Einherji


Einherji - 02.05.1968, Qupperneq 1

Einherji - 02.05.1968, Qupperneq 1
• Samvinnufélögin skapa sannvirði á vöru og auka öryggi kvers byggðarlags. • Gangið í sam- vinnufélögin. • Verzlið við sam- vinnufélögin. ■ Samvinnan skapav betri lífskjör. Blaö Framsóknarmanna í Noröurlandskjördœmi vestra. 2.—3. tölublað. Fimmtudagnr 2. maí 1968 37. árgangur. Þessu þarf að fylgja eftir Á undanfömum árum hef- ur bæjarstjórn Siglufjarðar fjallað um og samþ. álykt- anir um ýmis merk mál, er varða Siglufj., en ríkisvaldið þarf að stuðla að fram- kvæmd þeirra. Má þar nefna Ibvö stórmerk mál: Dráttar- braut og skipasmíðastöð og skip til fiutninga á síld til söltxmar. Hvomgt þessara mála virðist enn hafa feng- ið neina fyrirgreiðslu og svo er með fleiri samþ. bæjar- stjórnar. Á þessu ári hefur bæjar- stjórn enn gert samþ. um ýmis nauðsynjamál, og má þar nefna: SAMGÖNGUMÁL lýsir undrun sinni yfir þeirri ákvörðun ríkisstjómarinnar að verðbæta ekki handfæra- fisk á sama hátt og annan fisk. 1 þessu sambandi bend- ir bæjarstjórn á, að hand- færaveiðar em snar þáttur í atvinnulífi þorpa og bæja á Norðurlandi, og að hand- færafiskur er venjulega það nýjasta og bezta hráefni, sem á land berst. Bæjar- stjóm teiur það óeðlilegt, að handfærafiskur skuli ekki verðbættur á sama hátt og fiskur veiddur á línu eða í net, og felur bæjarstjóra að koma á framfæri við rík- isstjómina eindregnum ósk- um um, að þessari verð- ákvörðun verði breytt.“ á síðasta sumri gerðu ýmsir sér vonir um einhverja á- kvörðun og jafnvel fram- | kvæmdir, en þær vonir bragðust. Nú virðist enn ekki komin niðurstaða eða ákvörðun um framkvæmdir, en vonandi verður ekki á því löng bið, svo hægt verði að hefja framkvæmdir á þessu sumri. Alþingi lýkur störfum 130 lagafrumvörp borin I fram. Laugardaginn 20. apríl j lauk alþingi störfum að þessu sinni. Var það 88. lög- gjafarþingið. Þingið hóf störf sín 10. okt. s. 1., en nokkurt hlé varð á störfum þess um áramót. En alls starfaði það 168 daga, að þessu sinni. Haldnir voru 260 þingfundir, þar af 102 , neðri deild, 100 í efri deild og 58 í sam- einuðu þingi. 130 lagafrum- vörp vom lögð fyrir þingið, 48 þingsályktunartill. og 26 fyrirspurnir bomar fram. Þingið afgreiddi 71 laga- frumvarp sem lög, 55 frá ríkisstjórninni og 16 frá ein- stökum þingmönnum. 49 dag aði uppi, flest í nefndum, þar af flest þau er stjómarand- staðan bar ein fram, þó eru í henni 28 þingmenn af 60 alls á þingi. Á fundi sínum 23. febr. samiþ. bæjarstjóm eftirfar- andi ályktun um samgöngu- mál: „Bæjarstjórn Siglufjarðar skorar á vegamálastjóm að láta á komandi sumri ljúka nýlagningu og lagfæringu þeirra vegakafla á Siglu- fjarðarleið, sem snjóasam- astir em og gera síðan ráð- stafanir til þess, að vegin- um til Siglufjarðar verði haldið opnum næsta vetur, eins og öðrum aðalþjóðveg- um norðanlands, t. d. Holta- vörðuheiði og Öxnadals- heiði.“ FÆRAMSKUR VERÐI VERDBÆTTUR EINS OG LÍMILSKUK Bæjarstjóm Siglufjarðar samþ. einróma eftirfarandi ályktun: „Bæjarstjóm Siglufjarðar BYGGINGARÁÆTLUN Á fundi sínum 15. marz s. 1., sem var 1186. fundur bæjarstjómar, var eftirfar- andi tillaga samþykkt: „Með tilvísun til skýrslu framkvæmdanefndar bygg- ingaráætlunar ríkisstjórnar- innar í Siglufirði, sem send hefur verið Félagsmálaráðu- neytinu, beinir bæjarstjórn þeim eindregnu tilmælum til ríkisstjómarinnar og ann- arra stjómvalda, að tekin verði sem allra fyrst jákvæð afstaða til málaleitana þeirra sem héðan hafa verið send- ar varðandi íbúðarbygging- ar í Siglufirði, í samræmi við greindabyggingaráætlun. Telur bæjarstjórnin mjög á- ríðandi, að framkvæmdir geti hafizt á komandi vori.“ Þessi mál em búin að vera á döfinni í meira en ár, og . '• VX'l■ Fnn er liann of nærri landi. Óvelkominn gestur frá norðurslóðum rjálar við bryggj- ur Síldarverksmiðja ríkisins á Siglufirði. Ljósm.: H. G. Sumrí heilsað Þrír fóstbræður í Siglufirði fagna sumri. Ljósm. :H. G. Kveðja frá Kanada Kæru Siglfirðingar. Það má ekki seinna vera að þið heyrið frá okk- ur héma megin Átlantsála. Fyrst langar mig að flytja ykkur öllum innilegt þakklæti okkar Krist- jáns fyrir þann vinarhug og traust, sem þið hafið sýnt í því að kalla hann til ykkar sem prest. Sunnu- dagurinn 10. marz mun líka verða stimplaður í hug okkar svo lengi sem við lifum. Þann dag sýnduð þið vel, hve rík alvara var að baki áskomniar ykk- ar. Að kvöldi nefnds sunnudags fengum við frétt- imar um mjög góða kjörsókn, fengum þær meira að segja símleiðis. Eftir mjög annaríkan dag og heilabrot um, hvernig gengi, var sú upphringing vissulega vel metin. Svo þökkum við einnig heilla- skeyti, sem barst okkur næsta sunnudag á eftir. Undanfarnar vikur hafa verið hlaðnar atburðum og eftirvæntingu, enda hafa þær flogið framhjá með ofsahraða. Við erum smám saman að pakka niður. Það er ekki svo erfitt verk, ef maður setur sér að gera lítið eitt af því á hverjum degi. Ætlun ofckar er að senda megnið af dótinu af stað upp úr miðjum apríl. Það tekur ótrúlega langan tíma að koma því á leiðarenda, ef dæma má eftir fyrri reynslu. Sjálf hyggjum við á heimferð í maí. Nú virðist vorið vera að halda innreið sína hér. Eftir fádæma togstreitu milh vetrar og vors í marz- mánuði er engu líkara en að vorið sé að sigra að fullu. 1 morgun leit út fyrir rigningu, síðan glaðn- aði til, og nú um hádegið er kominn allsterkur vestanvindur. Hiti er tæpar 15° C. Marzveðrið hér er marglynt. Við erum að vona, að við fáum heimsókn góðra Íslendinga um páskaleytið. Það er fjölskylda Ás- geirs Ingibergssonar, en hann er nýorðinn prestur í Ashern, sem er smábær um 200 mílur héðan. Þau kunna lífinu þar vel. Þau hjónin eiga böm á skólaaldri, og ern því páskarnir eini tímiim, sem til greina kemur Itil samfunda, áður en Glenboro- fuglamir fljúga. Við erum öll við góða heilsu. Telpurnar, Kristín 5 ára og Helga 3 ára, leifca sér mikið úti þessa dagana. Bezt að minnast sem minnst á , hvernig fötin þeirra líta út að kveldi. Kanadísk mold, svo frjósöm sem hún er, hefur undraverðan hæfileika til að loða við flíkur og skófatnað. „Múnkurinn okkar“, hann Marteinn, sem fæddist 10. nóv. s. 1., áafmælisdegi nafna síns Lúthers, dafnar dável. Er hann að verða talsvert mikill fyrir sér, og bregð- ur þar kannske til nafns. Eff til vill eiga foreldrar og systur þar nokkurn hlut að mali líka. Læt ég svo þessu spjalU mínu lokið að sinni með því að ítreka þakkir okfcar. [Við erum full tilhlökk- unar að hef ja starf á Siglufirði. Guð gefi að við hiittumst heil. Glenboro, 28. marz 1968. Auður Guðjónsdóttir

x

Einherji

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Einherji
https://timarit.is/publication/788

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.