Einherji


Einherji - 29.02.1968, Qupperneq 1

Einherji - 29.02.1968, Qupperneq 1
• Samvinnufélögin skapa sannvirði á vöru og auka öryggi kvers byggðarlags. • Gangið í sam- vinnufélögin. • Verzlið við sam- vinnufélögin. • Samvinnan skapar betri lífskjör. Blaö Framsóknarmanna í Norðurlandskjördœmi vestra. 1. tölublað. Fimmtudagur 29. febr. 1968 37. árgangur. Aðalfundur miðstjórnar Framsóknarflokksins • Eysteinn Jónsson gaf ekki kost á að gegna formanns- starfi lengur. • Ólafur Jóhannesson, alþm., kosinn formaður Framsóknarflokksins. Slysfarir á sjó og landi Vetrarveðrátta í íslenzku skammdegi /hefur oft reynzt mannlegum mætti yfirsterk- ari, en yfir tekur þó, þegar fárviðri, myrkur og heljar- kuldi leggjast á eitt. Þá koma mikil mannskaðaveð- ur, en þau höfum við mörg skráð í okkar þjóðarsögu. Fyrstu 6 vikur þessa árs var veðurfar mjög erfitt. Vetrarríki óvenju mikið og stórhríðar af og itil, þótt veðrið 4. og 5. fdbr. s. 1. taki út yfir allt annað. Þá gekk yfir landið, einkum Vest- firði, eitt mesta háskaveður er um getur, enda urðu af- leiðingar þess sorgarsaga. Brezkur togari fórst upp við landsteina. 19 manns drukknuðu, en einn komst af. Sömu nótt fórsít einnig íslenzkur bátur, Heiðrún frá Bolungavik, og með henni fórust 5 menn, þar af þrír feðgar. Þá strandaði á sömu slóðum brezkur togari, en mannbjörg varð, nema einn skipverja lézt. FÍeiri togarar voru hætt komnir. Skömmu áður höfðu farizt tveir brezkir togarar norður og austur af Islandi. Rúmri viku seinna, eða um 13. febrúar, fórst svo annar ís- lenzkur bátur í fiskiróðri, Trausti frá Súðavík og þar drukknuðu 4 menn. Heíur þannig, á skömmum tíma, stór hópur íslenzkra og brezkra sjómanna látið lifiö á skömmum tíma við að afla löndum sínum bjargar úr sjónum. Er þetta gömul og ný saga, er við Islend- mgar þekkjum vel. Þá 'hafa slysfarir á landi ekki heldur verið smátækar á þessu ári. Þann 13. febr. brennur inni á Akureyri ung kona með tveimur rmg- um sonum sínum. Og 20. febr. fórst lítil flugvél á Reykjavíkurflugvelli og 2 menn, bræður, er 1 henni voru, létust báðir. Öll þessi sorglegu slys og fleiri ,er orðið hafa á sama tíma, sýna okkur nauðsyn þess að auba og endurbæta 1 slysavarnir, þótt það geti aldrei afstýrt öllum slysum. Aðalfíundur miðstjórnar Framsóknarflokksins var háður í Reykjavík 9., 10. og 11. febrúar s. 1. í upphafi fundarins lýsti Eysteinn Jónsson yfir, að hann gæfi ekki kost á sér til að gegna formannsstarfinu lengur. — Eysteinn sagði meðal ann- ars: „Ég hef nú gegnt rit- ara-, ráðherra-, þingflokks- formanns- og formanns- starfi í Framsóknarflokkn- eða fyrir hann, í 34 ár eða svo, alltaf einhverju tvennu af þessu í senn og stundum þrennu í senn, auk þing- mennsku og annars af ýmsu tagi. Ég vona því, að enginn ásaki mig um sérhlífni, þótt ég hafi komizt að þeirri nið- urstöðu, að skynsamlegast sé fyrir mig og flokkinn að breyta nú til. Mér þykir of mikið að bæta því við þetta, að gegna formannsstarfinu heilt kjörtímabil ennþá og það þýðir óbifanlegan ásetn- ing minn að knýja það fram að skipt verði um formann strax nú í byrjun kjörtíma- bilsins. Nýr formaður á helzt að taka við tafarlaust í . byrjun kjörtímabils, að mínum dómi. Liggja til þess augljósar ástæður. Þá er það þáttur í þessu, að sá rnaður, sem ég veit að telja má nálega sjálfkjörinn til þess að taka við formanns- störfum, vegna þess trausts, sem hann nýtur — og mæli ég þar af meiri kunnugleik en flestir aðrir — er nú á góðum aldri til þess að taka við og það á að notfæra sér það, því það er mikil gæfa og fágætt lán þegar svo stendur á, að hægt er að skipta eins eðlilega og þeg- ar bezt tekst til í boðhlaupi, en það getum við gert núna — á þvi leikur enginn vafi.“ Þá lýsti Sigurjón Guð- mundsson, að hann gæfi ekki kost á sér til endur- kjörs sem gjaldkeri, en Sig- urjón hefur starfað sem gjaldkeri og í fjármála- stjórn Framsóknarflokksins um 33 lára skeið. Báðum þessum mönnum vill Ein- herji flytja beztu þakkir fyrir mikil og óeigingjöm störf í þágu þeirra góðu málefna, er við Framsókn- armenn berjumst fyrir. Aðalfundur miðstjómar Framsóknarflokksins kaus síðan Ólaf Jóhannesson, alþm., formann flokksins. Helgi Bergs var endurkjör- EYSTEINN JÓNSSON inn ritari flokksins og Tóm- as Ámason gjaldkeri. Vara- stjórn skipa: Einar Ágústs- son, alþm., varaformaður, Jóhannes EMasson, vararit- ari og Halldór E. Sigurðs- son, alþm., varagjaldkeri. Einherji vill nota tækifær- ið og óska þeim Ólafi og Tómasi allra heilla og vænt- ir mikils af þeim í þágu flokks og alþjóðar, því að þeirra bíða mikil og vanda- söm störf. Þessi mynd var tekin af stjóm Framsóknarflokksins I lok aðalfundar. Aftari röð talið frá vinstri: Jóhannes Elíasson, vararitari, Einar Ágústsson, varaformaður, Halldór E. Sigurðsson, varagjaldkeri. Fremri röð, talið frá vinstri: Helgi Bergs, ritari, Ólafur Jó- hannesson, formaður og Tómas Árnason, gjaldkeri. ÓLAFUR JÓHANNESSON Ágrip úr ávarpi Ólafs Jó- hannessonar, formanns Framsóknarflokksins: Stefna Framsóknar- flokksins er skýr og óbreytt Við skulum bafa það hug- fast, að samtíðin er okkar vettvangur og okkar við- fangsefni fyrst og fremst. Það em hennar vandamál, sem við þurfum að fást við, eigum að reyna að skilja og finna lausn á. Við skulum þó sá, þó við sjáum ekki alltaf ávextina og uppsker- an verði framtíðarinnar. Við skulum líka hyggja að for- tíðinni og læra af sögunni. En við skulum var- ast að einblína um of itil baka. Við skulum ekki mikla fyrir okkur þá gömlu og góðu daga, né heldur ágætu menn, sem þá voru í farar- broddi. Fjarlægðin gerir stundum f jöllin blá og menn- ina mikla. Það verður eng- I inn stór af því að stara á gengin spor. Við skulum varast að staðna í gömlum hugmyndum. Mig langar til að minna á garnalt máltæki, sem miðað er við íslenzkar aðstæður. en sjaldan heyrist nú leng- ur. Það máltæki segir: „Holl ur er heimafenginn baggi.“ Þetta máltæki lætur ekki mi'kið jTir sér. Sumum finnst þan kannske úrelt. Ég er ©kki þeirrar skoðunar. Ég tel það geyma einföld en mikil sannindi, og mér finnst það eiga erindi til þjóðar okkar í dag, þegar meir ber hér, en góðu hófi gegnir, á eftiröpunarhneigð eftir út- lendingum og öllu því, sem útlent er. Mér finnst það eiga sérstakt erindi til okk- ar, þegar þeim boðskap er haldið að mönnum, að menn eigi ekki að vera að basla við fraonleiðslu á vörum og varningi, sem ekki standist samkeppni við framleiðslu annarra þjóða, sem hægt sé að fá betri og ódýrari inn- fluttan. Það er boðskapur, sem laglega fluttur getur orðið hættulegur sjálfstæði okkar og þjóðartilveru, láti menn almennt af honurn glepjast. Við skulum 'þess vegna, Framsóknarmenn, hafa það hugfast, „að hollur er heimafenginn baggi.“ Ég veit, að ég þarf ekki að beina neinum eggjunar- orðum til ykkar. Eg veit, að ykkur þarf ekki að hvetja Ég vona það og veit það, að þið farið héðan með hf- andi áhuga og sterkan bar- áttuvilja. En við skulum öll gera okkur ljóst, að við þurfum öll að vera vel á verði og viðbúin. Það getur komið itil kosninga fyrr en lög standa til. Útlitið í mál- efnum þjóðarinnar er á margan hátt ískyggilegt. Það þýðir ekki annað en líta á það raunsæjum augum. Það er allt útlit fyrir, að við marga erfiðleika verði að glíma á næstunni. Og e.t.v. eru erfiðleikarnir enn alvar- legri en við höfum gert okk- urg rein fyrir. Við Fram- sóknarmenn munum að sjálfsögðu leggja okkar lið til lausnar á þeim vandamál- um eftir því sem í okkar |Valdi stendur, jafnt fyrir það þó að við séum og verð- um í stjórnarandstöðu, því að vandamálin eru ekki að- eins vandamál stjómar, heldur bitna afleiðingar erf- iðleika og óskynsamlegrar stjómar á þjóðinni allri. En við trúum því, að það sé þjóðinni fyrir beztu, að efla Framsóknarflokkinn svo, að fram hjá honum verði ekiki komizt við stjórn- armyndun, og að hann fái þar aðstöðu til fomstuhlut- verks. Að því marki skulum við Framhald á 5. síðu

x

Einherji

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Einherji
https://timarit.is/publication/788

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.