Einherji


Einherji - 02.05.1968, Síða 2

Einherji - 02.05.1968, Síða 2
2 EINHERJI Blað Framsóknarmanna Ábyrgðarmaður Jóhann Þorvaldsson; Árgjald kr. 50,00 Gjalddagi 1. júlí í Norðurlandskjördæmi vestra Sigiufjarðarprentsmiðja ‘s#'*'*>#'##'##'##'##'#wr#'#'#'#'#v#Nr#\#y#s#\#»#v#s#v#s#'#v##s#^s#s#N#s#s#\#s##N##\#s#v#s#v#\r#s#v#N#s#\#\#N#w4 HASÆTISRÆDA íhaldsflokkar allra landa eru mótaðir af hagsmuna- hyggju, sérhyggju. Þess vegna berjast þeir gegn hags- munum almennigns, þeim sem stofnað er til í því skyni að verjast ásælni sérhyggjumaima. Þeir hamast gegn samvinnufélögum, af því að þau taka spón úr aski þeirra. Þetta er mannlegt. Gáfuð kona og merk lét þau orð falla, að enginn prestur gæti verið sannur og einlægur boð- beri kærleikans, ef hann væri íhaldsmaður, sérhyggju- maður. Mér þótti sem djúpt væri tekið í árinni, en hrökk þó ekki við til að hnekkja rökum hennar. Ilialdsflokkurinn islenzki, sem skírði sjálfan sig upp og nefndi sig Sjálfstæðisflokk í sama skyni og Eiríkur karlinn rauði gaf ísalandinu mikla öfugheitið Grænland, er að sjálfsögðu sama kyns og erlendir íhaldsflokkar — og þó skyldastur þeim, sem hneigjast til einræðis, enda magnaður á sínum tíma af nazistiskri blóðgjöf. Sjálfstæðisfloklturinn er trúr eðli sínu og ættemi. Hann berst með oddi og egg gegn samvinnustefnunni. Kaup- félögin hlaða ekki undir einstaka menn. Þau eru hags- munasamtök almennings. Þau dreifa verzlunarágóðanum meðal félagsmanna, og eignir þeirra verða ekki fluttar brott af félagssvæðinu. Þetta stríðir gegn stefnu Sjálf- stæðisflokksins í verzlunarmálum. Þess vegna eru félög- in fleinn í holdi flokksins. Þess vegna þrengir hann kosti þeirra, þegar hann hefur bolmagn til í ríkisstjóm, og mundi umsvifalaust ljósta þau hreinu rothöggi, ef hann hefði djörfung og kjark til. Stjórnarblöðin túlka að sjálfsögðu sjónarmið hús- bænda sinna, hinna hörðustu sérhyggjumanna, svo í verzlunarmálum sem öðrum. Og ritstjóramir temja sér vitaskuld þann vopnaburð, sem þeir telja bezt hæfa sér og málstaðnum. Því þykir það ekki neitt tiltökumál, þótt þeir varpi skami að forráðamönnum samvinnufélaganna og beri þá jafnvel glæpabrigzlum. Þetta er nú einu sinni í samræmi við eðli þeirra og alla háttu — og ekki um að sakast. En þegar æðsti valdsmaður þjóðarinnar liefur uppi svipaðan vopnaburð og að vísu þeim mun lævís- legri, sem hann er ritstjórunum greindari, þá mætti þykja sem eigi væru ámælisverðir ýmsir þjóðmálaskúm- ar, sem ekki láta sligast undir fargi of mikillar sóma- tilfinningar, né heldur láta of ríka sannleiksást eða þess konar smámuni valda sér áliuggjum. I einu af helgidagsbréfum Morgunblaðsins, sem almælt er að forsætisráðherra skrifi, stendur þessi málsgrein: „Það fer því miður ekkert á milli mála, að pólitísk sjónarmið hafa ráðið lalltof miklu í rekstri Sambands íslenzkra samvinnufélaga og margra kaupfélaga. — STJÓRNENDURNIR HAFA EKKI SPURT AÐ ÞVÍ, HVER VÆRI HAGUR ÞÁTTTAKENDANNA, NÉ HVERNIG REKSTURINN YRÐI HAGKVÆMASTUR. (Auðk. hér). Þeir hafa oft látið unnan kröfmn forustu- manna Framsóknarflokksins um aðgerðir til þess að tryggja áhrif og fylgi flokksins, þótt slíkar aðgerðir væru ekki til hagsbóta fyrir þátttakendur I samvinnu- félögunum né félögin í heild.“ Dálagleg „hásætisræða“ að tama. I fyrsta lagi leiðir sjúkleg löngun til að ná sér niðri á pólitískum andstæðingum sjálfan forsætisráðherrann, gáfaðan mann, þama út í botnlaust forað rökleysunnar., Eða hvemig má það vera, að bezta ráðið „til þess að tryggja áhrif og fylgi“ stjómmálaflokks sé að sniðganga hagsmuni kjósendanna? í annan stað em þetta dæmigerðar dylgjur af ótót- legustu gerð: Forráðamönnum félaganna bmgðið um tvöföld svik — svik við hugsjón samvinnustefnunnar, svik við félagsmennina. Engin nöfn. Engin dæmi. Engin rök — önnur en þau, að „þetta veit allur ladslýður." Reynt með lævíslegum hætti að læða inn þeim gran, að hér séu að verki hálfgildins óbótamenn. Vera má að vopnaburður, slíkur sem þessi, sé í sam- ræmi við eðlisgöfgi og alla gerð þess manns, sem brand- Snum beitir. Þó vil ég ekki trúa því. Hitt er víst, að því- líkur vopnaburður hæfir ekki þeim manni, sem fer með valdamesta og annað virðulegasta embætti landsins. Það er embættinu til háðungar, þjóðinni til vanvirðu, þegar sjálfur forsætisráðherra hennar hagar sér líkt og óvand- aður og ábyrgðarlaus gasprari. Stoðar lítt að fela sig í skjóli nafnleysis og skríða undir trosnaðan klæðafald skillítilla ritstjóra, þegar alþjóð veit hver maðurinn er. Naumast þarf að óttast, að óhlutvandir menn vinni samviimufélögunum og forráðamönnum þeirra varan- lega geig með dylgjum einum og rógi. En þá er háski WUM DAGINN OG VEGINN Hofsósi fyrsta sumardag Úrkomulaust hægviðri í dag. Hríðarmugg'a í fyrrl nótt og gær, en tekið upp aftur að mestu. Hér var orðið alveg snjólaust. Batinn kom liægrt og rólesfa og vegir hér og til Sauðárkróks orðnir mjög sæmilegir, en slæmir er kemur út £ Fljót. — Frosti, stærsti dekkháturinn hér, er bú- inn að vera bilaður lengi og því sjósókn engin nema trillur og einn minni dekkbátur á rauð- magaveiðum að undanförnu, en eru nú að byrja að veiða grá- sleppu, en hún virðist lítið geng- in enn. AUmargir eru fyrir simn- an í atvinnuleit. Ekkert mun átt við höfnina hér á þessu ári, en loforð um einhverja úrbót á næsta ári. Mikil óvissa ríkir um bygging- arframkvæmdir í sumar og hætt við að minna verði úr en ætlað var, vegna fjárhagsörðugleika. Bændur munu yfirleitt hafa nóg fóður, en mikU óvissa um áburð- arkaup bænda og ekki sjáanlegt hvernig þeir fara að kljúfa það. N. H. Sjónvarp og sjálfvirkur sími. Allt með skipum: Olía, fóðurvörur og áburður. Hægur og góður bati. Vegir sæmilegir. Hvammstanga á sumarmálum Fað má segja að sumarið heils- aði með góðu veðri. Það gerði hér smáltólnandi skot í byrjun vikunnar, þó aðeins gráflekkótt í rót og ekki hlýtt. Frostlaust var samt í nótt og fraus þvi eklci saman sumar og vetur. Batinn hefur verið hægur og úrkomur litlar, enda eru vegir sæmilegir, þótt klaki renni úr þeim. Mjólkurframleiðsla er hér heldur meiri en á sama tíma í fyrra. Bændur munu almennt hafa nóg fóður, enda hefur beit í apríl nýtzt vel. Fyrir viku var tekin hér í notk- un sjálfvirk símstöð með um 60 númerum. Svæðisnúmer er 95, eins og á Sauðárkróki. Komin eru hér upp 48 sjónvarpstæki á Hvammstanga og nágrenni. Er talið ágætt og myndirnar mjög sæmilegar, en útsendingunnl ná- um við frá Búðardal. Hefur ver- ið komið fyrir tæki inni á fjalli til að taka á móti og senda nið- ur til okkar. Áhugamannafélag um sjónvarp hefur verið stofnað hér og unnið að þessum málum. Okkxir hér á Hvammstanga finnst því að batnað hafi verulega að- staða okkar með tilkomu sjón- varps og sjálfvirks síma, svo til í einu. Og sumarið er að koma. B. S. Eklii meiri snjór en oft áð- ur. Kuldaleg koma sumars. Vegir afar slæmir. Haganesvík fyrsta sumardag Sumarið heilsar okkur kulda- lega. f nótt vær hörkufrost og hríðarmugga með morgni, en hef- ur nú mildast er á daginn leið. Hér var orðið snjólaust að kalla í byggð, en alImikiU snjór í aust- urfjöllum, en víst meiri en oft j áður á þessum tíma árs. Vegir ) eru afar slæmir og má segja, að þeir séu hálf lokaðir og aðeins Ieyfður 5 tonna öxulþungi. Verst- ur er vegurinn úr Haganesvík að Hraunum, og einnig slæmur til Hofsóss á köflum. Helmingnum af áburði okkar var landað í Hofsós og komum við honum við Ulan leik hingað. MjólkurflutningabíUinn verður að fara tvær ferðir á dag til að geta flutt alla mjólkina, þá daga, sem mjólkin er flutt og fylgja þessu miklir erfiðleikar og auka- kostnaður. Fóðurbætiskaup bænda eru nú meiri en nokkru sinni áður og einnig hafa allmargir bændur keypt hey frá Vatni. En vonandi er nú nóg fóður í báðum hrepp- unurn og alvörubati með sumar- veðri á næsta leiti. E. Á. Vetur kvaddur með norðan átt og frosti. Togveiðibátar afla vel. Hrognkelsaveiði er sæmileg. / Siglufirði, fyrsta sumardagskvöld Veturinn kvaddi okkur Siglfirð- inga með hægri norðanátt, er að nýju breiddi hvíta, en þunna slæðu yfir liálfauða jörð og faldi á þann veg mórauðar fannir og óhreina skafla er hann skilaði af sér til sumarsins. Annars fraus nú saman vetur og sumar og það boðar gott og frjósamt sum- ar. Já, fyrsti sumardagur er senn allur, en vetur ríkir enn í lofti og yfir foldu. Annars er snjór ekki meiri en oft áður á þessum tíma. Sjávarkuldi er óvenju mik- Húnavatnssýslu, er sá um vök- una, en formaður þess er Kristó- fer Kristjánsson, bóndi í Köldu- kinn. Nú eru vegir slæmir og sums staðar illfærir, en vonandi stendur það stutt, ef batinn held- ur áfram, hægur en þurr. OIíu og fóðurvörur, svo og helming áburðar, höfum við fengið með skipum og seinni hluti áburðar er væntanlegur innan skamms. Eigi verður því neitað, að nýlið- inn vetur var allerfiður og um- hleypingasamur á köflum. Frost óvenju mikil, en snjóalög eigi meiri e noft áður. Mikill kuldi til sjávarins og ísinn á næsta leiti, og er reyndar enn. Vetrarþrautin er unnin og sumarbatinn kemur. Gleðilegt sumar. Ó. S. Isinn hindraði sjósókn. Ekk- ert frystihús starfandi eins og er. Unnið að sameiningu kaupfélaga. Skagaströnd, 26. apríl Sumarið heilsaði hér með norð- anátt og frosti, en jörð snjólaus að kalla. Vetur og sumar frusu saman og væntum við þess, að gott verði undir bú á þessu sumri. fsinn hefur, um alllangan tima, legið skammt undan að norðan og vestan, þótt ekki hafi komið nema litið eitt hér £ höfn- ina. Eigi fóru bátar á sjó vegna íssins um langan tíma. Nú stirnda tveir bátar héðan línuveiðar fyrir Vestfjörðum. Annar leggur upp á Patreksfirði, en hinn á Bíldu- dal. Sá þriðji er hér með net og hefur nú síðustu daga fiskað all- vel, um 6 tonn í lögn. Saltar hann aflann, því að ekkert frysti- hús starfar hér nú, þó að tvö séu til. Annað, „Hólanes'í, er lokað vegna fjárhagsörðugleika. Hitt, sem kaupfélagið á, hefur ekld verið starfrækt alllangan tima. Stærsti báturinn er nú að búast á togveiðar. Rauðmagaveiði er ill, enda ekki nema einn dagur nokkur, en grásleppuveiði aðeins síðan lagísinn tók af innsta hluta ag byrja. fjarðarins. | Unnið er að því að sameina Afli togbáta virðist meiri en J kaupfélögin, Kaupfélag Húnvetn- áður. T. d. hefur Siglfirðingur j inga> Blönduósi og Kaupfélag landað um 200 t. á tíu dögum og skagsterndinga. J. P. Hafliði landaði s. 1. mánudag 270 ' tonnum og frystihús SR hefur vart undan að vinna fiskinn. Aft- ur hefur afli á línu, hjá Hring, verið sáratregur nú um tíma. Nóg er af loðnu hér úti fyrir og fiskurinn tekur því enga beitu. Hrognkelsaveiði er sæmileg. Ein 10 úthöld (trillur) stunda þær veiðar, mest grásleppuveiðar. — Salta þeir sjálfir hrognin, og eitt- hvað af rauðmaga, en gráslepp- unni verður að henda að mestu. Niðurlagningarverksmiðjan vinn- ur nú að niðurlagningu síldar á Rússlandsmarkað. í verksmiðj- unni vinna 60 manns, þar af um 50 konur. Timnuverksmiðjan hef- ur nú lokið við að vinna úr því tunnuefni, sem til var, en von er á meira efni innan tíðar. J. Þ. Höfum sólskin og norðanátt. Vantar hlýju og sunnanátt. Höfum nóg að bíta og brenna. Blönduósi, 2. sumardag Frost og sólskin, það sem af er sumri. Enginn snjór í Iág- sveitum, en nokkur í fjöllum. Húnavaka hófst hér annan páska dag og stóð í viku með miklum gleðilátum. Vakan var mjög vel sótt og þótti takast vel. Veður voru þá hagstæð og vegir góðir. Það var TJngmennasamband búinn allri landsbyggð, þegar meun í stjórnarstólum nota vald sitt til þess að hnekkja gengi þeirra stofnana, sem í áratugi hafa reynzt ömggastur aflgjafi í allri sókn til meiri velmegunar og aukinna framfara. Slíkum árás- um verður aðeins mætt með órofa samheldni og auknum samvinnuþroska. Hér er um lífshagsmuni landsbyggðar- innar að tefla. Gílsi Magnússon Prestskosning á Siglufirði Þann 10. marz s. 1. fór fraim prestskosning í Siglu- fjarðarprestaballi. Umsækj- andi var aðeins einn, séra Kristján Róbertsson. Á kjör- skrá voru alls um 1360, þar af margir fjarverandi og forfallaðir á annan hátt frá að tafca þátt í kosningunum þennan dag. 761 kjósandi neytti kosningaréttar síns, og er það meiri kjörsókn en margir bjuggust við. Séra Kristján hlaut 740 afkv. og var þa/r með kosinn lög- mætri kosningu. Eru þetta ánægjuleg úrslit fyrir séra Kristján og sýna glöggt það mikla traust, er Siglfirðing- ar bera til hans. Sér Kristján er prestur i Kanada, en mun koma heim nú í maí og tekur við em- ■bætti í júní. Kona sr. Krist- jáns er Auður Guðjónsdótt- ir og eiga þau 3 ung böm. 'Einherji býður séra Krist- ján og fjölskyldu hans hjart anlega velkomna til Siglu- fjarðar. Mælifellsprestakall í Skagafirði hefur verið auglýst laust til umsóknar, með umsóknarfresti til 15. mai næst komandi.

x

Einherji

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Einherji
https://timarit.is/publication/788

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.