Freyr

Årgang

Freyr - 01.07.1930, Side 14

Freyr - 01.07.1930, Side 14
82 FREYR austurfyrir og rak í maímánuði suður með landi alt út í Grindavík og á fjórðu viku fylti hann sundið milli Eyjafjalla og Vest- mannaeyja, svo þar sá hvergi í auðan sjó. Vorið var á Suðurlandi mjög kalt og gróð- urlaust fram undir messur; fyrri hluta júnímánaðar varð að gefa hestum ferða- manna undir Eyjafjöllum; syðra snjóaði í fjöll á Jónsmessu og frost voru svo mik- il, að fatnaður ferðamanna stokkgaddaði á Hellisheiði 17. og 18. júnímánaðar. ... 1837. Þá kom ís með meira móti. ... Við Vatnsnes lá ísinn til 4. ágúst. ... 1839. Það vor var Jónas Hallgrímsson á ferð frá Kaupmannahöfn til Akureyrar og 12. júní sáu heir hafís 14 mílur fyrir austan Langa- nes, veður var kyrt og svarta þoka og hrím og ís á reiða skipsins; þó þeir væru tvær mílur frá ísnum, heyrðist þaðan brak og brestir og niður eins og af brim- hljóði, þó væri blæjalogn og ládeyða. Dag- inn eftir varð ísinn fyrir þeim, svo þeir komust ekki fyrir Langanes. .. . 1840. ... Skipstjóri Lorentzen, sem var á Eskifjarðarskipi það ár kvaðst hafa séð fyrstu ísjakana miðja vegu milli Færeyja og íslands. . .. Fjalljaki einn varð eftir milli Raufarhafnar og Langaness og stóð grunn á 50 faðma dýpi. ...“. Frekari upptekning hefir hér ekki að þýða. Þess má geta, að eftir miðja 19. öld og það fram á 9. tug þeirrar aldar, voru mörg harðæri og hafísar miklir. Eru sum þau harðæri núlifandi mönnum minn- isstæð. Læt eg fylgja hér með þessari grein minningar frá þeim árum, eftir merkan bónda hér í Þingeyjarsýslu, Áma Jónsson á Þverá í Reykjahverfi. Sendi hann mér þær eftir ósk minni og samtali okkar um þessi mál. Það er hægt að ganga að því vísu, að á þessum góðæristímum nálgumst við meir og meir næsta harðæristímabil og ísaár. Þetta vil eg hér með biðja bændur vel að athuga. Setja sem varlegast á fóður- birgðir á hausti hverju, því að hver kom- andi vetur getur falið í skauti sínu fá- dæma harðindi, og hafísa er liggi við land fram undir haust. Ekkert bjargar þá bændum jafn vel sem miklar heybirgðir og fyrningar af heyjum eftir góðærin. Margt fleira er nauðsynlegt að taka fram í sambandi við þessar athuganir, sem gert mun verða síðar hér í blaðinu. Laxamýri 9. ágúst 1930. Jón H. Þorbergsson. n. Eg er þér sammála um það, að þess sé varla að vænta, að það árferði, sem við i'.öfum haft við að búa þennan síðasta ára- tug verði ævarandi. Síðan 1920 hafa sum- urin verið hlý, grassprettan góð, veturnir snjóléttir og mildir, jörð gróið snemma og engin teljandi ísrek. Væri gott við slíkt að búa öll ár. Virðist mér ekki laust við að vart verði við að ýmislegt sé á því bygt, að árferðið fari ekki að breytast og víst eru þeir fáir, sem safna í kornhlöður þessi góðu árin að dæmi Farós. Búi sig undir að taka á móti næstu harðindunum. — Reynsla liðíns tíma, ára og alda, sýnir þó að einatt hefir skiptst á með tíðarfarið, og því miður má eins og telja víst, að svo fari enn, að á okkur dynji veruleg ó- tíð og harðindi og náttúruöflin sem við eigum svo mikið undir, hafi engri algerðri breytingu tekið, svo enn skiptist á blítt og strítt hvað árferði og veðráttu snertir. Þú getur til, að eg kunni sökum aldurs og fleira að muna og geta sagt um síðustu harðindin, sem gengu yfir landið á níunda tug 19. aldarinnar. Er mér ekki erfitt að rifja það upp, því enginn áratugur æfinn- ar hefir orðið mér eins minnisstæður og sá og ber margt til þess, þar á meðal það, að lífið hefir verið minn einasti skóli, og á

x

Freyr

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.