Einherji - 11.11.1945, Qupperneq 4
Sunnudaginn 11. nóvember 1945
* *
J?lab jFramsóhtiarmanna i^iglufirðt
22. tölublað
Bréiaskólji S. í. S.
Kennsluform, sem hefur gefist mjög vel
Þessar námsgreinar eru kenndar:
1. Skipulag og starfshættir sam-
vinnufélaga.
1 þessum flokki eru 5 bréf,
ca. 50 fjölritaðar síður. Er þar
lýst, hvernig samvinnufélögin
eru byggð upp félagslega og
verzlunarlega. Kennslugjald er
kr. 30,00.
2. Fundarstjórn og fundarreglur:
1 þessum flokki eru 3 bréf,
ca. 30 fjölritaðar síður. Er þar
lýst, hvernig góður fundarstjóri
stjórnar fundum og eftir hvaða
reglum verður að fara, til þess
að góður árangur geti orðið af
störfum fundarins. Kennslu-
gjald kr. 20,00.
3.. Bókfærsla I:
í þessum flokki eru 7 bréf,
112 prentaðar síður. Flokkurinn
er fyrir byrjendur og verður
kennt tvöfalt bókhald og sýnt
hvernig efnahags- og reksturs-
reikningar fyrirtækja eru gerðir
upp. Kennslugjald er kr. 50,00.
4. Bókfærsla II.
1 þessum flokki eru 6 bréf,
og er hann beint framhald af
fyrra flokki. Eru þa rtekin
dæmi af stærri fyrirtækjum og
„ margbrotnari bókfærslu. Nem-
andi, sem hefur tileinkað sér til
fulls efni beggja þessara flokka,
hefur lært álíka mikið og hér
er krafizt til almenns verzl-
unarprófs í bókfærslu. Kennslu-
gjald er kr. 50,00.
5. Búreikningar.
1 þessum flokki eru 7 bréf.'
Þau hefur samið Guðmundur
Jónsson kennari á Hvanneyri
og forstöðumaður Búreikninga-
skrifstofu ríkisins. Kennd eru
undirstöðuatriði í færslu ein-
faldra búreikninga. Bréfunum
fyigir bókin „Leiðbeiningar um
færslu búreikninga“ eftir Guð-
mund Jónsson. Kennslugjald er
kr. 40,00.
6. Enska.
1 þessum flokki eru 7 bréf,
152 prentaðar síður, og auk þess
ensk lesbók. Flokkurinn er fyrir
byrjendur. Kennd eru undir-
stöðuatriði enskrar tungu. Sér-
stök áherzla er lögð á réttan
framburð og meginreglur
enskrar málfræði. Við kennslu
á framburði eru notaðar hljóm-
plötur, talaðar af enskum mönn
umogkonum. Vegnastyrjaldar-
innar verður ekki hægt að út-
vega hverjum nemanda plöt-
urnar, en þær verða spilaðar í
útvarpið í enskutímum þess.
Kennslugjald er kr. 50,00.
7. ísienzk réttritun.
í þessum flokki eru 6 bréf.
Höfundur þeirra er Sveinbjörn
Sigurjónsson magister. Kenndar
eru meginreglur um réttritun
í íslenzku og nokkuð drepið á
málfræði. Fjöldi æfinga og verk-
efna fylgir bréfunum. Kennslu-
gjald er kr. 50,00.
8. Reikningur.
I þessum flokki eru 10 bréf.
Kenndur verður hagnýturreikn-
ingur, byrjað á undirstöðuat-
riðum. Bréfin f jalla um reikning
og reikningsaðferðir, semkennd-
ar eru á 2—3 vetrum í fram-
. haldsskólum. Kennslugjald kr.
120,00.
—«
Bréfin eru samin og svörin verða
leiðrétt af ágætum kennurum í
hverri grein.
Að svo stöddu mun sljólinn ekki
leggja til svara- og verkefnahefti,
en ætlast er til þess, að nemendur
noti litlar stílabækur, eða laus
blöð. Áherzlu skal leggja á það
að ganga sem bezt frá svörunum,
skrifa greinilega og hafa breiða
spássíu auða fyrir leiðréttingar.
Það er góð relg*a að skrifa aðeins
í aðra hvora línu.
Starfi skólans verður hagað svo,
að nemandi getur tekið eina náms-
grein eða fleiri, eftir því sem
ástæður hans leyfa. Um leið og
hann sækir um kennslu í einhverri
grein, sendir hann kennslugjaldið
fyrir þá námsgrein, eða vottorð
frá Sambandsfélagi um, að hann
hafi greitt því kennslugjaidið.
Nemandi verður að gæta þess,
að tilgreina skýrt heimilisfang sitt.
Nemanda verða síðan send tvö
fyrstu bréfin í námsgreininni.
Hann svarar fyrst bréfi nr. 1,
heldur síðan áfram að svara bréfi
nr. 2, meðan hann bíður eftir svari
frá Bréfaskólanum. Þegar skólinn
fær svar 1, sendir hann nemanda
bréf nr. 3 og leiðréttingu á svari
nr. 1. Þegar skólinn fær bréf nr. 2,
sendir hann bréf nr. 4 og leiðrétt-
ingu á svari nr. 2 og svo koll af
kolli, þangað til flokkurinn er bú-
inn. Svar við bréfi verða að vera
komin til skólans minnst 3 mán-
uðum eftir að bréfið var sent út.
Annars verður litið svo á, að nem-
andi hafi hætt námi, og hefur
hann þá fyrirgert kennslugjaldi
sínu. Undanþágu frá þessu getur
skólinn veitt, ef ætla má, að póst-
samgöngur hafi hamlað, eða nem-
andi hefur verið veikur. Innan
þessara tímatakmarkana ræður
nemandi því sjálfur, hve mikinn
námshraða hann hefur, en heppi-
legast er fyrir hann að svara bréf-
unum, eins fljótt og hann getur.
Nýir nemendur geta fengið inn-
göngu, hvenær sem er á starfs-
tíma skólans. Fyrst um sinn er
ekki gert ráð fyrir, að próf verði
haldin, en síðar meir, þegar
nokkur reynsla er fengin, kunna
próf að verða haldin fyrir þá, sem
þess óska.
Þegar nemandi hefur lokið námi,
fær hann vottorð um það frá skól-
anum. Nemendur verða að skuld-
binda sig til að sýna ekki óviðkom-
andi mönnum bréf skólans, né
svör. S
Bréfaskólar eru mikið notaðir
erlendis. Samvinnusambönd í ná-
grannalöndum okkar reka flest
bréfaskóla. Þeir eru hentugir fyrir
fólk á öllum afdri og hvaða at-
vinnu, sem það stundar. Nemand-
inn getui: notað frístundir sínar,
hvenær dagsins, sem þær eru, til
að lesa bréfin og undirbúa svörin.
Hann ræður og sjálfur að miklu
leyti námshraða sínum. Á þennan
hátt notast frístundirnar mikiu
betur ,en í venjulegum skóla.
Bréfaskólar hafa og þann kost, að
fólk, sem búsett er á stöðUm, þar
sem lítið er um góða kennslu-
krafta, getur á þennan hátt notið
kennslu færustu manna í hverri
grein. Margir ágætir menn hafa
sótt menntun sína til bréfaskóla.
I ýmsum löndum eru skólarnir svo
fullkomnir, að þeir kenna allt, sem
þarf til stúdentsprófs og í sumum
greinum til háskólaprófs. Þetta
kennsluform er þegar reynt og
hefur reynzt vel.
Takið eftir! Bréfaskóli SlS veit-
ir ungum, gömlum, konum og körl-
um tækifæri til að nota frístund-
irnar, til að afla sér fróðleiks um
efni, seni allir hafa gagn af að
kunna. Þér getið gerst nemandi,
hvenær ársins sem er, og eruð
ekki bundnir við námshraða
annarra nemenda.
Bréfaskóli SÍS býður yður vel-
komin.
Utanáskrif Bréfaskólans er:
gjP"*****
Bréfaskóli SlS
Sambandshúsinu,
Reykjavík.
Þeir, sem hug hafa á því að
njóta kennslu í bréfskólanum geta
látið innrita sig í hann á skrif-
stofu Kaupfélags Siglfirðinga, og
geta þar fengið allar frekari upp-
lýsingar varðandi námið.
(Framhald af 2. síðu)
ar til sinna ,,færu“ lögfræðinga,
eins og þeir væru eitthvað æðra
stjórnarvald!
Ráðuneytið er æðra stjórnar-
vald en bæjarstjórnin og í siðuðu
þjóðfélagi verður óæðra valdið að
hlýða því æðra, unz úr sé skorið
af enn æðra stjórnarvaldi á lög-
legan hátt, í þessu tilfelli af dóm-
stólunum.
Þessa hefir meirihluti bæjar-
stjórnar ekki gætt, heldur látið
Þormóð og kommana narra sig til
þess að brjóta þessa sjálfsögðu
reglu. En engu líkara er, eftir
grein Schiöths, en að hann skilji
ekki þessa mikilvægu reglu, hvers
siðaðs þjóðfélags.
Maður hefði nú getað trúað
kommunum til þess, að þeim flökr-
aði ekki við að rísa gegn úrskurð-
um rikisvaldsins áns þess að fá
þeim breytt á löglegan hátt eða
a.m.k. gera tilraun til þess. Hitt
þótti ótrúlegra, að bæjarstjóri,
sem væri Sjálfstæðismaður, léti
narra sig út í slíkt ævintýri, og
að jafnheit Sjálfstæðiskempa og
Schiöth okkar skyldi gerast skó-
sveinn þess óheillavættis, er þannig
flekaði Sjálfstæðishetjurnar tvær.
Hinn greindi kommúnisti Gunnar
Jóhanrisson sagði líka um þetta á
bæjarstjórnarfundi: Við gerum
þetta til þess að kljúfa borgara-
flokkana. Er það út af fyrir sig
athyglisvert og sýnir m. a. stjórn-
málahyggindi bæjarstjórans og
Schiöths, en hitt er enn verra, ef
það kynni að draga dilk á eftir sér
fyrir bæjarstjórnina í öðrum mál-
um, ef henni yrði ekki trúað fyrir
því að ráða málum sínum innan
þess réttarsvæðis, sem henni að
lögum, er afmarkað. Blaðið vonar,
að svo margir sanngjarnir og
vitrir menn megi hér eftir jafnan
skipa bæjarstjórn Siglufjarðar, að
við slíku sé ekki hætt, en hinsvegar
er rétt að leggja niður fyrir sér,
hverjar afleiðingar það getur haft
fyrir bæjafélragið í framtíðinni, ef
oft er höggvið í sama óheilla kné-
runn heimskulegra ofbeldisverka.
Mun bæjarstjórinn og Schiöth
varla græða á frekari umræðum,
en eigi verður því neitað, að full-
hugi er Schiöth að fara með slík-
um rökum að hreyfa þessu máli
aftur og tæplega mun flokkur hans
kunna þonum þakkir fyrir.
Er svo útrætt um þetta mál af
hendi Einherja.
Aumingja Schiöth
\
#