Einherji


Einherji - 29.02.1968, Page 3

Einherji - 29.02.1968, Page 3
EINHERJI 3 Aflabrögð og útgerð á Siglufirði 'Fná því í nóv. og fram í febr. var tíð með afbrigðuim umhleypmgasöm og mikið gæftaleysi hjá þeim, er sjó- inn stimduðu. Fóru Norð- lendingar ekki varhluta af því. Tveir bátar: m.b. Hring- ur og m.b. Tjaldur réru með línu frá þvi að haustvertíð byrjaði og fram til 1. febr. Bátamir voru á leigu hjá Hraðfrystihúsi SR. Afh var tregur og gæftaleysi mikið. Á þessum itóma fékk Hring- ur 122 tonn í 41 róðri, en Tjaldur 111 tonn í 45 róðr- um. 1. febrúar varð sú breyt- ing á, að skipshöfn Hrings tók bátinn á leigu til eins árs, en Tjaldur mun hefja róðra, með net, frá Rifi nú um mánaðamótin. Betri horfur með öflun hráefnis Hraðfrystihús SR hefur haft meira hráefni nú í febr. en oftast áður. Togarinn Hafhði hefur landað í frysti- húsið um 375 tonnum. Hringur hefur aflað sæmi- lega í febrúar og er þegar búinn að landa um 76 tonn- um. Hraðfrystihús SR tók Siglfirðing á leigu frá 1. febrúar og stundar hami togveiðar og hefur þegar landað 140 tonnum. Auk þessa mun m.b. Fanney fara á togveiðar á vegum frysti- hússins. Eru því allar líkur á því, að framhald verði á nægu hráefni fyrir frysti- húsið það sem eftir er vetr- ar. Framleiðslan 1967 Hraðfrystihús SR fram- leiddi 1967 41.880 kassa af frystum fiski, eða um 2.324.148 Ibs., og fryst beitu síld um 100 tonn. Mest af fnamleiðslunni fer á Rúss- landsmarkað, eða um helm- ingur. Árið 1967 lagði tog- gggUM DAGINN» SSftG VEGINNW horfi og oft áður á þessum árs- tíma. Áfram er unnið að félags- heimilinu og mun það nú standa í um 8 millj. kr., en gert ráð fyrir að fullbyggt og útbúið kosti það um 12 millj. kr. Heimilið var fyrst tekið í notkun árið 1967 og má segja, að með til- komu þess hafi orðið breyting til þess betra með alla félags- málastarfsemi. B. S. Ráðinn nýr kaupfélagsstjóri hjá K. H. — Asahláka á Blönduósi. Blönduósi, 27. febrúar Asahláka er í dag og jörð að verða auð, þótt svellalög séu enn nokkur. Hér var víða jarðlítið eða jarðlaust orðið fyrir hross. Þótt snjór væri ekki mikill var freri og svellalög mjög mikil. — Ráðinn hefur verið nýr kaupfé- lagsstjóri að Kaupfélagi Hún- vetninga, Blönduósi. Er það Ámi Jóhannsson. Mun hann taka við á sumri komanda. Árni var kaup- félagsstjóri á Hólmavík s. 1. ár, en áður starfsmaður hjá K. H. Ólafur Sverrisson, núver. kaup- félagsstjóri, flyst til Borgarness og tekur vði kaupfélagsstjórn hjá Kaupfélagi Borgfirðinga. arinn Hafliði upp hjá Hrað- frystihúsi SR um 2.432 tonn Snjóflóð á Siglufirði Þann 4. febrúar s. 1. féll snjóflóð á húsið Suðurg. 76 á Siglufirði. Húsið skemmd- ist mikið og húsbúnaður og innanstokksmunir eyðilögð- ust, en íbúarnir, Þórir Bjömsson, rafvirki og fjöl- skylda hans, sluppu ómeidd- ir að mestu. -Flóðið braut alla glugga á vesturhlið hússins og fyllti næstum herbergi þar, en svo vel vildi til að þar svaf enginn, en flóðið kom ikl. 6,40 að mrogni. Þá sprengdi flóðið upp vesturbrún þaksins og hlóð snjó inn á háaloft. — Tjón á húsi og innbúi er metið á um 280 þús. kr. og fæst ekki bætt, nema það sem nær til heimilistrygg- inga. Hús þebta er nýbyggt og er byggt á mörkum þess j svæðis, sem oft hafa hlaup- ^ ið snjóflóð áður. Varla líð- ur svo vetur, að ekki falli eitthvað af snjóskriðum úr fjallinu þarna fyrir ofan, en venjulega stöðvast þær all- miiklu ofar. Dýraverndunartfélag Skagafjarðar Aðalfundur Dýravemdunarfé- lags Skagafjarðar var haldinn á Sauðárkróki 16. febr. s. 1. Stjórn félagsins skipa þessir menn: Sveinn Guðmundsson, deildar- stjóri K. S., formaður. Steinn Þ. Steinsson, dýralækn- ir, varaformaður. Ingimar Bogason, ritari. Egill Helgason, gjaldkeri. Meðstjórnendur: Gunnar Þórð- arson, lögregluþjónn, Friðvin G. Þorsteinsson og Árni Hansen. Á aðalfundinum var skýrt frá tillögu, sem samþykkt var á al- mennum félagsfundi 2. febr. s. 1. svohljóðandi: Þar sem mjög erfitt ástand er nú að skapast hér í héraðinu um líðan útigönguhrossa fyrir nær algjört hagleysi og jarðbönn um héraðið nú um alllangan tíma, og útlit er fyrir versnandi ástand i fóðurbirgðamálum, og vöntun á nægilegri umönnun á útigönguhrossum, þá vill fundur- inn leggja rika áherzlu á að biðja yður hr. sýslumaður, að hlutast til um að fyrirskipa nú þegar aukaskoðun í héraðinu um ástand fóðurbirgða, og þó sér- staklega að athuga um líðan og meðferð á útigönguhrossum. Leiði sú rannsókn i ljós að úr- bóta sé þörf, skorar fundurinn á yður, að sjá um að þá þegar sé gripið fljótt til raunhæfra að- gerða. Fundurinn samþykkti ennfram ur að fela sýslumanni Skagfirð- inga að senda samrit af tillög- unni til Búnaðarsambands Skag- firðinga. Stjóm Dýravemdunarfélags Skagafjarðar. Áfengi og tóbak fyrir meira en milljarð 1967 Áfengi fyrir 543 milljónir króna Árið 1966 keyptum við Islendingar áfengi og tó- bak fyrir einn milljarð króna og hafði þá neyzla þessara eiturtegunda aúkizt verulega á því ári. Endanlegar tölur fyrir árið 1967 liggja ekki alveg fyrir hvað tóbak snentir, en vitað er, að heildar- upphæðin er við höfum eytt til áfengis- og tóbaks- kaupa 1967, er nokkuð yfir einn milljarð króna. Áfengissalan nam 543 millj. kr. og þar má svo bæta við allmiklu af „ólöglegu" áfengi og því sem Islendingar neyta erlendis. Það fer aldrei hjá því, að fjáreyðslan fyrir áfengi og tóbak nemi um 5.500 kr. á hvert einasta mannsbam í landinu, eða um 27.500 kr. á hverja fimm manna fjölsikyldu. Auk þessara peninga hefur þjóðin orðið iað greiða fyrir þetta með tugum mannslífa og heilsu og hamingju þúsundanna. Þvílíkt er þjóðarböl. Svo tala menn um gróða ríkisins!!! Aðalfundur Vöku i Aðalfundur verkalýðsfé- j lagsins Vöku á Siglufirði var haldinn 23. janúar s. 1. Aðalstjórn félagsins er þann ig skipuð: Formaður: Óskar Garibaldason, varaformaður Guðrún Albertsdóttir, ritari Ólína Hjálmarsdóttir, gjald- keri Eolbeinn Friðbjarnar- son og meðstjórnendur Þor- kell Benónýsson, Þórann Guðmundsdóttir og Guð- brandur Sigurbjörnsson. —• Varamenn í stjórn: Jón Gíslason, Hrefna Hermanns- dóttir, Þorvaldur Þorleifs- son, Fjóla Þorsteinsdóttir og Halldór Þorleifsson. Endur- skoðendur era Jóhannes Hjálmarsson og María Hall- grímsdóttir. Fulltrúar deildanna, aðal- menn: Fyrir sjómannadeild Skarphéðinn Björnsson, vél- stjóradeild Björn Karlsson, netamannadeild Sigurjón Sigtryggsson, jámiðnaðar- mannadeild Kristinn Georgs- son, losunar- og lestunar- mannadeild Jón Gíslason, bílstjóradeild Sigurjón Steins son og fyrir byggingar- mannadeild Einar Björns- son. Félagsmenn í Vöku eru ca. 625. Ársþing Í.B.S. Ársþing íþróttabandalags Siglufjarðar var haldið dag- ana 10. og 11. þ. m. Voru þar rædd mörg mál, sem varða íþróttastarfsemina í bænum. Mestar urðu um- ræður um möguleika á ráðn- ingu æskulýðs- og íþrótta- fulltrúa í bænum, og var gerð samþykkt þess efnis, að leita samvinnu við bæj- arstjórn og æskulýðsráð um lausn þess máls. Formaður I.B.S. var end- urkjörinn Júlíus Júlíusson. Aðrir í stjórn þess eru: Frá Skíðafélaginu Skarphéðinn Guðmundsson og Gunnar Guðmundsson, frá K.S. Tóm as Jóhannsson og Bjarni Þorgeirsson, og frá T.B.S. Guðlaugur Henriksen og Daníel Baldursson. 1 héraðsdómstól voru kjörn- ir Hannes Baldvinsson, Bragi Magnússon og Gústaf Níls- son. Saga Iðnaðarmanna- félagsins í Reykjavík Á 100 ára afmæli Iðnaðar- mannafélagsins í Reykjavík í febrúarbyrjun s. 1. ár, kom út vönduð saga félagsins eftir Gisla Jónsson, menntaskólakennara á Akureyri. Er rakið starf félags- ins frá upphafi svo að segja alveg fram á afmælisdaginn, og mun mörgum koma á óvart, hversu margvísleg málefni fé- lagið hefur látið til sín taka. Má segja, að það hafi ekki talið sér neitt mannlegt óviðkomandi. Tvennt er það einkum, sem mun um aldir halda minningu félags- ins á loft, jafnvel þótt það næði ekki hærri aldri en það hefur nú þegar náð. Annað er það, að það beitti sér á sinum tíma fyrir smiði samkomuhúss, sem var reist af slíkum stórhug, að það rúmaði tíunda hvern bæjarbúa í sæti. Er vafasamt, að aðrar Norður- landaþjóðir hafi getað státað af slíkri byggingu víða í borgum eða bæjum, þótt auðveldara væri að draga að húsavið og fá vinnu- afl. Þetta hús stendur enn, og er mikil menningarmiðstöð, því að það heitir Iðnó og hefur verið aðsetur Leikfélags Reykjavíkur - hæli leiklistar um áratuga skeið. Félagsmenn Iðnaðarmanna- félagsins í Reykjavík muni lengi minnzt vegna þessa, hefir starf- semin verið margfalt fjölþættari, eins og segir í upphafi þessa greinarkorns. Til dæmis komu þeir sér upp sjúkrasjóði og styrktarsjóði, þegar slíkt var jafnvel fátítt fyrirbæri „í hinum stóra heirni", þeir börðust ótrauðir fyrir auknum iðnréttindum, komu sér upp bókasafni, hófu útgáfu timarits, börðust fyrir því, að íslenzka þjóðin eignaðist styttu Einars Jónssonar af Ingólfi Arn- arsyni, og á þessu ári eru 83 ár frá fyrstu iðnsýningunni hér á landi, sem efnt var til að áeggj- an félagsins. Iðnaðarmenn úti um land ættu að kynna sér sögu þessa elzta iðnaðarmannafélags landsins. All- ir hafa gott af að fræðast um sögu lands og þjóðar, og við lest- ur bókar eins og „Sögu Iðnaðar- mannafélagsins í Reykjavík-1, ættu iðnaðarmenn að vera stoltir af sinni stétt og leitast við að vinna í hennar þágu og annarra, þar sem kostur er. Prentverk Odds Björnssonar á Akureyri hefur séð um allan ytri búnað bókarinnar og gert það af þeirri snyrtimennsku, sem bókin verðskuldar og þetta gamla og gróna fyrirtæki hefur jafnan tamið sér. Árnað heilla Á s. 1. ári gaf sóknarpresturinn í Siglufirði, sr. Ragnar Fjalar Lárusson, eftirfarandi brúðhjón saman: • 3. marz: Elín Anna Gestsdótt- ir, Steinafiötum og Guðmundur Jón Slcai-phéðinsson, Hverfisg. 26. • 25. marz: Stefanía Vigfúsdótt- ir, Skeiðum, Árness. og Þorkell Hjörleifsson, Hólavegi 25, Sigluf. • 26. apríl: Þórkatla Sigurbjörns dóttir, Tjarnargötu 8, Siglufirði, og Jón Kristján Pétursson, Akur- eyri. • 4. júní: Guðrún Margrét Ingi- marsdóttir, Hvbr. 54, Siglufirði, og Björn Jónasson, Hverfisgötu 8, Siglufirði. • Sigurbjörg Bjarnadóttir, Skál- arvegi, Siglufirði, og Trausti Sveinsson, Bjarnargili, Fijótum. • 1. júli: Þóraima Sigríður Jósa- fatsdóttir, Suðurg. 53 og Jón- steinn Jónsson, Hverfisgötu 3, Siglufirði. • 4. ágúst: Bryndís Guðmunds- dóttir, Hávegi 11, og Hans Guð- leifur Svanbergsson, Hávegi 11, Siglufirði. • Gunnvör C. Joensen, Aðalgötu 15 og Bjarki Adólfsson, Aðalgötu 15, Siglufirði. • 23. ágúst: Sigríður Magnús- dóttir, Laugarvegi 14, Siglufirði, og Höskuldur I>ráinsson, Skútu- stöðum, S.-Þing. • 19. okt.: Sigríður Þórdís Júl- íusdóttir, Hólavegi 5 og Jón Jón- asson, Hólavegi 5, Siglufirði. • 4. nóv.: Margrót Stefanía Hall- grímsdóttir, Vallargötu 3 og Skarphéðinn Guðmundsson, Há- vegi 26, Siglufirði. • 26. des.: Kristrún Sigurbjörns- dóttir, Lindargötu 17, og Gunn- ar Hans Friðriksson. • 30. des.: Jónína Stefanía Sig- urbjörnsdóttir, Túngötu 43 og Jón Hólm Pálsson. Einherji óskar hinum ungu brúðhjónum til hamingju. BiENDUR! Það eru hyggindi sem í hag koma að verzla við Sölufél. Austur- Húnvetninga Blönduósi

x

Einherji

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Einherji
https://timarit.is/publication/788

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.