Tímarit Verkfræðingafélags Íslands - 01.07.1944, Page 10
24
TÍMARIT V.F.I. 1944
við The College of Fisheries í Washington, Seattle, og
vann síðan næstu lö ár að teikningum, hyggingum og
rekstri fiskimjöls- og síldarverksmiðja í Noregi,
Alaska, Canada, Hawaii-eyjum og við báðar strendur
Bandarikjanna.
Mun Mr. Anderson m. a. hafa séð um byggingu
Dagverðareyrar-verksmiðjunnar og dvalist hér eitt
ár á Dagverðareyri.
Starf Mr. Anderson hefir ýmist verið viðskiptalegs
eðlis eða við ýmiskonar tilraunir i sambandi við Fish
and Wildlife Service, og liefir hann jafnframt starfað
sem yfirmaður fyrir Division of Fishery Industries
og sem fiskimálaráðunautur handarísku stjórnar-
innar í Washington.
Ætli af þessu að verða ljóst, að maður þessi er
enginn reynslulaus nýgræðingur i fiskiðnaðarmálum.
Álit þessa manns er í fáum orðum eftirfarandi:
„I believe that preserving methods of this type
(snow cooling) have an important future role, not
only in Iceland, but in various places in the United
States, particularly Alaska“, eða í þýðingu:
„Alit mitt er, að gevmsluaðferðir af þessu tagi
(snjókæling), eigi sér þýðingarmikla framtíð fvrir
höndum, ckki aðeins á íslandi, heldur og á ýmsum
stöðum í Bandaríkjunum, sérstaklega í Alaska“.
IV.
Það var ekki i mínum verkahring að hindra það,
að Mr. A. W. Anderson aflaði sér prenlaðra áragam-
alla ritgerða um kælingu hræðslusiklar og héldi því
fram við láns- og leigulagastofnunina, að Islendingar
œttu að hagnýta sér Jiessa kælimöguleika áður en
heimtaðar væru fleiri vélar og verkfæri, sem Banda-
rikjamönnum var örðugt að láta af hendi vegna
st y r j a ldar reks tur sin s.
En það er í verkahring framkvæmdastjórans Jóns
Gunnarssonar og stjórnar síldarverksmiðja ríkisins
að svara til saka um það, ef ennþá leikur vafi á því,
hvort kæling hræðslusildar er hagkvæm gevmsluað-
ferð. er getur aflað milljónatuga i þjóðarbúið.
Ef fundizt hefðu saltnámur í Siglufjarðarskarði
með svo ágætu salti, að það geymdi síld óskemmda
vikum og mánuðum saman, þá myndi margur hyggja,
að óhætt mvndi að stækka þrærnar, sækja saltið í
námurnar og veita hrotusíldinni tafarlaust móttöku.
Siglfirzki snjcrinn er saltið.
Gísli Halldcrsson.
Vatnsrennsli í Soginu.
I Timariti V. F. t. 1917, hls. 32, er getið um tvær
vatnsrennslismælingar í Sogi. Þá fyrri gerði Guðm.
Illiðdal 14. sept. 1908, rélt þar fyrir neðan, sem Sog-
ið fellur úr Úlfljótsvatni. Mældist rennslið þá 85
m'Vsek.
24. april 1909 gerði þáverandi landsverkfræðingur
Th. Krabbe aðra mælingu og mældist rennslið ]>á
79 m:i/sek.
í tímaritinu 1927, bls. 51 stendur:
„Frá því í nóv. 1D18 hafa að tilhlutun vegamála-
stjórnarinnar verið gerðar daglegar mælingar á hæð
vatnsborðsins í Soginu, á mælingastað við Bíldsfell,
og sýna mælingar þessar, að rennsli Sogsins er mjög
jafnt allan ársins hring, venjulega 80 90 m3/sek.
Á sex ára tímabili 1919 1924 hefir meðalrennslið
reynst 80 m3/sek„ en mesta árs-meðalrennsli 89
m3/sek. árið 1921.
Minnsta rennsli, sem mælt hefir verið, er 74 m3/sek.
i bvrjun maímánaðar 1920, en mesta rennsli, scm
mælt hefir verið er 109 m3/sek. i febr. 1922 í
stórrigningu eftir frostkafla. Mesta rennsli á þessu
scx ára tímabili verður þannig tæplega 1,5 sinnum
meira en minnsta rennsli."
Þessar mæliborðsathuganir stóðu yfir til 1. april
1929.
Ráðunaular Revkjavíkurbæjar við virkjun Ljósa-
foss. þeir verkfræðingarnir Berdal og Nissen, lögðu
svo þessar tölur lil grundvállár við að ákveða véla-
afl í stöðinni. Reiknuðu þeir með minnsta dægur-
rennsli án miðlunar 78 m3/sek„ þar sem minna
dægui rennsli var svo fátítt, og minnsta meðalrennsli
80 m3/sek.
Þvi næsl voru gjörðar vatnshæðarmælingar i
Soginu hjá Syðri-Brú, skammt fyrir ofan írufoss og
stóðu þær vfir frá því i okt. 1924 til mai 1929.
Siðan lágu athuganir niðri þar lil virkjun var á-
kveðin i Ljósafossi en þá voru gerðar vatnsborðs-
mælingar IVá 1. se])t. 1933 til 25. scjjt. 1937. Frá ár-
imi 1928 lil 1937 voru svo gerðar (i vatnsrennslis-
mælingar og mældist rennslið við þær allar nokkru
meira en mæliborðstaflan gaf lil kynna.
Síðan Ljósafossstöðin tók til starfa i okt. 1937
hefir verið fært i dagbækur hennar 4 sinnum á sól-
arhring vatnshorðsliæð l'yrir ofan stífluna svo og op
á yfirföllum og botnsrásum.
Með því að gjöra sér töflur yfir gegnstreymi í