Einherji - 31.08.1967, Side 1
Blaö Framsóknarmanna í Norðurlandskjördœmi vestra.
9. tölublað.
Fimmtudagur 31. ágúst 1967
• Samvinnufélögin
skapa sannviröi á
vöru og auka öryggi
hvers byggðarlags
• Gangið í sam-
vinnufélögin.
• Verzlið við sam-
vinnufélögin
• Samvinnan skap-
ar betrl lífskjör.
36. árgangur.
Heim að Hólum
Hversvegna þarf að flytja
SUN til Reykjavíkur ?
Byggðir Norðurlands mðtmœla
Eins og fram kemur í
samiþykktum Fjórðugsráðs
Norðlendinga hér á öðrum
stað í blaðinu hefur stjórn
Síldarútvegsnefndar samþ.
að flytja höfuðstöðvar nefnd
arinnar frá Siglufirði til
Reykjavíkur. Norðlending-
um, og þá ekki sízt Siglfirð-
ingum, mun hafa brugðið í
brún við þessa frétt. Munu
margir telja slíka ráðstöfim
ganga í berhögg við hags-
muni Siglufjarðar og Norð-
urlands og ekkert það kom-
ið fram sem réttlæti slíka
ráðstöfun. Auk þessa stang-
ast hún alveg á við jafnvægi
í ibyggð landsins og megin-
tilgang og markmið stjóm-
arvalda varðandi Norður-
landsáætlun, og gefin heit
um tilgang hennar.
Fjórðungsráð Norðlend-
inga hefur þegar fjallað um
málið og samþ. einróma mót-
mæli gegn slíkri ráðstöfun
og vísast til þeirra hér á öðr-
um stað í blaðinu.
Þá hefur bæjarráð Siglu-
fjarðarkaupstaðar harðlega
mótmælt og Framsóknarfé-
lögin í Siglufirði gerðu eftir-
farandi samþ. 21. ág. s. 1.:
„Fundur haldinn í Fram-
sóknarfélögunum í Siglufirði,
mánudaginn 21. ágúst 1967,
mótmælir harðlega þeirri á-
kvörðun stjórnar Síldarút-
vegsnefndar, að flytja aðal-
skrifstofur og höfuðstöðvar
nefndarinnar frá Siglufirði
til Reykjavíkur.
Þessi samþ. nefndarinnar
er því furðulegri, þar sem
Siglufjörður er nú að kom-
ast í eðlilegt og gott sam-
band við þjóðvegakerfi lands
ins, flugvöllur byggður og
símasamband stórbætt með
f jarskiptastöðvum. Frá Siglu
firði ætti nefndin því að
geta veitt viðskiptavinum
sínum fullkomna þjónustu,
ekkert síður en frá öðrum
stöðum á landinu.“
Síldarútvegsnefnd er stofn-
uð með lögum frá 1934 og
er þar svo fyrir mælt, að
höfuðstöðvar nefndarinnar
skuli vera á Siglufirði, og
þar hafa þær verið alla tíð
síðan. Með aukinni síldar-
söltun á Austurlandi og Suð-
urlandi hefur nefndin sett
upp útibú, til aukinnar fyrir-
greiðslu á þessum stöðum
og er það eðlileg og sjálf-
sögð ráðstöfun.
Hverjar þær ástæður eru,
sem nefndin telur svo mikil-
vægar, að hún gerir samþ.
sem brýtur 1 bág við þau
lög og reglur, sem hún á að
starfa eftir, skal ósagt látið.
En vissulega eiga Norðlend-
-ígar, og raunar allir lands-
menn heimtingu á að fá að
vita hverjar þær eru, því að
mikilvægar 'hljóta þær að
vera, að minnsta kosti í aug-
um nefndarmanna. Er því
hér með skorað á nefndina
að birta greinargerð um þær
og er henni heimilt rúm hér
í blaðinu til þess, ef hún
heldur þessum flutningum
til streitu gegn vilja og hags
munum norðlenzkra byggða.
Það virðist augljóst, að þessi
ráðstöfun nefndarinnar, ef
framkvæmd verður, veikir
aðstöðu Sigluf jarðar og eyk-
ur á erfiðleika, sem æmir
em fyrir, og í stað þess að
styrkja og efla þarf stofn-
anir á Norðurlandi, tengdar
atvinnulífinu, er hér farið
öfugt að, ef aðalstöðvar
SÚN em fluttar ti'l Reykja-
víkur. Slíkt er háskaleg öf-
ugþróun, sem byggðarlög og
valdhafar era að reyna að
vinna á móti. Þessi fyrir-
hugaða ráðstöfun nefndar-
innar má því ekki ná fram
að ganga og þjóðhagslega
er hún röng.
'Sunnudaginn 13. ágúst s.l.
var hin árlega hátíð Hóla-
félagsins haldin að Hólum
í Hjaltadal, í fögra veðri og
við fjölmenni.
Fyrir hádegi samdægurs
var aðalfundur félagsins
haldinn að Hólum. Fóra þar
fram venjuleg aðalfundar-
störf. Að þessu sinni áttu
að ganga úr stjóm félagsins
sr. Sigurður Guðmundsson,
Grenjaðarstað, sr. Pétur Sig-
urgeirsson, Akureyri, frú
Emma. Hansen, Hólum og
sr. Gísli Kolbeins, Melstað.
í þeirra stað vora kjömir
í stjornina: sr. Bolli Gúst-
afsson, Laufási, Finnbogi S.
Jónasson, Akureyri, frú
Helga Kristjánsdóttir, Silfra
stöðum og sr. Pétur Ingj-
aldsson, Höskuldsstöðum.
Eftir hádegið hófst há-
jtíðarmessa í Hóladómkirkju.
|Fyrir altari þjónuðu sr. Þór-
j.ir Stephensen og sr. Björn
Björnsson, dómkirkjuprest-
ur. Sr. Benjamín Kristjáns-
son flutti prédikun. Kirkju-
kór Sauðárkróks annaðist
kirkjusöng undir stjórn Ey-
þórs Stefánssonar tónskálds
og við undirleik frú Guðrún-
ar Eyþórsdóttur. Söng kór-
inn m. a. stólvers eftir Ey-
þór Stefánsson, nýtt, fagurt
og stílhreint tónverk, sem
höfimdur helgar minningu
Jóns biskups Ögmundssonar.
Að messu lokinni nutu
menn um sinn staðarins,
góðviðris og veitinga, en síð-
an var gengið til dómkirkju
á ný. Þar flutti sr. Þórir
Stephensen erindi um Hóla-
félagið, störf þess og stefnu-
mið, Steindór Steindórsson
menntaskólakennari á Akur-
eyri talaði snjallt mál um
Jón biskup helga, líf hans
og störf og áhrif á samtíð
og sögu. Kirkjukór Sauðár-
króks söng milli ræðna. —
Lauk svo samkomunni með
því að sr. Pétur Sigurgeirs-
son flutti 'bæn, en kirkju-
gestir sungu sálminn Víst
ertu Jesús kóngur klár.
Meðan dvalizt var í kirkju
í síðara sinnið sáu þau sr.
Jón Bjarman og Unnur Ha'll-
dórsdóttir um barnaskammt-
un í leikfimihúsi skólans.
mhg.
Miðgarður, nýff félags-
heimili í Varmahiíð
Laugardaginn 12. ágúst
s. 1. var nýtt félagsheimili
vígt í Varmahlíð. Er það hið
glæsilegasta hús, svo sem
eitt sæmir á þeim stað. —
Hlaut það nafnið Miðgarður
og var nafngefandinn Valdís
Óskarsdóttir í Brekku í
Seyluhreppi. iHátt á fjórða
hundrað manns sátu vígslu-
hófið. Undu menn við rausn-
arlegar veitingar, ræður og
söng lengi dags, en um
kvöldið var dansað.
Stærð 'hússins er 667 fer-
metrar, en 4400 rúmmetrar,
tvær hæðir auk kjallara,
sem er undir hálfri bygging-
unni. Aðalsalur er tæpir 300
ferm., en sena 80 ferm., bú-
in hinni fullkomnustu tækni
til leiksýninga. Á efri hæð
er svo m. a. minni s'alur fyr-
iir fundi og minni samkom-
jur. Teikningu að húsinu
Igerði teiknistofa Gísla Hall-
dórssonar o. fl., bygginga-
meistari Guðmundur Máras-
son í Þormóðsholti og með
Ihonum unnu að staðaldri
smiðirnir Bjöm Gíslason og
Eggert Ólafsson. Múrverk
önnuðust Jón Dagsson,
Ragnar Guómundsson og
Ölafur Ólafsson, raflagnir
Þórður P. Sighvats og Olaf-
ur Pálsson, miðstöðvar- og
vatnslagnir Eyjólfur Finn-
'bogason, málningu Sigurður
Snorrason, itrésmiðjan Borg
' á Sauðárkróki sá um verk-
stæðisvinnu, vélsmiðjan Oddi
á Akureyri smiðaði og setti
upp loftræstingu og lofthita-
kerfi, Stáliðn á Akureyri
smíðaði húsgögn og Álafoss
ann'aðist teppalagnir.
Byggingarkostnaður húss-
ins, þar með talin tækniað-
stoð, nemur nú 9,5 millj. kr.
Eftir er þó nokkuð ógert,
aðallega í kjallara, en því
verki verður væntanlega lok-
ið í haust. Gjafir til bygg-
ingarinn'ar, í vinnu og fjár-
framlögum, nárnu um s. 1.
áramót um 600 þús. kr. Mik-
ið hefur þó bætzt við þann
lið síðan, en enn ekki verið
metið til verðs. Vinna var
hafin við húsið 6. júní 1963
og hafði þá verið kosin bygg
ingarnefnd, en hana skipa:
Sigurpáll Ámason, Lundi,
formaður, sr. Gunnar Gísla-
son í Glaumbæ, Sigurður
Haraldsson á Varmahlíð, Jó-
hann L. Jóhannesson, odd-
viti, Silfrastöðum, Óskar
Magnússon, Brekku, Björn
Ólafsson, Krithóli og Her-
fríður Valdemarsd., Brekku.
Eigendur hússins era: Seylu
hreppur, Akrahreppur, ung-
mennafélag Seyluhrepps,
kvenfélag Seyluhrepps, karla
kórinn Heimir og ungmenna-
félag Staðarhrepps.
Vígslúhófið á laugardag-
inn ihófst með því, að for-
maður ibyggingamefndar,
Sigurpáll Árnason, bauð
gesti velkomna. Því næst
flutti sr. Gunnar Gíslason
í Glaumbæ bæn, en Kirkju-
kór Víðimýrarsóknar söng
við undirleik Björns Ólafs-
sonar. Þá tók form. bygg-
ingarnefndar aftur til máis
og rakti sögu byggingar-
málsins frá því að fyrst
komst á það hreyfing og til
þessa dags, og færði þakkir
öllum 'þeim,, sem þátt hafa
átt 1 því, á einn eða annan
hátt, að þessum áfanga er
náð. Halldór Benediktsson á
Fjalli lýsti nafni hússins,
Óskar Magnússon, Brekku,
talaði fyrir hönd eigenda
hússins almennt, Guðmund-
ur Márusson, byggingameist
ari, lýsti gerð hússins, Þor-
st'einn Einarsson, íþrótta-
fulltrúi, flutti eigendum
hamingjuóskir, Hermann
Jónsson Yzta-Mói, talaði
fyrir hönd sýslunefndar
Skagafjarðarsýslu, en hún,
sem eigandi Varmahlíðar, lét
í ité ókeypis lóð undir húsið.
Jóhann L. Jóhannesson,
Silfrastöðum, talaði fyrir
hönd Akrahrepps og Magn-
ús Kr. Gíslason, Vöglum,
mæl'ti nokkur orð. Sr. Gunn-
ar Gíslason, sem var veizlu-
stjóri, gat iþess, að 'húsinu
hefðu borizt ýmsar góðar
gjafir, s.s. flygill frá Kirkju-
kór Víðimýrarsóknar, ræðu-
stóll frá trésmiðjunni Borg
og peningagjafir frá Birni
Guðmundssyni á Akureyri,
Bjarna Halldórssyni, Upp-
sölum, Sölva Sveinssyni frá
Valagerði, systkinunum frá
Syðra-Vallbolti. Karlakórinn
Heimir, undir stjórn Jóns
Björnssonar frá Hafsteins-
stöðum, söng milli ræðna og
að endingu söng Kirkjukór
Víðimýrarsóknarundir stjóm
Árna Jónssonar á Víðimel.
mhg.