kálf af góðu kyni. Ekki gerið þið allir ráð fyrir að deyja í dag. Beinihagn- aðurinn er því ekki svo lítill, en óbeini hagn- aðurinn er þó enn meiri. Og eins og þið búið í haginn fyrir eftirkomendur ykkar með húsa- bætur og annað sem kostar meira fó en það sem hér er um að ræða, því skylduð þið þá ekki einnig vilja unna þeim að hafa betri kýr en þið hafið haft. Daglegu erfiðleikana sigrið þið orðalaust og vitið ekki af þeim. Eins mundi fara um þá örðugleika, sem ykkur vaxa i augum við nautgripafélögin, ef þið skipuðuð ykkur sam- an einhuga til að vinna bug á þeim. En ef þið haldið áfram að stara á þá hver úr sínu horni, verða þeir að draugi, magnaðri en svo, að hann sé ykkar meðfæri. Sum félög hafa að vísu lagst niður, af því að félagsmenn voru ekki nógu samtaka. í nautgripafélögunum þarf hver einasti fé- lagsmaður umfram alt að hafa lifandi áhuga fyrir starfi félagsins, og taki þátt i því með lífi og sál. Ekki ósjaldan sér maður félags- menn sofa í þeirri góðu trú, að formaðurinn þeirra eigi að vaka yfir öllu saman og annast alt. En hve miklum hæfileikum, sem hann er gæddur, getur hann ekki haldið félaginu við, ef félagar þess vilja ekki leggja sitt til að halda því uppi. Eormaðurinn hefir h'ka öðrum störfum að gegna, ekki síður en hinir, og hefir því ef til vill lítið meiri tíma en hinir aðrir félagsmenn, til að hugsa og vinna fyrir félagið. „Sameinaðir stöndum við og sundraðir föll- um við“. Það er mikill sannleikur íólginn í þessum orðum, og á víða við, og ekki sízt um íslenzkan landbúnað, þar sem svo lítið hefir verið gert, en svo mörg þýðingarmikil störf liggja fyrir, sem ómögulegt er fyrir einstak- linginn að hrinda áfram. Það er þessvegna ekki nóg, — þótt það sé þýðingarmikið, — að hver ykkar reyni að vera sem nýtastur bóndi fyrir sig. Við megum ekki einangra okkur svo, að við ekki tökum þátt í þýðingar- miklum störfum, sem þarf að vinna og verið er að vinna fyrir þjóðfélagið í heild sinni. •— Með því móti gerum við gagn bæði sjálfnm okkur og eftirkomendunum. Guðmundur Jónsson.

x

Freyr

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.