Mjölnir


Mjölnir - 10.11.1943, Blaðsíða 4

Mjölnir - 10.11.1943, Blaðsíða 4
6. árgangur Miðvikudaginn 10. nðv. 1043 og öðrum vélahersveitum. Þegar hernaðarsaga þessara ára verður skrifuð og bardögunum við Moskva, Stalíngrad, Taganrog, og Desnafljót lýst, þá mun verða farið lofsorðum um hyggni Stalíns og glöggskygni, að hann skyldi gefa réttan gaum að riddaraliðinu sem mikilvægum þætti hersins, jafnvel á þessum dögum bryn- varðra og vélknúinna hergagna. NÝKOMIÐ: Herrasokkar m. teg. Axlabönd Kuldahúfur Herravesti, 2 geröir Flibbar Herrafrakkar, alullar o. m. fl. Vefnaðarvörudeild Kartöfl- urnar eru komnar Kjötbúð Siglufjarðar Tekjur og gjöld ríkissjóðs til septemberloka 1943. Nýlega hefur verið birt yfirlit fjármálaráðuneytisins yfir tekjur og gjöld ríkissjóðs frá áramótum til septemberloka. Samkvæmt því hafa tekjur ríkis- sjóðs á þessu tímabili numið 47,5 millj. en gjöld 50,9 millj. króna. Á sama tíma í fyrra námu tekj- uraar 39,2 millj. og gjöldin 30,6 milljónum. Af einstökum tekjuliðum má nefna: Verðtollur 23,2 millj. kr. vörumagnstollur 7,1 millj. mann- talsbókargjald 7,4 millj., útflutn.- gjald 2, 2 millj., bifreiða og benzín- skattúr 1,2 millj. og stimpilgjald 1,2 millj. Björn Austræni strandar Björn Austræni fór frá Siglu- firði þ. 5- þ. m. á leið til Akureyrar Skipið fór héðan kl. 1,30 um nótt- ina. Kl. 4 strandaði það að Fossvík rétt norður af Þyrsk- lingagnmni við Gjögra. Mann- björg varð og komust þeir til Þor- geirsfjarðar. Björgunarskútan Sæbjörg brá við og fór austur og kom svo liingað til Siglufjarðar með mennina. Mikið dimmviðri var þegar skip- ið strandaði. Þetta er eftir frásögn Eyþórs Hallssonar, skipstjóra, en meira gat hann ekki sagt vegna þess, að sjóréttarprófum var ekki lokið. Hófust þau kl. 4 í gær. NÆR OG FJÆR • SÓSÍALISTAFÉLAG SIGLU- FJARÐAR minntist afmælis rúss- nesku verkalýðsbyltingarinnar 7. nóv. með kaffikvöldi s.l. sunnu- dagskvöld. Skemmtu menn -sér hið bezta við ræðuhöld, upplestur, kvikmyndasýningu o. fl. Fór kvöld ið hið bezta fram. • SVO SEM SKÝRT hefur verið frá í öðrum blöðum hér,. bauð höfuðsmaður úr Bandaríkjahern- um, Ragnar Stefánsson, siglfirzk- um blaðamönnum til kvöldverðar í Gildas'.álanum s. 1- miðvikudags- kvöld. Ragnar er fæddur hér á landi, á Seyðisfirði, en fluttist vestur um haf barn að aldri. Tungu sinni hefur hann þó ekki gleymt og talar góða íslenzku. Ræddi hann við blaðamennina um ýmis- legt varðandi samvinnu blaðanna og heryfirvaldanna og lét hann vel yfir henni. Taldi hann, að ef blöð vestra fylgdu eins vel reglum þeim, sem þurft hefur að setja um fréttaflutning og annað vegna stríðsins, eins og blöð hérna, þá væri vel. Hét hann því að láta blöðunum í té þá aðstoð, sem hægt væri. Þetta var hin ánægjulegasta kvöldstund og kom þar glöggt í ljós, að þessir menn, sem öðru hvoru eru í hárinu hverjir á öðr- um eiga mörg sameiginleg áhuga- mál. Til Siglfirðings. Vill ritstjóri Siglfirðings gjöra svo vel og bera saman atkvæða- tölur sósíalista á atvinnuleysis- tímanum t- d. 1934 og svo 20. okt. 1942 eftir að flestir höfðu haft atvinnu um nokkurt skeið og sæmi leg peningaráð. Hann gæti líka bor ið saman atkvæðatölur Sjálfstæðis flokksins frá sama tíma. Kannski gæti hann þá séð hverjir það eru, sem græða og hverjir tapa á vel- megun fólksins. TILKVNIMING Með skýrskotun til auglýsingar, dags. 2. apríl 1943, inn hámarks- verð og hámarksálagningu á greiðasölu, og tilkynningar, dags. 5. okt. 1943, um hámarksverð á öiföngum, tilkynnist hlutaðeigandi aðilum hér með, að Viðskiptaráðið hefur ákveðið, að til viðbótar liinu aug- lýsta hámarksverði á ölföngum og gosdrykkjum, sé greiðasölum utan Reykjavíkur og Hafnarfjarðar lieimilt að bæta við verð hverrar flösku áfölhuun flutningskostnaði, þó ekki hærri en hér segir: 1. I Gullbringu- og Kjósarsýslu og Árnessýslu 10 aurar 2. í Rangárvallarsýslu og Vestur-Skaptafellssýslu 20 aurar 3. a) A Akranesi og Borgarnesi 20 aurar b) Á öðrum höfnum um land allt 40 aurar Á öðrum stöðum utan hafna í 3. lið má bæta við allt að 10 aurum á flösku, vegna flutningskostnaðar á landi auk flutningskostnaðar á skipi til næstu hafnar samkvæmt 3. lið. Með tilkynningu þessari er úr gildi fallin tilkynning frá 19. apríl 1943 um sama efni. Ákvæði tilkynningar þessarar ganga I gildi frá og með 6. nóv. 1943. Reykjavík, 3. nóv. 1943. Verðlagsstjórinn. TILKYNNING Viðskiptaráðið hefur ákveðið eftirfarandi hámarksverð á rjúpum til neytenda: Ó'liamflettar .................... Kr. 3,75 fuglinn Hamflettar ......................... — 4,00 fuglinn Hamflettar og spikdregnar.............— 4,50 fuglinn Ákvæði þessi koma til framkvæmda frá og með 1. nóvember 1943 Reykjavík, 29. október 1943 VERÐLAGSSTJÓRINN R £ I K N I N G A R Siglufjarðarliaupstaðar — bæjarsjóðs, vatnsveitu, rafveitu, hafnar- sjóðs, mjólkurbús og sjúkrahúss — fyrir árið 1942, svo og efnahags- reikningar þann 31.des. 1942, hggja frammi — almenningi til sýnis — á bæjarskrifstofunni næstu tvær vikur. Siglufirði, 1. nóvember 1943 BÆJARSTJÓRI MUNIÐ ÞJÓÐVILJASÖFNUNINA!

x

Mjölnir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Mjölnir
https://timarit.is/publication/864

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.