Einherji


Einherji - 31.08.1967, Page 6

Einherji - 31.08.1967, Page 6
6 EINHERJI SAMVINNUSTARF Kaupfélag V.-Húnv., Hvammstanga Aðalfundur K. V. H. var haldinn í fundarsal fé- lagsins á Hvamms- tanga 20. og 21. júní s. 1. Fundinn sátu 18 kjörnir fuiltrúar frá félagsdeildum, auk stjómar, endurskoðenda kaupfélagsstjóra og mjólk- urbússtjóra. Formaður fé- lagsstjórnar, Skúli Guð- mimdsson, flutti skýrslu stjórnar. Kaupfélagsstjóri lagði fram reikninga félags- ins og skýrði leinstaka liði þeirra. Mjólkurbússtjórinn flutti skýrslu um rekstur og hag mjólkurstöðvarinnar. Sala aðkeyptra vara 1966 varð alls um 44 millj. kr. Söluskattur varð um 1 millj. 753 þús. kr. Árið 1966 greiddi kaupfé- lagið til framleiðenda kr. 58 millj. 334 þús. kr. fyrir framleiðsluvörur og er það um 3,8 millj. kr. hærri upp- hæð en árið áður. Tala félagsmanna K.V.H. var í árslok 1966 528 í átta félagsdeildum. Stofnsjóður félagsmanna var í árslok 6 millj. 366 þús. kr. og hafði hækkað lá árinu um 785 þús. kr. Innstæða innlánsdeildar var í árslok rúmar 37,2 millj. hafði hæfckað á árinu um 4,5 millj. kr. Bimdið fé hjá Seðlabank- anrnn nam í árslok 6 millj. 524 þús. kr. Aðalfundurinn gerði ýms- ar samþ., t. d. samþ. fund- urinn iað K.V.H. tæki þátt í kaupum á snjóbíl, ef um kaup á slíkum bíl verður að ræða, til úrbóta á samgöngu- erfiðleikum. Beinit var samþ. til S.I.S. og Dráttarvéla h. f. að hafa ávallt til nægar birgðir varahluta í þær dráttarvélar og 'búvinnuvél- ar, sem það hefur til sölu. Fundurirm samþ. að stækka geymslurými í frystihúsi fé- lagsins. Aðalfundurinn samþ að K.V.H. tæki þátt í útgáfu byggðasögu héraðsins í máli og myndum, ásamt Búnað- larsambandi V.-Hún. o. fl. aðilum. Þá var ákveðið að gera umbætur á sláturhús- inu. fyrir stórgripaslátrun. Kaupfélagsstjóri K. V. H. er Gunnar V. Sigurðsson. Mjólkurstöð K.V.H. og K.F.H.B. Árið 1966 voru lögð inn hjá mjólkurstöðinni á Hvammstanga 2.832.279 ltr. af mjólk og er það 7,8% minna magn en 1965. Inn- leggjendur voru 212, fæfckun um 32 frá fyrra ári. Meðal fitum'agn mjólkurinnar var 3,805% og var það heldur lægra en árið áður. Framleiðsla ársins var: Smjör ........ 79242 kg Ostur 45% 76923 — Skyr ......... 35945 — Þurkasein .... 29485 — Flutningskostnaður af sam- lagssvæðinu var að meðal- fcali 43,1 eyrir á kg og er það 6,5 anr. hærra en 1965. Vinnslukostnaður varð 1,36 kr. á innvegið kg, að undan- skildum dreifingarkostnaði. Mjólkurbússtjóri er Brynj- ólfur Sveinbergsson. Nýung í niðursuðu Kjötbollur frá Bíldudal Fyrir skömmu kom á markaðinn frá Mat- vælaiðjunni h. f. á Bfldudal, nýimg £ niðursuðu, sem án efa verður vinsæl meðal ferðafólks og þeirra, sem í flýti þurfa að grípa tfl matargerð- ar. Er hér um að ræða tvær samansettar dósir, sem í eru handsteiktar kjötboUur í kjötsoði í annarri, en mismunandi sósur í hinni, sem er heldur minni. TU að byrja með eru komnar á markaðinn kartöflur í brúnsósu og hrísgrjón í karrýsósu. I dósunum er góð máltið fyrir 2—4. I’essi framleiðsla er sniðin eftir amerískri fyrir- mynd. Áður voru komnar úrvalsvörur frá Mat- væiaiðjunni á Bildudal, svo sem: Grænar baunir, gulrætur, þorskhrogn, rækjur, Hfrarpylsa og blóðmör. AUt eru þetta úrvals vörur. Gerið góðan mat betri. Kaupið úrvals vörur frá Bíldudal. Enn eru um 750 býli án rafmagns 5200 býli í byggð á íslandi um síðustu áramót. Af þeim voru 4454 rafvædd, en um 750 býli höfðu ekkert rafmagn, eða um 14% allra sveitabýla landsins. 1 15. hefiti ,,Orkumála“, sem Raforkumálastjórnm gefur út, segir, að á síðasta ári hafi býlum, sem Raf- magnsveitur ríkisins hafi rafvætt, fjölgað um 215 á árinu 1966. Þar að auki séu 235 býli rafvædd af öðrum rafveitum og séu því alls 3323 býli tengd við samveit- ur, en 1131 býli hafi raf- magn frá eigin rafstöðvum. Þannig séu alls á landinu 4454 býli með rafmagn, en um 750 býli enn rafmagns- laus. Glæsilegt héraðs- mót Héraðsmót Framsóknarmanna I Skagafirði fór fram að félags- heimilinu Miðgarði í Varmahlíð laugardaglnn 26. ágúst s. 1. Bæður fluttu Ólafur Jóhannes- son alþm. og Heimir Hannesson. Leikaramir Bóbert Amflnnsson og Búrik Haraldsson skemmtu með gamanþætti. Söngvaramir Jóhann Daníelsson og Eiríkur Stefánsson frá Akureyri sungu etnsöng og tvísöng við undlrleik Áskels Jónssonar. Að lokum Iéku hinir vinsælu Gautar fyrir dans- inum. Mótið tókst með ágætum vel og yfir 1000 manns sóttu sam- komuna. Mun þetta ein sú fjöl- mennasta samkoma, sem haldin hefur verið innanhúss í Skaga- firði og þó víðar væri leitað. GlæsUeg og góð húsakynnl uku á ánægjuna. Umsjónarmaður hins nýja fé- lagsheimUis er Kristján Sigur- pálsson, Lundi. ÞAKKARÁVARP Innilegar þakkir til allra þeirra, er glöddu mig með gjöfum og heillaóskum á sjötíu og fimm ára afmæli mínu, 24. júlí s. 1. SOFFlA JÖNSDÖTTIR Ellideild Sjúkrahúss Siglufjarðar Ullarmóttaka Tökum aðeins á móti ull fram til 15. sept. n. k. Kaupfélag Siglfirðinga GÍSLI MAGNtJSSON: Búnaðarþing Framhald frá fyrra blaði DJÚP14ÍYSTING SÆÐIS (Búnaðarsamb. S.-Þing.) Ályktun Búnaðarþings: „Búnaðarþing telur það miklu varða að allir þeir, sem stunda nautgriparækt, hvar sem þeir búa á landinu, fái aðstöðu til að fá kýr sínar sæddar við álitlegum nautum. Þetta getur aðeins orðið með iþví að hagnýta djúpfryst sæði. — Vitað er, að Búnaðarfél. Islands hefur um nokkurt skeið kannað möguleika á því að hefja hér framleiðslu á djúpfrystu sæði og x því sambandi kvatt til norskan sérfræðing til þess að kynna sér aðstæður hér á landi í þessu máli og vera til ráðuneytis um væntanlegar framkvæmdir. — Búnaðarþing væntir þess, að það reynist fjárhagslega kleift að koma á þessari skipan í sæðing- armálum, þar sem hún býður að sjálfsögðu upp á markvissari kyn- bætur og um leið aukið valfrelsi bænda í kynbótum nautgripa." GENGISÁHÆTTA (Bxinaðarsamb. S.-Þing.) Ályktun Búnaðarþings: „Búnaðarþing beinir þeírri á- skorun til stjórnar Búnaðarbanka Isl., að láta fyrirvara um hækkun stofnlána vegna hugsanlegrar breytingar á skráðu gengi ísl. krónu aðeins ná til lána, sem veitt eru af erlendu fé, teknu að láni eftir 1962, og einungis í þvi hlutfalli, sem erlent fé er af heildarlánunum. — Þingið telur, að ekki sé heimilt að framkvæma ákvæði 12. gr. stofnlánadeildar- laganna þannig, að aðilar, sem fengið hafa stofnlán eftir 1962, greiði halla, sem hljótast kann af gengisfellingu erlendra lána, sem tekin voru fyrir þann tíma.“ AFRÉTTARMÁL (Stjórn B. 1.) Fyrir þingið var lagt „Frum- varp til laga um afréttarmálefni, fjallskil o.fl.“, mikill bálkur í 10 köflum og 69 greinum. Frumv. var í öndverðu samið af stjórn- skipaðri nefnd, lagt fyrir Búnað- arþing 1962, ekki afgreitt þá, en sent sýslunefndum og bæjarstjórn um til athugunar, síðan endur- skoðað af þriggja manna nefnd, Árna G. Péturssyni, Jóni Egils- syni og Gísla Magnússyni, og nú loks afgreitt frá Búnaðarþingi til ríkisstjómarinnar. INNFLUTNINGUR bUfjársæðis (2 erindi: Jón H. Þorbergsson og Búnaðarsamb. Sl.) Fyrir Bþ. var lagt erindi um innflutning sæðis úr Border- Leicester-hrútum og annað um innflutning búfjár með sérhæfð- um eiginleikum. Búnaðarþing samþykkti svofellda ályktun: „Búnaðarþing vill enn einu sinni ítreka nauðsyn þess að kanna allar leiðir, sem tiltækar þykja til þess að fá inn í landið erlenda búfjárstofna með sér- hæfðum eiginleikum, jafnframt því að gætt sé fyllsta sóttvarnar- öryggis. — Þar sem vitað er, að með hverju ári, sem líður, vex þekking og reynsla grannþjóða vorra um flutning búfjár með sæðisflutningum milli landa, þá felur Búnaðarþ. Búnaðarféi. Isl. að leita, í samráið við yfirdýra- lækni, álits þekktustu vísinda- stofnana, austan hafs og vestan, á þessu sviði, um það, hvaða leiðir væru vænlegastar til þess að flytja erlent búfé til landsins, án þess að eiga á hættu að flytja um leið inn erlenda búfjársjúk- dóma." FISKIRÆKT (3 erindi: Þór Kristjánsson, BSS S.-Þing., Guðm. Jónasson) Ályktun Búnaðarþings: „Búnaðarþ. felur stjórn B. 1. að vinna að því við ríkisstjórn og Alþingi, að tryggt verði nægilegt fjármagn til að efla framfarir i fiskiræktarmálum í landinu með því að: a. Veiðimálastjórninni verði veitt stóraukið starfsfé og þannig gert kleift að sinna margháttuðum verkefnum á sviði rannsókna og leiðbeiningaþjónustu. b. Framlög samkv. gildandi lög- um til styrktar byggingar klak- og eldisstöðva og annarra fram- kvæmda við fiskirækt og fiskeldi verði veitt á hverjum tíma svo sem þörf krefur. c. Stofnlánadeild landbúnaðarins verði efld, svo að hún verði fær um að gegna hlutverki sínu um lánveitingar til fiskiræktarfram- kvæmda og fiskeldisstöðva." TILFÆRSLA ÁBI RÐAR, TÆKNIBUNADUR O.FL. (Þórarinn Kristjánsson) Ályktun Búnaðarþings: „Búnaðarþing leggur ríka á- herzlu á, að endurskoðun laga nr. 63 frá 1947, um eftirlit með framleiðslu og verzlun með fóður- vörur, verði hraðað svo sem unnt er. —- Til þess að tryggja, að að- eins fyrsta flokks vörur séu á markaðnum, telur þingið óhjá- kvæmilegt, að auk þeirra fyrir- mæla, sem nú eru í lögunum, Framhald á 4. síðu

x

Einherji

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Einherji
https://timarit.is/publication/788

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.