Freyr

Árgangur

Freyr - 01.01.1915, Síða 22

Freyr - 01.01.1915, Síða 22
16 FREYR. IV. verðl., 101 Tiothæíir, en 139 voru óhæfir. Hér er nóg verkefni að koma hrútunum upp í I. og II. verðl. I'yratu verðl. fá ekki aðrir en þeir, er ekkert verulegt verður fundið að. Annar hrúturinn, sem fekk fyrstu verðlaun í Mýrdalnum, er eign nobknrra manna þar, er hafa samtök með kyDbætur sauðfjár. Hrútur- inn var keyptur haustið 1913, frá Helga Jóns- syni í Stórabotni í Borgarflrði. Hinn hrútur- inn er heimaalinn í Vík hjá Halldóri Jónssyni bónda, og er hans eign. Grímur í Kirkjubæ á hrútinn, er fekk I. verðh í ítangárvallahreppi, og er hann frá bóndanum á Kjóastöðum í Biskupstungum. Guðjón Guðnason bóndi í Sölvholti á hrútinD, er fekk I. verðl. í Hraun- gerðishreppi. Simon Símonarson á Bjarnastöð- um á I. verðlauna hrútinn í Olfussinu, og er hann keyptur úr Borgarfirði. Hrútarnir sem fengu I. verðl. í Þingvallasveit, eru báðir á Kárastöðum. Ekkjan Jóhanna Magnúsdóttir á eldri hrútinn. Hann er frá Pétri gamla í Litla- botni í Borgarfirði. Pétur bjó áður á Svarta- gili í Þingvallasveit, og seldi þá þennan hrút. Einar Halldórsson bóndi á Kárastöðum á vet- urgamla hrútinn. Hrútarnir komu víðast hvar ver fyrir vegna þess, hvað vorið var vont nú síðast. Oft voru rigningar er spiltu útliti kindanna og hömluðu mönnum frá að sækja sýningarnar. í Fljóts- hlíð mistókst að boða sýninguna. Útbúnaður var víða slæmur fyrir sýning- arhrútana; réttir of þröngar, og hólfin of fá. Verðlaunamerkin voru einnig ófullkomin. Að- eins í Hraungerðishreppi höfðu menn prentuð verðlaunaspjöld. Þannig löguð merki ættu menn að hafa, þau kosta ekki svo mikið. I þessum hreppi borguðu menn ofurlítið fyrir að sýna hrútinn. Var þeim peningum varið upp í sýningarkostnað. Það er hentugt og við- gengst víða erlendis. Misskilningur var það hjá sumum, að þeir álitu sýningarnar aðeins fyrir fullorðna hrúta. En það er sjálfsagt að sýna lambhrúta líka, svo menn fái æfingu í að velja þá. Búnaðarfélag Islands veitti fé til þessara sýninga, eða um 20 kr. styrk til hverrar. Bún- aðarsamband Suðurlands tilkynti búnaðarfélög- unum á svæðinu um þessar sýningar, og hvatti til að taka þátt í þeim. Sumir af formönnum búnaðarfélaganna höfðust lítið að, og komust sýnÍDgar ekki á þess vegna. Til dæmis í Austur-Landeyjum og á Landi. I Grafningi og á Rangárvöllum urðu aðrir en formenn búnað- arfélaganna, til að koma sýningunum á. Búnaðarfélögin í Skaftártungu og Hörgs- landshreppi eru ekki í búnaðarsambandinu, og urðu eitthvað aftur úr þessvegna. Styrkurinn frá Búnaðarfélagi Islands átti samt að veitast til allra búnaðarfélaganna á svæðinu, hvort sem þau voru með í sambandinu eða ekki. Niður um Elóann fórust sýningarnar fyrir, meðfram fyrir það, hvað féð er fátt. Eins og menn vita, er styrkurinn frá Búnaðaríélagi íslands, til þe3S- ara sýninga veittur með því sbilyrði, að jafn- miklu fé sé varið til þeirra frá viðkomandi sveitum. Ollum sveitum er auðvitað heimilt að leggja til meira en styrknum nemur. Að- eins eitt félag lagði til meira en styrknum nam, það var búnaðarfélag Hvammshrepps. Víða tóku búnaðarfélögin mjög dauft i, að leggja fé til verðlauna, og mörg að þeim vildu ekki vinna til að leggja fram 20 kr. Eitt búnaðar- félagið lagði til 9 kr. En það er lítið félag. í öðru félagi í sveit, þar sem húa um 50 bænd- ur og margir efnaðir, hafðist það fram með miklum erfiðismunum, að leggja 15 krónur til sýningarinnar. Pyr má nú vera vesaldómur. Hvað munar sveit. með 50 búendum um að leggja t. d. 50 krónur til hrútasýningar ? Ekki nokkurn hlut. Og svo fara peningarnir heldur ekki út úr sveitinni. Eg vona að búnaðarfélögin og einstakir menn viðurkenni það, að með þessum sýning- um sé stigið spor í rétta átt til þess, að menn fái meiri þekkingu á fénu, og vandi sig betur við alla meðferð þess. Eg ætla því að vona að Sunnlendingar gefi sýningum þessum betri gaum næst, er þær verða haldnar. Eg hefi orðið þess var á Suðurlandi, að mönnum finst sauðfjárræktin vera aukaatriði í búskapnum, þótt hún sé aðalatriðið. Jón H. Þorbergsson.

x

Freyr

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.