Einherji - 20.04.1967, Page 1
• Samviimufélögin
skapa sannvirðl á
vöru og auka öryggi
hvers byggðariags
• Gaagið i sam-
vinnufélögin.
• Veralið við sam-
vinnufélögln
Blaö Framsóknarmanna í Norðurlandskjördœmi vestra.
• Samvinnan skap-
ar betri lífskjör.
3.-4. tbl.
Fimmtudagur 20. aprll 1967
36. árgangur.
Ný umbótastefna mótuð
FJÓRTÁNDA FLOKKSÞING FRAMSÓKNARMANNA
FLOKKURINN OG TÍMINN FIMMTÍU ÁRA
EYSTEINN JÓNSSON HELGI BEBGS SIGURJÓN GUÐMUNDSSON
14. flokksþing Framsókn-
arflokksins var haldið í
Reykjavík 14.—19. f. m. Á
fimmta hundrað fulltrúar
sátu þingið víðsvegar að, en
samgönguörðugleikar höml-
uðu mörgum fulltrúum að
komast til þings. Formaður
flokksins, Eysteinn Jónsson,
flutti snjalla ræðu um stjóm
málin og ný viðhorf, sem
við blöstu. Helgi Bergs, rit-
ari flokksins, flutti skýrslu
í upphafi þings, svo og Sig-
urjón 'Guðmundsson, gjald-
keri flokksins. Síðan hófust
nefndarstörf.
Fjölda ályktana og tillagna
samþ. þingið og margar af
þeim ályktunum eru líklegar
til að valda tímamótum í
flokksstarfinu. — Þá var
stjórnmálaályktun flokksins
mjög ýtarleg og kemur þar
margt fram, sem sýnir, að
ný umbótastefna, byggð á
reynslu þess liðna, er þar
fram sett sem stefnumark
Framsóknarflokksins. Er
fyrri hluti hennar birtur hér
á 2, síðu blaðsins. Áberandi
var hve mikinn og virkan
þátt yngri kynslóðin tók í
störfum þingsins og mótun
ályktana og samþykkta um
framtíðarstörf flokksins.
I tilefni 50 ára afmælis
flokksins, fyrr í vetur, svo
og 50 ára afmælis Tímans,
17. f. mánaðar, var haldin
mjög fjölmenn hátíðasam-
koma í Háskólabíói 18. marz.
Var þar mjög mikið fjöl-
menni, en lokahóf var hald-
ið að Hótel Sögu kvöldið
eftir.
Formaður flokksins var
kjörinn Eysteinn Jónsson,
varaformaður Ólafur Jó-
hannesson ,ritari Helgi
Bergs, vararitari Jóhannes
Elíasson, gjaldkeri Sigurjón
Guðmundsson og varagjald-
keri Kristján Benediktsson.
Mikitl maður
Þriðji maður á framboðs-
lista Sjálfstæðisflokksins í
Norðurlandskjördæmi vestra
er mikill maður. Hann víkur
heimamönnum til hliðar.
Hann ætlar sjálfum sér ó-
smáan hlut, svo sem miklum
manni sæmir. Hann ætlar
sér hvorki meira né minna
en að gerast bjargvættur
Norðurlandskjörd. vestra og
draga það upp úr því feni,
sem Framsóknarmenn og
samvinnufélögin hafa sökkt
því í.
Þetta og annað álíka
merkilegt kemur gerla fram
í 3. og 4. tölublaði Norðan-
fara, sem frekar ætti að
nefnast Sunnanfari, því að
sunnan mun hann sendur,
prentaður í skjóli Morgun-
blaðsins og skreyttur aug-
lýsingum reykvískra heild-
sala, okkur fáráðum Norðl-
ingum til leiðbeiningar um
hagstæð viðskipti.
„Grýla kallar á bömin
sín,“ segir í þulunni.
Ritstj. Morgunbl. skrifaði
fyrir rösku ári: „Auðvitað
vita allir, að .... Framsókn
armenn .... eru andvígir
einkarekstri og óska einskis
heitar en að atvinnufyrir-
tækin búi við sem mesta
örðugleika.“ (Auðk. hér).
1 forystugrem í 3. tbl.
Norðanfara (sem hvergi sést
hvar er prentaður, er það
eitthvert feimnismál að
nefna prentsmiðju Morgun-
blaðsins?) veltir höf. vöng-
um yfir því, hversu „þessar
byggðir," þ.e. Norðurl.kjör-
dæmi vestra, séu illa famar.
Hann spyr hvað valdi. Og
ekki stendur á svarinu:
„Nærtækasta svarið er
fólgið í þeirri staðreynd, að
Framsóknarmenn hafa yfir-
leitt ekki áhuga á því, að
upp rísi öflug fyrirtæki, ein-
staklinga eða félaga þeirra,
þeir em beinlínis andvígir
því að þeim samvinnufélög-
um, sem þeir ráðast(!) sé
veitt aðhald eða samkeppni.
Þess vegna leiðir af sjálfu
sér, að þeir hafa ekki áhuga
á að greiða fyrir því að upp
rísi nýr atvinnurekstur, sem
tryggt gæti lífsafkomu fólks
ins.“
Ættarmótið með hinum
tilvitnuðu ummælum í Morg-
unbl. og Norðanfara villir
ekki á sér heimildir. Póli-
tískum andstæðingum ætluð
illmennskan ein, tóninn að-
eins ívið mildari síðan rit-
Stjórinn íklæddist biðilsbux-
um. Og þó er innræti þeirra
sem ekki vilja ganga heild-
salatrú íhaldsins á hönd ekki
betra en svo, að enn em þeir
andvígir einu og öllu, „sem
tryggt gæti lífsafkomu
fólksins."
Þá þarf ekki lengur að
velkjast í vafa um það, hverj
um af ritstjórum Morgunbl.
lætur það bezt, að lauga sig
í forinni.
Allur er varinn góður. Höf.
þykir ekki taka því, að tæpa
á neinum rökum. En fróð-
legt væri að fá að vita við
hvaða fyrirtæki hann á,
þegar hann segir að Fram-
sóknarmenn séu beinlínis
andvígir því,“ að samvinnu-
félögunum hér í kjördæm-
inu „sé veitt aðhald eða
samkeppni," eða hafi „ekki
áhuga á að greiða fyrir því
að upp rísi atvinnurekstur,
sem tryggt gæti lífsafkomu
fólksins.“
Á hann við verzlunarfélög
in, sem nokkrir íhaldsmenn
stofnuðu með makt og miklu
veldi — sjálfsagt til að
Framhald á 5. síðu.
109.310 á kjörskrá 1967
Kjósendur eru 9.500 fleiri nú en fyrir 4 árum
Á kjörskrá 1963 99.796
Hagstofan hefur birt skrá yfir tölu einstaklinga
21 árs og eldri, þ.e. þeirra, sem á kjörskrá standa
nú. 1 kaupstöðum eru einstaklingar 21 árs og eldri
74.903 en í sýslmn landsins 34.407. 1963 vom til-
svarandi tölur 67.603 í kaupstöðum og 32.195 í
sýslum. Fjölgunin í kaupstöðum er því 7.300 eða
tæpl. 11% fjölgun. Fjölgun í sýslum er 2.212, eða
um 7% fjölgun.
I einstökum kjördæmum er fjöldi kjósenda
þessi:
Reykjavík: 46.159 (42.521) fjölgun 3.908, eða
um 9.2%.
Reyk janesk jördæmi: 17.096 3.342, eða um 24%. (13.754) fjölgun
Vesturlandskjördæmi: 7.086 456, eða tæp 7%. (6.630) fjölgun
Norðurlandsk-jördæmi vestra: fækkun 38, eða um 0.8%. 5.731 (5.769)
Norðurlandskjördæmi eystra: fjölgun 743, eða tæp. 7%. 11.945 (11.202)
Austurlandsk jördæmi: 6.169 (5.799) fjölgun
370, eða 6.4%.
Suðurlandskjördæmi: 9.546 (8.853) fjölgun tæp
8%.
Það fer ekki fram hjá neinum, að Norðurlands-
kjördæmi vestra er eina kjördæmið, þar sem um
beina fækkun er að ræða, enda mun Siglufjörður
eini kaupstaðurinn, þar sem bein fækkun hefur
orðið á íbúum árin 1965 og 1966.
Jónas Halldórsson
skákmeistari Norð-
urlands í 5. sinn
Skákþingi Norðurlands lauk á
Akureyri um 19. febrúar s. 1.
Jónas Halldórsson frá Leysingja-
stöðum í A.-Hún. varð skák-
meistari Norðurlands í fimmta
sinn og vann þar með til eignar
taflkóng, sem keppt hefur verið
um síðan 1919.
I meistaraflokki kepptu átta
menn og hlutu þrír efstu menn
eftirtalda vinninga:
Jónas Halldórsson 5 vinn.
Þorgeir Steingrímsson 4J4 —
Hjörleifur Halldórsson 4J4 —
Efstur í fyrsta floklú varð
Heigi Hauksson með 5 vinninga.
1 öðrum flokki urðu efstir og
jafnir Halldór Aðalsteinsson,
Stefán Ragnarsson og Örn Ragn-
arsson, allir með 3 vinninga.
í hraðskákkeppni varð I>or-
geir Steingrímsson hraðskák-
meistari Norðurlands með 2V/>
vinning af 24 mögulegum, 2.—3.
Jón Torfason og Jón Björgvins-
son með 20 vinninga hvor.
Samvinnubankinn
Aðalfundur Samvinnubankans
var haldinn fyrir nokkru. Uar
kom fram að innstæðuaukning
á árinu 1966 varð 50,9 millj. kr.
Innstæðufé er nú 452,5 millj., en
útlán 371,2 millj. Bankinn hefur
nú útibú á 7 stöðum utan Reykja
víkur og á tveim stöðum um-
boðsskrifstofur.
Endurkosnir í bankastjórn
voru: Erlendur Etnarsson, Hjört-
ur Hjartar og Vilhjáimur Jóns-
son. Bankastjóri er Einar Agústs-
son.
Kaldur marz-
mánuður
A Norðuriandi var nýliðinn
marzmánuður sá kaldasti, sem
komið hefur í 48 ár og annar
kaldasti á þessari öld. Aðeins
1919 var hann kaldari. A Suður-
landi var hins vegar marz 1951
eins kaldur og nú.
Musteri óttans
MorgunblaðshöUin við Að-
alstræti í Reykjavík er
reisulegt hús og ekkert hef-
ur þar verið sparað. En nú
þegar líður að kosningum
eru sumir farnir að kaUa
þetta „musteri óttans“, því
að óttinn við úrslit alþingis-
kosninganna setur svip á
margt, sem þaðan berst út
um höfuðborg og iands-
byggð, ýmist í Morgunblað-
inu sjáifu eða fylgibiöðum
þess hér og þar, svo og með
erindrekum sem komnir eru
á kreik.
Sá ótti, sem nú magnast í
musterinu, er ótti við
minnkandi kjörfylgi Sjálf-
stæðisflokksins og ótti við
Framsóknarflokkinn. Margt
ber tii: Viðreisnin löngu
strönduð og frelsið reynist
stjórnleysi. — Bjarni Bene-
diktsson þykir ekki sigur-
stranglegur foringi. Magnús
Jónsson ræður ekki við fjár-
málin, varð að hækka
skatta í fyrra og neyðist nú
tU að ausa tollvörum inn í
landið í trássi við iðnaðinn.
Jóhann Hafstein stendur í
stríði við Iæknastéttina, rík-
isútvarpið og almennings-
álitið, — og stjórnarmenn
í útvarpsráði orðnir að
gjalti fyrir ritskoðun. Niður-
skurður opinberra fram-
kvæmda og upptaka fjár
frá sveitarfélögum sætir nú
hörðum mótmælum jafnvel
hjá borgarfulitrúum Sjálf-
stæðisflolíksins í Reykjavík.
Kjarasamningar ógerðir.
Bændur og sjómenn þungir
á brún. — Og „slagari"
skemmtistaðanna: „Hvað á
að gera við Þorvald Garðar
— Jjegar hann kemur að
vestan?" lætur ámátlega í
eyrum þeirra, sem áður
höfðu nóg á sinni könnu.
— Dagur.