Einherji


Einherji - 20.04.1967, Side 5

Einherji - 20.04.1967, Side 5
Fimmtudagur 20. apríl 1907 EINHERJI 5 Skíðamót íslands 1967 starfsemi. Gamla bókhlaðan við Suðurgötu mun verða tekin undir fangageymslu og lögregluvarðstofu. Vatnsveitumál. Mikil þörf er úrbóta í vatnsveitumál- um okkar. Rorað var eftir köldu vatni síðastliðið sum- ar eftir ábendingu jarðfræð- ings, en árangur varð ekki. Er nú verið að hugleiða aðr- ar hugsanlegar leiðir og hef- ur þá jafnvel komið til greina að leiða vatnið nokkra vegalengd til bæjarins. En það mál, sem mörg önnur, þarf frekari rannsókna við áður en ráðist er í fjárfrek- ar framkvæmdir. Hitaveitan er eitt bezta fyrirtæki bæjarins. Nægjan- legt vatn er nú fyrir hendi og er slæmt að horfa á allt það magn af heitu vatni, sem umfram er, renna til sjávar, og kemur mjög itil athugunar hvort ekki séu möguleikar á einhverjum rekstri, sem nýtt gæti þessa orku. Fýrirsjáanlegar eru nú miklar endurbætur á bæj- arkerfi veitunnar, þar sem það er nokkuð úr sér geng- ið, t. d. í Aðalgötu og Skag- firðingabraut. Að mínum dómi er óhjákvæmiiegt ann- að en sú endurnýjun hefjist nú í sumar, þar sem slíkar framkvæmdir grípa svo mjög inn í gatnagerð og gangstéttarlagnir. Rafveitan er ekki með neinar stórframkvæmdir á döfinni, annað en eðlilega aukningu á innanbæjarkerf- inu. Mikið er unnið að rann- sóknum að virkjun Reykja- foss af rafveitustjóra og öðrum aðilum hér heima í héraði. Hér er um það stórt og merkilegt mál að ræða, að um það ætti reyndar að skrifa sérstaka grein og kynna almenningi málið. Slíkt ætti að vera auðvelt, þar sem samanburðaráætl- anir liggja nú fyrir um aðr- ar veitur og flutning á orku yfir fjöll og firnindi. Brunamál: Því minnist ég á þetta hér, að ég vil minna á það ástand sem ríkir í brunavömum okkar Skag- firðinga. Sauðárkróksbær telst sjálfum sér nógur um brunavarnir, þótt ýmislegt megi færa í betra horf. Því vildi ég spyrja þá mætu menn, er skipa sýslunefnd Skagfirðinga, hversu lengi þeir hyggjast búa þannig að brunavörnum byggðarlaga sinna, 'að þar sé hvergi Itæki til slökkvistarfs, nema á Hofsósi ? Sauðárkróksbær hefur margsinnis boðið sýslu nefnd upp á sameiginlegar brunavarnir, og yrði þá fenginn heppilegri búnaður og brunaliðið á Sauðárkróki annaðist umsjá tækjanna og sinnti þá jafnframt bruna köllum út um héraðið. Boð Sauðárkróksbæjar stendur enn, og ættu sýslunefndar- menn ekki að láta næsta fund sinn líða, án þess að aðhafast eitthvað í málinu. Skrifstofur bæjarins. Á komandi sumri munu skrif- stofur bæjarins verða flutt- ar í hið nýja hús Búnaðar- bankans, bæjarskrifstofur, skrifstofur rafveitu, hita- veitu, byggingarfulltrúa og sjúkrasamlags. Núverandi skrifstofuhúsnæði bæjarins verður þá innréttað fyrir tannlæknisstofu, en hingað kemur ungur Sauðárkróks- búi, Pétur Ólafsson, sem nú er að ljúka námi. Það er okkur mikið fagnaðarefni, að fá Pétur heim til starfa. Unglingavinna. Einnig má geta þess, að á fjárhags- áætlim bæjarins er gert ráð fyrir fjárveitingu til ungl- ingavinnu. Hér er um ný- mæli að ræða og vonum við að vel takist til. Þó má bú- ast við, að þetta gefi ekki þann árangur í siunar sem skyldi, en við teljum þó, að hér sé verið á réttri leið. Arviss og örugg atvinna. Undirstaða þess, sem hér er upp tahð, og annarra fram- kvæmda, sem ekki er rúm til að geta um hér nú, er árviss og örugg atvinna. Því verður að hafa vakandi auga með öllu, sem leitt gæti til eflingar atvinnulífi hér. Bygging sútunarverksmiðju er mál, sem nokkuð lengi hefur verið til meðferðar hér, og verðum við að vona, að okkur takist að reisa slíka verksmiðju. Margt mæhr með Sauðárkróki sem hentugum Stað fyrir slíkan rekstur, byggingarkostnaður lágur, heitt vatn og síðast en ekki sízt lega bæjarins mitt í hinu blómlega land- búnaðarhéraði. Einnig verð- ur að treysta á uppbyggingu annarra atvinnugreina, og má í því sambandi nefna, að nú þessa dagana er í athug- un möguleikar á stofnun út- gerðarfélags hér á Sauðár- króki, en ekki ennþá full ráðið, í hverri mynd slík félagsstofnun verður. En eitt aðalatriðið er þó, að fé- lagið verði reist á sem allra traustustum grunni. Hér að framan hefur ver- ið getið um ýmsa þætti bæj- armála, en þó mörgu sleppt. Þó vona ég að grein þessi megi sýna, að ýmislegt er verið að framkvæma eða undirbúa til framkvæmda. Atvinnuástand í þessu kjördæmi, ekki sízt á Sauð- árkróki, er þannig, að óvið- unandi er. Þess vegna verð- ur að leita nýrra leiða til fjölbreytilegs atvinnulífs, þannig að félagasamtökum og einstakhngum verði sem auðveldast að hefja hér at- vinnurekstur. Stefán Giuðmundsson Mikill maður FBAMHALD AF 1. SÍÐU tryggja lífsafkomu fólks- ins?“ Þau fóru að vísu í hundana. En var það Fram- sóknarmönnum að kenna ? Eða á hann við Fiskiver h.f. á Sauðárkróki? Ekki settu Framsóknarmenn það á haus inn. iVið hvað á maðurinn ? Eða er þetta aðeins innan- tómt glamur pólitískra gasprara ? Nú verður skipt um sköp. Þriðji rnaður á framboðs- lista íhaldsins ætlar að sjá aumur á okkur, eins og hinn miskunnsami Samverji, og taka í sínar máttugu hend- ur forystuna „heirna í hér- aði“ (sbr. yfirskrift grein- arinnar í Norðanfara). Þá þarf naumast lengi eftir því að bíða, að „upp rísi nýr at- vinnurekstur, er tryggt gæti lífsafkomu fólksins." Þá verður gaman að hfa. Skelfing mega Sjálfstæðis- menn í Norðurl.kjörd. vestra vera forsjóninni þakklátir fyrir að fá þvílíkan forláta- mann á framboðslista. Gísli Magnússon. Skíðalandsmót Islands fór fram á Siglufirði um páskana. Ekki vantaði snjóinn að þessu sinni. Var allt á kafi og meiri snjór en komið hefur í áraraðir, og tor- veldaði snjódyngjan umferð og framkvæmd mótsins. I»á var veð- ur mjög óhagstætt flesta móts- dagana og dró vafaiaust úr góð- um árangri í einstökum keppnis- greinum .Þá voru samgöngur við Siglufjörð mjög lélegar svo ekki só meira sagt, og furðulegt skipu- iags- og skilningsleysi af hálfu hins opinbera í þeim efnum og með öllu óviðunandi. Dró þaö mikið úr þátttöku og gerði sum- um ókleift að sækja mótið. En þrátt fyrir óhagstætt veður og lélegar samgöngur fór mótið hið bezta fram og varð mótstjórn og bæjarbúum til sóma. Á mót- stjórnin, svo og starfsmenn allir, þakkir sldldar fyrir mikið og gott starf. Mótsstjóri var Sverrir Sveins- son, rafveitustjóri. Úrslit í einstökum greinum urðu sem hér segir: Stórsvig ltarla Til leiks voru skráðir 41 kepp- andi, en 23 luku keppni. Brautin var 1700 m löng með 46 hlið, hæðarmismunur 600 m. Hófst hún nær efst í Hafnarfjalli, á norður- brún Jörundarskálar, og endaði við Leikskála. Logn var og sól- skin. Færi: Nýfallinn frostsnjór. Þrír efstu menn urðu: 1. Kristinn Benediktss. 1 1:44.7 2. Björn Olsen, R. 1:48.1 3. Árni Sigurðsson í. 1:49.3 Stórsvig kvenna Til leiks voru skráðir 5 kepp- endur og luku allir keppni. Braut in var 1200 m löng með 30 hlið- um, hæð 400 m, neðri hluti karla- brautarinnar. Veður var sama og í karlakeppninni. Efstar urðu: 1. Árdís Þórðardóttir S. 77.2 2. Karólína Guðmundsd. A 80.6 3. Sigríður Júlíusdóttir S 84.6 ÁRDÍS ÞÓRÐABDÓTTIB íslandsmeistari í alpagreinum kvenna Svig karla 15 af 41 skráðum keppanda luku keppni í þessari grein. — Keppt var i tveim brautum. Fyrri brautin var 550 m löng með 58 hliðum, seinni brautin 600 m löng með 61 hliði. Rásmark beggja brauta var í Jörundar- skálargili og endamark skammt ofan við Leikskála. Hæð 200 m. Veður var slæmt, hríð, 5—6 vind- stig og 10 stiga frost. Efstir urðu: 1. tvar Sigmundsson A 1. f. 58.1 2. f. 61.6 Samt. 119.7 2. Reynir Brynjólfsson A 1. f. 60.4 2. f. 60.0 Samt. 120.4 3. Magnús Ingólfsson A 1. f. 61.5 2. f. 64.2 Samt. 125.7 Svig kvenna Brautin var 500 m löng með 50 hliðum, hæðarmism. 150 m. Rásmark var efst í Nautaskála- hólum en endamark skammt of- an við Leikskála. Keppendur voru 5 og luku allir keppni. Veð- ur og færi var sama og í karla- keppninni. Efstar urðu: 1. Árdís Þórðardóttir S 1. f. 55.2 2. f. 55.3 Samt. 110.5 2. Sigríður Júlíusdóttir S 1. f. 56.5 2. f. 61.0 Samt. 117.5 3. Karólína Guðmundsdóttir A 1. f. 59.2 2. f. 59.3 Samt. 118.5 Alpatvíkeppni karla Efstir urðu eftirtaldir kepp- endur: 1. Reynir Brynjólfsson A 26.94 2. Magnús Ingólfsson A 60.18 3. Árni Sigurðsson 1 67.60 Alpatvíkeppni kvenna Efstir urðu eftirtaldir kepp- endur: 1. Árdís Þórðardóttir S 0.00 2. Karólina Guðmundsd. A 63.74 3. Sigríður Júliusdóttir S 88.38 Flokkasvig Þrjár sveitir tóku þátt i keppn- inni. Rásmarkið var ofan Nauta- skálahóla, endamark ca. 100 m ofan við Leikskála. Veður var slæmt, hríð með 4 stiga frosti og vindur 6 stig. Brautin var 550 m löng, hæðarmism. 160 m, hlið 53. Nr. 1 varð sveit Isafjarðar á samt. 392.0 sek. Nr. 2 varð sveit Akureyrar á 399.6 sek. og nr. 3 varð sveit Siglufjarðar á 408.6 sek. 1 sveit Isafjarðar voru Samúel Gústafsson, Kristinn Benedikts- son, Hafsteinn Sigurðsson og Árni Sigurðsson. I sveit Akureyrar voru Ivar Sigmundsson, Reynir Brynjólfs- son, Viðar Garðarsson og Magnús Ingólfsson. 1 sveit Siglufjarðar voru Jó- hann Vilbergsson, Sigurður Þor- kelsson, Sigurbjörn Jóhannsson og Ágúst Stefánsson. — Beztan brautartima átti Jóhann Vilbergs- son, 46.0 sek. í fyrri umferð sinni. Stökk 20 ára og eldri Islandsmeistari í þeirri grein varð Svanberg Þórðarson, Ólafs- firði, hlaut 222.9 stig. Annar varð Sveinn Sveinsson, Siglufirði, sem fékk 215.5 stig, og þriðji Skarp- héðinn Guðmundsson, Siglufirði, hlaut 214.4 stig. Tólf kependur, allir Siglfirðingar nema sigurveg- arinn, luku keppni. Stökk 17—19 ára Keppendur voru aðeins tveir. Islandsmeistari varð Einar Jak- obsson, Ólafsfirði.h laut 212.2 stig. Sigurjón Erlendsson, Siglufirði, hlaut 153.6 stig. 15 km ganga 1 15 km göngu fyrir 20 ára og eldri luku 17 keppni. Logn var og bjart fyrri hluta keppninnar, hríðarmugga er á leið. Færi var gott. Frost 1 stig. — Efstir urðu: 1. Gunnar Guðmundsson S 62.03 2. Kristján Guðmundss. í 62.04 3. Þórhallur Sveinsson S 62.39 10 km ganga Fimm keppendur 17—19 ára luku keppni í þessari grein. — Efstir urðu: 1. Jón Ásmundsson Flj. 41.39 2. Sigurjón Erlendsson S 42.58 3. Héðinn Sverrisson HSÞ 46.41 Aðstæður í þessari keppni voru hinar sömu og í 15 km göngunni. Boðganga 4x10 km Logn var og sólskin, er keppn- in fór fram og færi gott, en held- ur kalt. Þrjár sveitir mættu til keppni og luku henni. Fyrst varð sveit Siglufjarðar, tími hennar 2:32.34. Önnur varð sveit ísfirð- inga á 2:39.30, og þriðja sveit Fljótamanna á 2:42.04. Beztan brautartima átti Kristján Guð- mundsson, Isafirði, 36.15 mín. 30 km ganga Af 16 skráðum keppendum luku 10 keppni. — Norðaustan kaldi og snjómugga var meðan keppnin fór fram, frost 11 stig. Þrír efstu menn urðu: 1. Kristján Guðmundss. I 125.17 2. Trausti Sveinsson Flj. 127.42 3. Þórhallur Sveinsson S 130.31 Norræn tvíkeppni Islandsmeistari í norrænni tví- keppni varð Birgir Guðlaugsson, Siglufirði, með 267 stökkstig og 260 göngustig, samtals. 527 stig. Annar varð Þórhallur Sveinsson, Siglufirði, með 217.7 stökkstig og 274 göngustig, samtals 491.7 stig. Þriðji varð Sveinn Sveinsson, Siglufirði, með 266.7 stökkstig og 189.1 göngustig, samtals 455.8 stig.

x

Einherji

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Einherji
https://timarit.is/publication/788

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.