Einherji - 28.02.1967, Qupperneq 1
• Samvinnufélögin
skapa sannvirði á
vöru og auka öryggi
hvers byggðarlags
• Gangið í sam-
vinnufélögin.
• Verzlið við sam-
vinnufélögin
• Samvinnan skap-
fílaö Framsoknarmanna i Norourlandskjördœmi vestra. ar betri ufskjör.
2. tbl. Þriðjudagur 28. febrúar 1967. 36. árgangur.
Framboöslisti Framsóknarmanna
í Norðurlandskjirdæmi vestra
í fllpingiskasningunum 1967
Listinn var ákveðinn á framhaldskjördæmisþingi að Húnaveri 29.
jan. sl. Sömu menn skipa listann og við tvennar síðustu kosning-
ar, eða síðan kjördæmabreytingin var gerð
Landsmót skíðamanna á
Siglnfirói nm páskana
Skíðamót Islands verður
háð dagana 21.—26. marz,
og verður dagskráin þannig:
Þriðjudaginn 21. marz kl.
15.00: Mótið sett. Ganga 20
ára og eldri. Ganga 17—19
ára.
Miðvikudaginn 22. marz kl.
15.00: Stökk 20 ára og eldri.
Stökk 17—19 ára. Keppni í
norrænni tvíkeppni.
Fimmtudagixm 23. marz kl.
14.00: Stórsvig karla og
kvenna. Kl. 15.00: Boðganga.
Föstudaginn 24. marz kl.
10.00: Skíðaþing.
Laugardaginn 25. marz kl.
14.00: Svig kvenna og karla.
Sumiudaginn 26. marz kl.
14.00: 30 km ganga. Kl. 15:
Flokkasvig. Kl. 20.00: Verð-
launaafhending og mótsslit.
Þáttt.tilkynningar þurfa að
berast eigi síðar en 9. marz,
ásamt þátttökugjaldi, kr.
25.00 fyrir hvern keppanda
í hverri grein.
Mótstjórnin áskilur sér
rétt til að breyta dagskrá
mótsins vegna veðurs eða
annarra ófyrirsjáanlegra or-
saka.
2. ÓLAFUB JÓHANNESSON
alþingismaður
1. SKtJtiI GUÐMUNDSSON
3. BJÖBN PÁUSSON
alþingismaður
5. MAGNÚS GlSLASON
bóndi, Frostastöðum
alþingismaður
forstjóri, Beykjavík
bóndi, Asi bæjarfógeti, Sauðárkróki bóndi, Lækjamóti bóndi, Flatatungu verkstjóri, Siglufirði
„Hafnarnefnd Siglufjarðar
fagnar því frumkvæði síldar-
saltenda í Siglufirði, að beita
sér fyrir stofnun hlutafélags
til kaupa á skipi til flutninga
á síld til söltunar af f jarlæg-
um miðum. Telur hafnar-
nefnd eðlilegt að greint hluta
félag, ef stofnað verður, leiti
fyrirgreiðslu atvinnujöfnun-
arsjóðs varðandi fjármagns-
útvegun.
Hafnarnefnd samþykkir að
hafnarsjóður gerist hluthafi
í fyrrgreindu félagi, ef stofn-
að verður, með kaupum á
þremur 75 þús. kr. hlutum
(kr. 225.000.00), enda fylgi
þeirri hlutafjáreign sami
réttur til hráefnis- og hluta-
fjáreign síldarsaltenda og
deilist á þær söltunarstöðvar
sem hafnarsjóður á og leigir
út. Hlutabréf þessi verði
greidd, ef til kemur, af af-
borgun bæjarsjóðs til hafn-
arsjóðs, sbr. undirlið 914 í
FBAMHALD A 3. SfÐU
Tóku á móti
206 þús. tonnum
Síldarverksmiðjur ríkisins
tóku á móti 206 þús. tonn af
hráefni af síld á árinu 1966.
Framleiðsla verksmiðjanna
var 40700 tonn af mjöli og
38000 itonn af lýsi.
Útflutningsverðmæti nettó
var um 486 millj. kr. Verk-
smiðjurnar greiddu fyrir hrá
efni 317.5 millj. króna, og
greiddu í vinnulaun um 68
millj. króna.
Fréttamönnum blaða var
boðið til fundar með stjórn
safnaðarheimilis og kynnti
sr. Þórir Stephensen formað-
ur stjórnar, starfsemina sem
hefir verið mikil og lofar
góðu um framtíðina. Það var
árið 1965, sem safnaðarfund-
ur samþykkti að kaupa
gamla sjúkráhúsið, en það
stendur við Aðalgötuna á
Sauðárkróki og er næsta hús
við kirkjuna, og þótti kjör-
inn staður fyrir starfsemi
Æskulýðsfélags Sauðárkróks
kirkju.
Sl. haust var námskeið í
ýmis konar föndri kvenna
undir stjórn frk. Helgu Vil-
hjálmsdóttur.
„Opið hús“ hefir verið í
vetur við mikla aðsókn, og
hafa unglingarnir kunnað
vel að meta þá aðstöðu, sem
þeim hefir þar verið sköpuð.
Nú standa yfir námskeið
í handavinnu og föndri,
bridge, meðferð ljósmynda-
FBAMHALD Á 6. SÍÐU