Einherji - 11.11.1945, Side 3
EINHERJI
3
TILKYNNING
Með tilliti til árstíðasveiflna á verði eggja, hefur Viðskiptaráðið
ákveðið eftirfarandi hámarksverð á innlendum eggjum frá og með
1. nóvember 1945:
í heildsölu ........... Kr. 16.00
í smásölu ............. — 18.00
Með auglýsingu þessari er úr gildi fallin auglýsing Viðskipta-
ráðsins um hámarksverð á eggjum, dags. 31. júlí 1945.
Reykjavík, 30. október 1945.
VERÐLAGSST J ÓRINN
NÝKOMIÐ:
Vinnuskór karla
Gúmmístígvél karla, hnéhá og fullhá
T R É S K Ó - hnallar
KAUPFÉLAG SIGLFIRÐINGA
Skóbúðin
Argo - stívelsi
fyrirliggjandi
NÝKOMNAR
Ljósakrónur
3ja arma
á aðeins kr. 210.
Jakob Jóhannesson
rafvirki
Mikið úrval af
veggfóðri
væntanlegt með
næstu ferð
EINCO
Nýkomið!
Golftreyjur
Undirföt á kr. 39,60
Inniskór
á börn og fullorðna
Ullartreflar
Isgarnsokkar
Áteiknaðir dúkar
Puntuhandklæði
Flokkasilki
o. m. fl.
Verzlunin Túngötu 1.
Mjólkurbrúsar
2 til 5 lítra
Grunnir og djúpir diskar,
IINÍFAPARASETT o. m. fl.
Kjötbúð Siglufjarðar
Kommúnisminn
(Framhald af í. síðu)
hvernig málum þjóðarinnar sé
ráðið til lykta. Aftur á móti í
Rússlandi fær ekki nema viss
flokkur að kjósa, og vitanlegt er,
að þess er. gætt, að kosið ,sé á
ákveðinn hátt.
í Rússlandi þorir enginn flokkur
að myndast og halda uppi kosn-
ingum móti kommúnistaflokknum.
íslendingar! Hafið þið hugleitt
þetta nógu almennt?
Einherji ætlar, að það sé helztl
ágalli við stjórnmálaflutning á
íslandi, að eigi sé íslenzkri alþýðu
skýrt nógu vel frá stjórnmála-
stefnu kommúnista, áróðri þeirra
og meðferð valds þeirra þar, sem
kenningin drottnar, og i þeim
löndum, sem þeir hafa fengið tögl
og haldir við og eftir styrjaldar-
lok.
Eigi ber þó að gera lítið úr
dugnaði kommúnista, en að hjá
þeim sé hreinasta flokkseinræði,
er eigi hægt að efast um, og það
sem mest greinir Rússa frá lýð-
ræðisþjóðum. Þar fyrir þurfa
Rússar síður en svo að vera eftir-
bátar annarra þjóða í afrekum, i
friði eða ófriði, í iðnaði og vísind-
um, svo sem títt var líka um aðra
einræðisþjóð, Þjóðverjana, eins og
alkunnugt er orðið. Hvernig Rúss-
ar hafa unnið og nytjað mikið af
sinni frosnu jörð í Síberíu, afrek,
sem íslendingar ættu að kynna3t
alveg sérstaklega, hvernig Rússar
hafa unnið stórvirki í iðnaði og
vísndum, hefur vakið aðdáun
heims, en þar fyrir viljum við ís-
lendingar ekki taka upp stjórn-
háttu Rússa.
Eftirtektarvert fyrir íslendinga
er það rússneska stjórnarfrelsi, er
þeir fara um Iönd, sem þeir ráða
lögum og lofum.
Við sjáum nú Búlgaríu, Jugo-
slaviu, Rúmeniu, Baltisku löndin,
o.fl. lönd. Þar ríkir slíkt ófrelsi,
að furðu sætir og andstöðuflokk-
ar þessa einræðis lýsa yfir, að þeir
gangi ekki til kosninga. Svona er
óttinn við pólitískar kosningar orð-
inn mikill. Keyrir ófrelsið svo fram
úr hófi, að Bretar og Bandaríkja-
menn, sem fóru í ófriðinn til varn-
ar frelsinu, hafa ekki viljað viður-
kenna þjóðir þessar, þótt þjóðir
þessar hafi verið samherjar þeirra
i styrjöldinni. Má nærri geta, hve
lýðræð,i slíkra þjóða er þá lítið,
en valdið og misbeiting þess úr
hófi fram. Öllum frelsis elskandi
þjóðum hefir óað við slíkum að-
förum. Ráða nú kommúnistar öllu
í greindum löndum o. fl. og er helat
svo að sjá, að Rússar útbreiði
„systemið“, þar sem þeira fara
yfir, og er þá alveg sleppt að tala
um þann hluta Þýzkalands, er þeir
hafa á sínu valdi og litlar fregnir
berast frá.
Er leitt, að hinar glæsilegu sigur
vinningar Rússa í ófriðnum skuli
þannig myrkvast af framferði
þeirra eftir að styrjöldin er á
enda. Voru sumar þjóðir frelsaðar
undan oki nazismans til þess að fá
á sig annað ok, ok kommúnismans ?
Frú Theódóra Pálsdóttir,
ekkja Guðmundar Hafliðasonar,
uerður 60 ára 15. þ. m.
Fréttatilkynning
frá ríksstjórninni
Eins og landsmönnum mun kunn-
ugt fór' fram f jársöfmín á Reykja-
víkurflugvellinum hinn 15. f. m.
í sambandi við flugsýningu þá,
sem brezki flugherinn hafði boðað
til þennan dag. Fjárhæð sú, sem
inn kom, nam kr. 11.700. Brezki
sendiherrann afhenti síðan ríkis-
stjórninni helming þessa fjár, kr.
5850, með þeim ummælum, að hún
yrði látin renna til einhverrar ís-
lenzkrar góðgerðarstarfsemi.
Þar sem ríkisstjórnin hefur hins
vegar litið svo á, að almenningur
hafi með þessum samskotum haft
í huga flugafrek brezka flugliðs-
ins undanfarin ár og þá þakkar-
skuld, sem hann stæði í við það,
en ekki verið að gefa til óákveð-
innar íslenzkrar hjálparsöfnunar,
hefur nefnd fjárhæð verið endur-
send brezka sendiherranum með
þökkum fyrir þá hugulsemi, sem
gjöfin hefur borið vott um.
Sendiherra Breta hefur fallizt á
þetta sjónarmið og tekið við gjöf-
inni með þeim ummælum, að hún
muni lögð í styrktarsjóð brezka
flughersins, og hefur hann beðið
ríkisstjórnina að færa almenningi
þakkir sínar.