Einherji - 27.05.1953, Blaðsíða 1
3. tölublað
jFratn$óknarmaittui í
Miðvikudagur 27. maí 1953
Frambod Framsóknar-
flokksins í Siglufirði
Jón Kjartansson, bæjarstjóri, verður í kjöri í Siglu-
firði fyrir Framsóknarflokkinn við alþingiskosn-
ingarnar, sem fram eiga að fara 28. júní h. k.
Jón Kjartansson þarf e'kiki að i
ltynna fyrir Siglfirðingum. Hann
er, eins og kunnugt er, fæddur
og uppalinn í Siglufirði og hefiu-
starfað hér alla sína tíð, við hin
margþættustu störf og leyst þau
af hendi af samvizkusemi og
dugnaði.
Jón Kjartansson tók hér við
bæjarstjórastarfinu á erfiðum
t'ima. Vanskilaskuldir höfðu hlað-
izt upp hjá bænum og hér hafði
verið bæjarstjóralaus um nokk-
urn tíma. Síðan hafa erfiðlei'karn-
ir enn aukizt með áframhaldandi
síldarleysisárum. Höfuð atvinnu-
vegur Siglufjarðar hefur brugð-
izt að mestu öll þau ár, sem Jón
hefur verið bæjarstjóri. En með
sérstökum dugnaði, skyldurækni
við sitt bæjarfélag og samninga-
lipurð, sem er viðurkennd bæði
af andstæðingum hans sem öðr-
um, hefur honum tekizt ýmist að
íkoma í höfn eða þoka áleiðis þeim
framfara- og nauðsynjamálum, er
ibærinn hafði og hefur í fram-
kvæmd.
Það eru sennilega ekki allir,
sem hugleiða það, hvað störf bæj-
arstjórans eru margþætt og þýð-
ingarmikil fyrir bæinn og bæjar-
búa. Þessi störf væru þó leikur
einn, ef hér rlkti venjulegt at-
vinnuástand og sildveiðin hefði
ekki brugðizt, — hjá þeim miiklu
erfiðleikum, sem hafa skapazt,
þegar aðalatvinnuvegur bæjarbúa
bregst að mestu ár eftir ár og
tekjustofnar bæjarins, þar af leið-
andi, hrapa niður.
I svona erfiðleikum reynir fyrst
á dugnað og manndóm þess
manns, sem er framkvæmdastjóri
bæjarfélagsins og "orsvarsmaður.
Það er t. d. allkunna, að Sjálf-
stæðismenn hælast mikið um yfir
f jármálastjórn sinni á Reykjavík-
urbæ og dugnaði borgarstjórans,
Gunnars Thoroddsen. En vilduð
þið, Siglfirðingar góðir, hugleiða
það, hvernig útkoman yrði hjá
borgarstjóranum í Reykjavík, ef
að hann gæti ekki um árabil lagt
tekjuútsvör svo neinu næmi, á
helztu atvinnugreinar höfuð-
staðarins og hefði ekki úr öðrum
útsvarstekjum að spila en
veltuútsvörum og tekjuútsvörum
á láglaunafólk.
Undir svona kringumstæðum
reyndi fyrst á, hversu fjármála-
stjórn Sjálfstæðism og hagsýni
Gunnars borgarstjóra dyggði til.
En þetta eru þeir erfiðleikar,
sem Jón Kjartansson hefur orðið
að glíma við þau ár, sem hann
hefur verið hér bæjarstjóri.
Hér verður ekki rifjaður upp
gangur ýmissa þeirra mála, sem
Jón Kjartansson hefur haft með
að gera fyrir bæinn. Fólki eru
þau vel kunn. En þó að því hafi
verið haldið á lofti hár í bænum
'i áróðursskini, að Jón Kjartans-
son sæti oft lengi við samninga-
borðið í Reykjavík, út af erindum
fyrir bæinn þá liefur hann komið
heim íneð svo stórfellöan árangur
fyrir Siglufjörð, að það hefur va';
ið eftirtekt víða um land.
Þetta ættu kjósendur í Siglu-
firði vel að muna við kjörborðið
28. júní m. k.
Þeir ættu að bera saman þátt
Jóns Kjartanssonar í lausn ým-
issa vandamála bæjarins og á-
huga hans á iframt'iðarmálum
hans og hinna þriggja frambjóð-
endanna.
Frambjóðandi Sósíalistaflokks-
ins, Gunnar Jóhannsson, hefur að
vísu setið í bæjarstjórn Siglufjarð
ar um árabil, en vegna aðstöðu
22. árgangur.
BHBBEH
Kosnrngaskrifst.
Framsðknarfi.
er í Norðurgötu 4.
Opin 5—7 og 8,30—10,30
síðd. — Framsóknarmenn
og annað stuðningsfólk
Jóns Kjartanssonar er
beðið að liafa samband
við skrifstofuna.
Kosninganefndin
sinnar sem kommúnisti yrði hann
vita áhrifalaus á .alþingi og hefði
ekki minnstu möguleii’.ra, frekar
en Áki Jakobsson, til þess að
koma málefnum Siglufjarðar í
höfn. Þetta vita allir Siglfirðing-
ar. Þetta er staðreynd, sem
greinilega hefur sannazt á liðnu
kjörtímabili.
Kciímiúnisti er þvi gagnslaus
þingmaður fyrir Siglufjörð.
Þingmannsefni Alþjfl., Erlend-
ur Þorsteinsson, sat hér i bæjar-
stjóm nokkur ár, eða þar til at-
vinnuerfiðleikarnir fóru að herja
í. Þá uppgafst hann og flúði bæ-
inn. Síðan hafa Siglfirðingar lítið
frá honum heyrt, nema helzt fyr-
ir alþingiskosningar. Þá er hann
sendur hingað af Stefáns Jóhanns
liðinu til þess að biðja um at-
kvæði.
Það ætti því að vera auðve’.t
fyrir kjósendur að gera upp á
milli frambjóðanda Aiþ.fl. og
Jóns Kjartanssonar. Siglufjarðar-
bær er með miklar iframkvæmdir,
sem margar eru nauðsynlegar fyr
ir vöxt og framþróun bæjarins.
Þær eru misjafnlega á -leið komn-
ar og hafa fjárhagsörðugleikar
undanfarandi - aflaleysisára tafið
fyrir framgangi þeirra. En þær
eiga það flestar sameiginlegt, að
þeim verður ekki komið i höfn
Framhald á 3. síðu
Sendum Siglfirðinginn Jön Kjartans-
son á þing fyrir Siglfirðinga
Fjórir stjórnmálaflokkar hafa
nú tilkynnt framboð s'in hér í
Siglufirði, við Alþingiskosningarn
ar, sem fram eiga að fara 28.
júní n.k. Tveir af þessum fram-
bjóðendum hafa áður verið í kjöri
hér, þ. e. þeir Jón Kjartansson
og Erl. Þorsteinsson, en tveir eru
nýjir af nálinn, þ. e. Einar Ingi-
mundarson og Gunnar Jóhanns-
so'n.
Framboðin eru mikið rædd
Manna á milli er nú mest talað
um kosningarnar og hver verða
muni næsti þingmaður Siglfirð-
inga. Nokkrir spyrja um ástæð-
urnar fyrir því, að Áki Jakobsson
er nú ekki í kjöri ifyrir kommún-
ista eins og að undanförnu. —
Kommúnistar hér hafa gefið þá
skýringu, að einkaástæður Áka
valdi hér mestu. Fáir munu trúa
þessu. Hitt mim vera réttara, að
ástæðurnar fyrir breytingunni á
framboði kommúnista hér séu há-
pólitískar. Annaðhvort er Áki orð
inn leiður á Kommúnistaflokkn-
um og freistar nú að byrja nýtt
pólitískt l'if, eða kommúnistar
hafa fengið nóg af Áifca.
Það skiptir ekki miklu máli
hvort frambjóðandi kommúnista
hér heitir Áki, Gunnar eða eitt-
hvað annað. Það er fyrirfram vit-
að, að kommúnistaþingmaður get-
ur engu til leiðar komið á Alþingi.
Saga síðustu ára sannar oikkur
það áþreifanlega. Kommúnista-
þingmenn verða utan gátta á
þingi og þar af leiðandi vanmátt-
ugir. Það veit öll þjóðin.
„Slyngasti samningámaðurinn".
Meðal Alþýðuílokksmanna hér
ríkir mikil óánægja yfir því, að
flokkur þeirra sku-li enn einu
sinni bjóða upp á Reykvíiking sem
kandídat hér við Alþingiskosning-
arnar í vor. Margir héldu að með
tilkomu Sigurjóns Sæmundssonar
í Alþ.fl. væri vandamál kratanna
hér í sambandi við framboðið til
Framhald á 4, síðu