Einherji - 27.05.1953, Blaðsíða 3
EI NH E R J I
3
S K R k R
FYRIRMÆLI
yfir tekjuskatt og eignaskatt, tekjuskattsviðauka og stríðsgróða-
skatt, skrár yfir iðgjöld til Almannatrygginga og gjöld til námsbóka-
sjóðs, liggja frammi, almenningi til sýnis, á skrifstofu bæjarfógeta
frá 18. maí til 2. júní 1953. Kærur yfir álögðum gjöldum sendist á
skrifstofu bæjarstjóra í síðasta lagi 2. júní 1953.
SKATTANEFND
Atvinnuleysisskráning
Samkvæmt ákvörðun. bæjarstjórnar Siglufjarðar hefur verið á-
formað að fram fari atvinnuleysisskráning hér í Siglufirði dagana
27., 28. og 29. maí n. k.
Skráningin fer fram á bæjarskrifstofunum fyrrnefnda daga frá
kl. 1—6 e. h.
Hér með er skorað á allt atvinnulaust fólk að mæta til skrán-
ingar.
Siglufirði, 22. maí 1953.
BÆJARSTJÓRI
Framboð Framsóknarfiokksins í Siglufirði
Framhald af. 1. síðu
nema með aðstoð þings og stjórn-
ar, fjárframlögum og lánum frá
því opinbera. Má þar t. d. nefna,
að ljúka við virkjun Skeiðsfoss,
ljúka við Gagnfræðaskólann, full-
gera vatnsveituna, vinna áfram
að innri höfninni og svo ekki sízt
að koma á fót nýjum atvinnu-
greinum fyrir bæjarbúa.
Hvort eru nú meiri l'ikur fyrir
því, að þingmaður frá fámennasta
flokknum á Alþingi, Alþ.fl., eða
þingmaður frá öðrrun aðalflokki
þingsins, Framsóknarfl., verði á-
hrifameiri og hafi betri aðstöðu
til að koma málum Siglfirðinga á
framfæri. Þingmaður frá Fram-
sóknarfl. hlýtur að hafa þarna
margfallt stenkari aðstöðu og það
því fremur, sem Jón Kjartansson
er gjörkunnugur öllum málefnum
Sigluf jarðar og vel þekktur í sín-
um flokki. Fæddur Siglfirðingur
og heimamaður, sem er sérstak-
lega áhugasamur um öll velferð-
armál bæjarins.
Hjá Sjálfstæðisflokknum er
eins og aldrei sé neitt um að velja
Þar virðist vera gegnumgangandi
regla, að írambjóðandi hans
sikuli vera bæjarfógetinn, hver
svo sem hann er, bar ef hann er
íSjálfstæðisflokknum. Það er vit-
að mál, að miðstjóm Sjálfstæðis-
flokksins réði þessu framboði og
átti hún þó völ margra mætra
Sjálfstæðism. hér í bænum, sem
ekki hafa flúið af hólmi, þó syrt
hafi i álinn. En er þá noikkur á-
stæða fyrir Siglfirðinga að ta'ka
alveg óþekktum aðkomumanni,
sem Bjarni Benediktsson hefur
sent hingað í embætti, og fela
honum umboð okkar á Alþingi,
þegar við höfum völ á vel þekkt-
um Siglfirðingi og áhrifamanni í
öðrum stærsta stjórnmálaflokki
landsins.
Framsóknarfloikkurinn *og ráð-
herrar hans í ríkisstjórn hafa
gert mikið fyrir Siglufjörð (að
öðrum flokkum og ráðamönnum
þeirra alveg ólöstuðum) og for-
ráðamenn Framsóknarflokksins
hafa, öðrum fremur, næman skiln
ing á því, að hér þarf að reisa
við nýtt atvinnulif og það verður
ekki gert nema með aðstoð þess
opinbera að einhverju leyti.
Siglufjörður er að mestu byggð
ur upp af verkafólki. Og til þess
að þjóðimii geti vegnað vel fjár-
hagslega, þurfa verkamenn og
bændur að vinna meira saman.
Framsóknarflokkurinn er flokkur
bænda, verkamanna og smærri
framleiðenda. Hann er eini stjórn
málafloikkurinn í landinu, sem
berst fyrir því, að dreifa fjár-
magninu á sem flestra hendur til
sjávar og sveita. Hann er eini
stjórnmálaflokkurinn í landinu,
sem vill tryggja það, með því að
beita rekstrarkerfi samvinnunnar
'i framleiðslu og verzlun, að af-
rakstur vinnunnar fari sem mest
og beinustu leið til þeirra, sem
vinna verkin, hvort sem þeir búa
við sjó eða í sveit.
Valið er því auðvelt fyrir íkjós-
endur í Siglufirði, við þessar kosn
ingar. Jón Kjartansson er þekkt-
asti og áhrifamesti frambjóðand-
inn um öll málefni Siglufjarðar.
Framsóknarflokkurinn hefur gert
meira fyrir Siglufjörð en nokkur
annar floikkur, þegar erfiðleikarn-
ir hafa steðjað að. Jón Kjartans-
son er líklegasta þingmannsefnið
til þess að vinna Siglufirði mest
gagn á Alþingi, ef hann verður
kosinn.
Kjörorð okkar Framsóknar-
manna og annarra, sem styðja að
kosningu Jóns Kjartanssonar, er
því:
Gerum Siglfirðinginn Jón Kjart
ansson að þingmanni Sigluf jarðar
28. júní n. k.
um skráningu og skoðun opinna báta
Samkvæmt lögum nr. 68/1947 um eftirlit með skipum, 2. gr. sbr.
nr. 37/1930 um skráningu skipa, 4. gr. 1. tölul. skal skrá og skoða
árlega alla opna báta, sem eru 6 metrar á lengd eða lengri, mælt milli
stafna, og gerðir eru út hér á landi, hvort heldurertilfarþegaflutninga,
vöruflutninga eða fiskveiða. Þó skal einnig færa á skrá og skoða ár-
lega þá báta, sem stunda fiskiveiðar að staðaldri, þó minni séu en
hér að framan getur.
I samræmi vi,ð framangreind ákvæði, er hér með skorað á alla eig-
endur opinna báta, sem skoðunar- og skráningarskyldir eru hér í um-
dæminu, að láta nú þegar og eigi síðar en 10. júní n.k. skoða þá og
skrá, hafi það ekki þegar verið gert. Mun lögreglan hér á staðnum
sjá um, að ákvæðum laganna um skoðun og skrásetningu opinna báta,
verði hlýtt, og munu þeir, sem vanrækja að láta skoða og skrá skoð-
unar og skráningarskylda báta fýrir þennan tíma, verða látnir sæta
ábyrgð samkvæmt refsingarákvæðum fyrrnefndra laga.
Þá skal einnig vakin athygli eigenda skipa, stórra sem smárra,
á ákvæðum 206. gr. reglugerðar nr. 11/1953 um eftirlit með skipum
og öryggi þeirra, þar sem segir, að hver sem geri út skip, sé skyldur
til að biðja um skoðun á því í tæika tíð, svo að hih fyrirskipaða skoðun
geti farið fram. Þá segir og í nefndri grein nefndar reglugerðar, að
þegar skip, stórt eða lítið, er dregið á land eða í þurrkv'i, skuli til-
kynna það skipaeftirlitinu, svo að botnskoðun geti farið fram, ef
eftiriitið óskar þess.
Siglufirði, 16 .maí 1953.
Bæjarfógetinn í Siglufjarðarkaupstað
EINAR INGIMUNDARSON
. Skoðunarmaður skipa í Sigluf jarðarumdæmi
HARALDUR GUNNLAUGSSON
Auglýsing
um framboð til kosninga til Alþingis
þann 28. júní 1953.
Framboð til kosingar alþingismanns í Siglufjarðarkjördæmi, sem
fram á að fara þann 28. júní 1953, skulu tilkynnt oddvita yfir-
kjörstjórnar, bæjarfógetanum í Siglufjarðarkaupstað, í síðasta lagi
Eyrir kl. 12 á miðnætti þann 27. mai 1953.
Tilgreina skal við framboðin skýrlega fullt nafn frambjóðenda,
stöðu þeirra og heimili, svo og fyrir hvaða stjórnmálaflokk þeir bjóða
sig' fram.
Fylgja skal hverju einstök.u framboði skriflega yfirlýsing eigi
færri en 12 og eigi fleiri en 24 kjósenda í Siglufjarðarkjördæmi, um,
að þeir styðji kosningu þess írambjóðanda, sem meðmælendalistinn
fylgir, fyrir þann stjórnmálaflokk, sem frambjóðandinn býður sig
fram fyrir.
Á meðmælendalistum skal einnig tilgreina heimilisföng meðmæl-
enda. Rétt eiga frambjóðendur á að gefa einum eða tyeimur mönn-
jm í hverri kjördeild umboð til að gæta hagsmuna sinna við kosn-
ingu á kjörstað og við atkvæðatalningu. Er rétt að frambjóðendur
tilkynni yfirkjörstjórn, hverjir verði umboðsmenn þeirra, um leið
og þeir tilkynna henni framboð sín.
Siglufirði, 21. maí 1953.
í yfirkjörstjórn Siglufjarðarkjördæmis:
SVEINN ÞORSTEINSSON OTTO JÖRGENSEN
EINAR INGIMUNDARSON