Einherji - 20.04.1967, Qupperneq 4
4
EINHERJI
Fimmtuclagur 20. apríl 1967
Bœjarmál á Sauðárkróki
Þegar farið var fram á
það við mig, að ég segði
fréttir úr bænum, og af því
sem efst er á baugi nú í
bæjarstjórn og mér sagt að
marga fýsti að heyra hvern-
ig aðkoma nýrrar bæjar-
stjórnar hefði verið og við-
brögð hennar til mála, tók
ég mér penna í hönd.
lóðir til úthlutunar en sem
nægja munu til úthlutunar
1. árs með svipaðri eftir-
spurn eftir lóðum og undan-
farin ár, en þá mun það
land er við höfum hér á flöt-
unum, og til greina kemur
til skipulags byggðar, búið.
Því var það að nú í vetur
var samþykkt tillaga í bæj-
á húsnæði er svo aðkallandi,
að öllum tiltækum ráðum
þarf að beita til að koma
málinu í höfn. Gamla
barnaskólahúsið hýsir ekki
lengur gagnfræða- og iðn-
skóla og því hefir gagn-
fræðaskólinn orðið að taka
leiguhúsnæði í vetur fyrir
einn bekk skólans.
NÝbyggingar á Sauðárkróki. — Ljósm.: Stefán Pedersen.
iSá stóri sigur, er Fram-
sóknarflokkurinn vann hér
á Sauðárkróki í síðustu bæj-
arstjórnarkosningum, er
okkur Framsóknarmönnum
vissulega hvatning ítil að
standa vörð um bæinn okk-
ar. Mörg verkefni eru fram-
undan og margt þarf að
gera til að bæta afkomu
borgaranna. Vissulega mun-
um við vinna eftir beztu
getu að framgangi hinna
ýmsu mála. En töframenn
erum við ekki, og enn eru
peningar afl þess er gera
skal.
Það sem við rákum okkur
á, og reyndar þóttumst vita,
var að geta bæjarfélagsins
fjárhagslega var til mikilla
muna verri en fráfarandi
bæjarstjórn vildi vera láta,
en fjármál bæjarins ætla ég
ekki að ræða hér, það var
gert hér í blaðinu fyrir
stuttu og verður sjálfsagt
síðar til frekari umræðu og
þá gerð ítarlegri skil.
Það, sem háð hefir fram-
kvæmdum á vegum bæjarfé-
lagsins er fyrst og fremst
fjármagnsskortur og hitt
sem að okkar dómi er ekki
minna atriði, en það er,
hversu hinum ýmsu sér-
fræðistörfum og undirbún-
ing framkvæmda hefir verið
ábótavant og vantað alger-
lega í sumum tilfellum, og
þá jafnframt ekki nægjan-
legt skipulag á röðum fram-
kvæmda. Því var það að á
fundi í bæjarstjórn 20. des.
sl., var samþykkt að gera
framkvæmdaáætlun fyrir
Sauðárkrók og var Gunnar
Áaústsson hagfræðingur úr
Revkjavík fenginn til að
annast áætlunargerðina. í
beinu framhaldi og í nánu
samstarfi af sérfræðistörf-
um í bæjum kemur skipylag
byvgðarinnar. Ástandið var
þannig í þeim málum, að til
stórra vandræða horfði og
dærni eru um, að sama gatan
í nýju hverfi hafi verið
skipulögð margsinnis. Lítið
sem ekkert hafði verið gert
til að tryggja að endar næðu
saman um byggingarlóðir,
en nú munu varla vera fleiri
arstjóm, að ráða Stefán
Jónsson arkitekt úr Reykja-
vík, til að vinna að skipu-
lagi Sauðárkróks. Stefán var
hér til viðræðu nú fyrir
stuttu og era sterkar líkur
á því að hann fáist til sam-
starfsins. Mestar líkur eru
á að næsta skipulagt byggð-
arsvæði verði á svonefndum
Sauðárhæðum. En þar er hið
fegursta útsýni um Skaga-
fjörð og við fyrstu athugun
virðast hentugar lóðir þar
til byggingar. En allar stofn
æðar, t.d. heitt og kalt vatn,
rafmagn, skolp og aðalgata
til byggðarsvæðisins, munu
kosta mikið fjármagn. Einn-
ig má geta þess, að öll und-
irbúningsvinna sem óunnin
er t.d. kortagerð og upp-
drættir sem skipulag bygg-
ist á er talið að kosti nokk-
ur hundruð þúsund krónur.
iStefán áætlar að skila
fyrstu tillögum að skipu-
lagi á nefndu svæði um
næstu áramót, en síðan ætti
að vera hægt að hefja út-
hlutun lóða til bygginga ár-
ið 1969, ef allt gengur sam-
kvæmt áætlun. Hér má
skýra frá því, að svæði það
er á eldra skipulagi var ætl-
að til bygginga iðnaðarhúsa,
að er bæjarstjóri lét menn
þá er fengnir hafa verið
sem tæknilegir ráðunautar
við varanlega gatnagerð
o.þ.h., haliamæla landið,
kom í ljós, >að mikill hluti
þess lands er byggja skyldi
á reyndist of lágt vegna frá-
rennshs húsanna. Hvað
hefði nú skeð, ef búið hefði
verið að úthluta og jafnvel
byggja á fleiri lóðum en út-
hiutað hefir verið nú þegar?
Hér vantaði undirbúnings-
vinnuna sem og víðar. Á
liðnu sumri hófust framkv.
við byggingu gagnfræða-
skóla. Hér er um mikla
framkvæmd að ræða og
mikið nauðsynjamál. Stærð
þess áfanga, sem nú er tek-
inn fyrir, er um 6000 rúm-
metrar og kostnaðaráætlun
um 30 millj. kr. Sjálfsagt
finnst mörgum upphæðin
mikil og víst er, að krón-
urnar eru margar, en þörfin
Nú, þegar þetta er skrif-
að, standa yfir samningar
um byggingu fyrsta áfanga
skólans, en það er að gera
bygginguna fokhelda á kom-
andi sumri. Á teikningum
og skipulagi lóðar er gert
ráð fyrir heimavist við skól-
ann, miðað við að þjóna þörf
Skagfirðinga allra um lands-
próf, miðskóla- og gagn-
fræðapróf. Annars ætla ég
ekki að ræða hér um skóla-
mál okkar Skagfirðinga, það
er efni í heila grein, en von
mín er sú, að heilbrigð dóm-
greind verði látin ráða en
ekki fordómar um skipan
þeirra mála.
Af gefnu tilefni og vegna
ummæla fráfarandi forseta
bæjarstjórnar í Morgunblað-
inu sl. haust, þar sem hann
lét í ljós undrun sína yfir
seinagangi hjá hinni ný-
kjörnu bæjarstjórn með
byggingu gagnfræðaskólans,
þar sem mikið fé hefði verið
fyrir hendi til byggingar-
innar, eða um 5 millj. kr.,
þá sfcal það tekið fram, að
enginn okkar í byggingar-
nefnd skólans hefir fundið
þessa peninga og hefir þó
mikið verið leitað. En sann-
leikurinn í málinu mun vera
sá, að miklu af því fé, sem
ætlað var til skólans hefir
fvrrverandi bæjarstjórn eytt
til annarra hluta. Framkv.
við varanlega gatnagerð eru
á framkvæmdaáætlun í
trausti þess að lán fáist til
framkvæmdanna. Á síðast-
liðnu sumri var unnið við
hæðarmæhngu gatna, lagðir
kantsteinar og gangstétt,
einnig voru niðurföll sett í
götur. Þá voru þær götur,
sem byggt var við í sumar,
undirbúnar þannig að jarð-
vegurinn var hreinsaður
burt, en möl sett í staðinn.
Því standast þessar götur
varanlega gatnagerð, þegar
að henni kemur. Því miður
reyndist allt það efni er
unnið hafði verið og keyrt
saman rétt fyrir síðustu
bæjarstjórnarkosningar, og
kostaði bæjarfélagið hundr-
uð þúsunda, algerlega ónot-
hæft til blöndunar olíumal-
ar. Nú hefur hins vegar ver-
ið unnið undanfarið að hörp-
un á nýju efni til blöndunar
með stórvirkum tækjum frá
Vegagerðinni, og hefur það
efni verið sent jafnhliða til
rannsóknar og staðizt þær.
Hafnarmál. — Hafnarmál
eru okkur Sauðárkróksbú-
um ekkert nýtt, þar hefur
verið byggt og grafið. Mik-
ið hefur verið unnið að því
að fá starfsmenn Vita- og
hafnarmálaskrifstofunnar til
að gera verulegt átak í þessu
brýna hagsmunamáli okk-
ar, og því ber að fagna að
nú höfum við fengið þrjá
nýja tillöguuppdrætti, sem
alhr eru um lokaða höfn.
Mestur áhugi hér heima er
fyrir tillögu nr. 1, höfn um
13 ha. að stærð, lengist þá
núverandi hafnargarður um
150 metra. Þá er gert ráð
fyrir öðrum garði frá þeim
stað er gamla bryggjan er
nú, en sá gtarður verður
um 420 metrar. Meðfram
landinu , frá svonefndu
syðraplani og inn að gömlu
bátabryggju, á að byggja
garð og dæla upp úr höfn-
inni á bak við hann og
mynda þannig land um 60
metra að breidd, sem okkur
er dýrmætt að fá. Um bygg-
ingarlag þessara garða ætla
ég ekki að ræða hér, um
það verður sjálfsagt alltaf
hægrt að deila. Þó er rétt að
það komi hér fram að sú
hugmynd hefur verið könn-
uð að steypa fcer til bygg-
ingar garðanna, en starfs-
menn iVita- og hafnarmála-
skrifstofunnar telja að
kostnaður við kerin sé svo
miklu meiri, en sú gerð
garða sem þeir sýna á upp-
dráttum, að slíkt komi varla
til greina. Þó ber að kanna
þetta mál til hlýtar í ljósi
þeirra staðreynda, að bygg-
ingarefni er hér ódýrt, en
miklir erfiðleikar á að ná
stóru grjóti til framkvæmd-
anna.
Sjúkrahús. Héraðssjúkra-
hús Skagfirðinga, sem tekið
var í notkun í janúar 1961,
jafnan margir á biðlista um
sjúkravist. Nú fyrir stuttu
komu tillöguteikningar að
skipulagi og byggingum á
sjúkrahússloðinni, sem er
mjög rúmgóð og býður upp
á mikla möguleika. Hér má
skjóta því að, að þær tillög-
ur, sem nú liggja fyrir, eru
mjög í anda þeirra hug-
mynda, sem komu fram í
blaði okfcar Framsóknar-
manna fyrir bæjarstjórnar-
kosningarnar. Þar er gert
ráð fyrir viðbyggingu við
sjálft sjúfcrahúsið, einnig
eru smáhús fyrir gamalt
fólk og vinnuskáli fyrir þá
er starfað geta, þrír lækna-
bústaðir, starfsstúlknabú-
staðir o. fl. nauðsynlegra
bygginga. Við Sauðárkróks-
búar og Sbagfirðingar höf-
um átt því láni að fagna,
að til ofcfcar hafa ráðizt hin-
ir hæfustu læfcnar og ætti
það að verða okfcur metn-
aður að búa þeim hér sem
bezta starfsaðstöðu, þannig
að sfcortur á tæfcjum og
annarri aðstöðu þurfi ekki
að standa stofnuninni fyrir
þrifum.
Húsnæðismál. — Nokkur
sfcortur hefur verið ihér á
hentugum íbúðum. Því var
það að í vetur kiaus bæjar-
stjórn 3ja manna nefnd til
að vinna að byggingu íbúða
samkvæmt byggingaáætlun
ríkisstjórnarinnar og verka-
lýðsfélaganna og að Sauðár-
krókur gerðist aðili þar að.
Bæjarstjóm hafa nú þegar
borizt 22 umsóknir um íbúð-
ir í þessum væntanlegu
byggingum og vonum við
fastlega, að mál þetta nái
fram að ganga.
Sundlaug er hér að rísa,
glæsilegt mannvirki, enda
hefur æska þessa staðar
kunnað að meta þá aðstöðu
sem hér er verið að skapa,
og haldið þannig á merki
Sauðárkróks, að til mikils
sóma er. Nú er verið að
vinna við múrhúðun sund-
laugarhússins og vonandi
tekst að ljúka þessum öðr-
um áfanga byggingarinnar
fljótlega, enda öllum ljóst,
að sú aðstaða sem nú er til
sundiðkana er ónóg, en að
loknum þessum áfanga bygg
ingarinnar verður hægt að
fullnægja þörfum sundnáms
ins betur en nú er, og í nán-
ari tengslum við Skólana. Þá
er það von okkar, að fram-
kvæmdir við hið nýja
íþróttasvæði (grasvöll) sunn
an sundlaugar, hef jist á
komandi sumri, verði þá
svæðið jafnað og tekið rétt.
Bókhlaða er nú risin, mik-
ið hús, tvær hæðir og kjall-
ari að hluta. Bóka- og skjala
safn Skagfirðinga verður
á efri hæð hússins. Unnið
verður nú að því að fullgera
þann hluta byggingarinnar,
er nú þegar of lítið og eru I sem ætlaður er undir þessa
Skip
afgreiðslu á Sauðárkróki. — Ljósm.: Stefán Pedersen.