Ísfirðingur - 15.12.1999, Blaðsíða 2

Ísfirðingur - 15.12.1999, Blaðsíða 2
Kristinn Gunnarsson, alþingismaður BIAÐ TRAMSÖKNAKMANNA Í VESJT-JAHDAKJÖRDGMI Útgefandi: Kjördæmisráð framsóknarmanna á Vestfjörðum Iilaðstjórn: Guðni G. Jóhannesson Sveinn Bernódusson Sigríður Magnúsdóttir Abyrgðarmaður: Kristinn H. Gunnarsson Prentvinnsla: H-prent ehf. ísafirði Jólapakkann heim_______ að dyrum! Það er þjóðráð að senda jólapakkana innanlands með Póstinum. Þú kemur á næsta pósthús með jólapakkana og lætur okkur sendast með þá heim til ættingja og vina hvar sem þeir búa á landinu. 450 kr. burðargjald fyrir allt aö 5 kg pakka. 20% afsláttur af umbúðum. <^p/ PÓSTURINN - jóLdcwðju'! Fjárlög ársins 2000 HÚSHITUNARKOSTNAÐUR LÆKKAR 17 MKR. TIL SKJÓLSKÓGA \ / Fjárlög ríkisins fyrir næsta ár voru afgreidd á Alþingi fyrir skömmu. Gert er ráð fyrir tæplega 17 milljarða króna afgangi og hefur ekki í áratugi verið meiri. Með þessu er undirstrikuð stefna rfkisstjórnar um stöðugleika í efnahagslífinu, lága verðbólgu og vaxandi kaupmátt almennings. Meginbreytingarnar frá fyrra ári eru auknar fjárveitingar til fíkniefnamála og byggðamála. Eins og mönnum er eflaust í fersku minni lagði Framsóknar- flokkurinn mikla áherslu á baráttu gegn fíkniefnum í síðustu kosningum og auknum fjárveit- ingum til þeirrar baráttu. Var miðað við aðfjárveitingar ntyndu aukast um 250 mkr. árlega á kjörtímabilinu og yrðuorðnarum I milljarði króna hærri í lok kjörtímabilsins en í fárlögum yfirstandandi árs. í nýsamþykkt- um fjárlögum er staðið að fullu við þau fyrirheit og reyndar gott betur, en fjárveitingarnar hafa aukist um liðlega 400 milljónir króna til forvarnarstarfa, nýrra með-ferðarúrræða, löggæslu og toll-eftirlit svo eitthvað sé nefnt. I öðru lagi er mikil áhersla á að styrkja landsbyggðina. Aukið er við fé til jöfnunar húshituna- rkostnaðar um 160 mkr, úr 600 mkr. í 760 mkr. og framlög lil jöfnunarnámskostnaði aukastum þriðjung eða um 77 mkr. Eru þessar ákvarðanir í sam- ræmi við tillögur nefndar allra þingflokka sem skilaði áliti fyrir síðustu kosningar, en þar var lagt til að taka í þremur áföngum veigamikla jöfnun á þessu sviði. Stuðst var við mat Byggða- stofnunar á því hvað hækka þyrfti framlög til húshitunar. Er þá fyrsti áfanginn kominn til framkvæmda og hinir tveir koma væntanlega á næslu tveimur árum. Þá var verulega aukið við fralög ríkisins til menntunar, einkum til þess að efla háskóla-menntun á landsbyggðinni. En athuganir benda til þess að bætt menntun og þar með aukin hæfni vinnuafls sé besta tækið til þess að styrkja landsbyggðina. Brugðist var við vanda sveitarfélaga á landsbyggð- inni með því að verja 700 mkr. til þeirra. Þá er starfandi nefnd sem mun skila af sér tillögum síðar í vetur um tekju-stofna sveitarfélaga og þar verður m.a. að finna tillögur um lækkun fasteignaskatta á landsbyggðinni og tekjur til sveitarfélaga til þess að mæta þeirri lækkun. Varið verður 300 mkr. til eignarhaldsfélaga á landsbyggð- inni eins og á þessu ári. Sama er ráðgert á árinu 2001, þannig verða samtals 900 mkr. til eignarhalds- félaganna sem þau munu verja til atvinnuuppbyggingar. Af vestfirskum málefnum vil ég nefna að Skjólskógar fá 17 mkr. á næsta ári sem er vel það sem um var beðið og segja má að með þessu sé verkefnið, sem standa mun í mörg ár, komið á beinu brautina. Unnið verðursamkvæmt áætlun í vegamálum og þar munu verða unnir góðir áfangar í vega- lagningu. Lokið verður við fram- kvæmdir við heilsugæslu-stöðina og íbúðir aldraða á Þingeyri og hafnar Iramkvæmdir við við- byggingu hjúkrunar-heimilisins á Hólmavík. Gamli bærinn í Litlabæ við Skötufjörð verður varðveittur og lagfærður, en hann er liðlega aldar gamall og bæði íbúðarhús og steinhleðslur eru merkilegar heimildir hvor á sína vísu. Fleira væri vissulega ástæða til þess að nefna en hér verður látið staðar numið. Ég vil aðendingufæralesendum Isfirðings árnaðaróskir og óskir unt gleðileg jól og komandi nýtt ár. Kristinn H. Gunnarsson r~ x Óskum starfefólki okkar, viðskiptavinum sem og öllum Vestfirðingum gleðilegra jóla og farsgeldar á nýju ári L Landsbankinn Patreksfirði og Bíldudal Brottfarir eru eftirfarandi: Sunnudaga, mánudaga og fimmtudaga: Frá Sykkishólmi kl. 13:00 Frá Brjánslæk kl. 16:30 Vetraráætlun 1999-2000 Þriðjudaga, miðvikudaga, föstudaga og laugardaga: Frá Stykkishólmi kl. 10:00 Frá Brjánslæk kl. 13:30 Breyting um jól og áramót: Engar ferðir verða eftirtalda hátíðisdaga: Aðfangadag jóla 24. og Jóladag 25. des. Gamlársdag 31. des. og Nýársdag 1. jan. Breiðafjarðarferjan Baldur Sími Brjánslæk 456 2020 Sími Stykkishólmi 0438 112 2

x

Ísfirðingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ísfirðingur
https://timarit.is/publication/790

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.